Færsluflokkur: Bloggar

Elliðaey VE 10

Elliðaey með signal uppi.

 

Togarinn Elliðaey VE 10 smíðaður í Englandi 1947. Hann var 664 brl. með 1000 hestafla 3 þjöppu gufuvél.

Fyrsti eigandi var Vestmannaeyjakaupstaður skipið  var í eigu Eyjamanna til 1953.

Það var selt til Grikklands og tekið af íslenskri skipaskrá í nóvember 1964.

Þetta voru falleg skip á sínum tíma.


Ófeigur VE 325 óbreyttur

Með fyrstu stálbátum

 

Ófeigur VE 325 var smíðaður í Hollandi 1954 og var úr stáli. Hann var 66 brl. með 220 hestafla Grenaa ddíesel vél.

Eigendur voru Þorsteinn Sigurðsson og Ólafur Sigurðsson.

Báturinn var lengdur á Akranesi 1965 og mældist eftir þá lengingu 81 brl. þá var sett í hann 380 hestafla Caterpiller Díesel vel.

Báturinn strandaði við Þorlákshöfn 20. febrúar 1988 og eyðilagðist. Áhöfn bátsins bjargaðist.

Kær kveðja SÞS


Á sjóvinnunámskeiði í Veiðafæragerð Vestmannaeyja

Netabætning

 

Á myndinni  er nokkrir peyjar á sjóvinnunámskeiði hjá Magnúsi í Veiðafæragerð Vestmannaeyja.

T.fv: Pétur Sveinsson, Ólafur í Laufási , Elli Bergur  og Magnús kennari peyjana.


Kreppan Sigmund teiknaði 1969

Teiknig Sigmund 1

 

 Þessar myndir sem vinur minn Sigmund teiknaði og eru í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1969 lýsa tíðarandanum á þeim tíma, þá var einnig umræða um kreppu

 

 

 

 

 

 

 

 

 Teiknig Sigmund 2

 


Gúmmíbjörgunarbátar á farþegaskipi

100_2873100_2875

Það getur verið nokkuð flókið að ganga frá gúmmíbjörgunarbátum á farþegaskipum, myndirnar tók ég þegar verið var að taka út björgunarbúnaðinn um borð í Farþegaskipinu Baldri. Það skiptir öllu máli að Gúmmíbjörgunarbátar séu rétt tendir og allur þessi björgunarbúnaður sé rétt frá gengin þannig að allt virki eins og til er ætlast á neyðarstundu. Gummíbjörgunarbátarnir er bæði tengdir fjarlosun og sjálfvirknilosun af gerðinni Hammar.

100_2884

 

 

 

 

 

 

 

 

 

100_2885

 

 

 

 

 

 

 

 

 

100_2889


Til hamingju Garðbæingar

Til hamingju Garðbæingar með frábæran sigur á Reykjavíkurliðinu. Þessi lið eru bæði góð en í kvöld var heppnin með Garðabæ, en svona glæsilegur sigur  vinnst ekki nema með eldklárum og vel lesnum einstaklingum .

Þessir þættir hafa verið virkilega skemmtilegir í vetur og Þóra og Sigmar eiga heiður skilið fyrir góða stjórn á þáttunum sem vonandi verður framhald á næsta vetur.

kær kveðja SÞS


mbl.is Afþakkaði gjafabréf í Útsvari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær auglýsing frá Sjómannafélögum í Gridavík

Góð auglýsing og þörf

Ég get ekki annað en dáðst að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur fyrir að birta þessa auglýsingu á baksíðu Fréttablaðsins í dag.

Það er mál til komið að sjómenn farai að berjast á móti þessum endalausa yfirgangi stjórnmálamanna gagnvart kjörum sjómanna. Engin stétt í landinu hefur fengið jafn oft á sig lög þegar þeir hafa verið að reyna að berjast fyrir bættum kjörum, og nú á að hirða af sjómönnum sjómannaafslattinn, það er því komið að því að segja hingað og ekki lengra.

Ég er ekki viss um að allir sjómenn geri sér grein fyrir því að það er leynt og ljóst verið að grafa undan sjómannastéttinni t.d með því að stela frá þeim Sjómannadeginum og endurskíra hann Hátíð hafsins sem er að mínu viti hneiksli. Það sem er enn verra og furðulegt að þetta er gert í samráði við Sjómannafélögin í Reykjavík. Kannski eru þetta afleiðingar af því að búið er að blanda saman stórum sjómannafélögum og landfélögum þar sem meirihluti félagsmanna eru menn sem vinna í landi og eru nokk sama um þá sem eru á sjó, og svo er það eitt stórt vandamál að það virðist ekki vera hægt að losna við marga af þessum fórustumönnum sjómanna sem löngu eru sjósprungnir svo ég noti gamalt og gott sjómannamál.

Ekki einu sinni Sjómannaskólinn má heita sínu rétta nafn, og sjómenn eru ótrúlega linir við að skrifa greinar í blöð um sín mál, kannski vegna hræðslu við vinnuveitendur sína.

Það er svo ótalmargt sem hægt væri að telja upp sem bendir eindregið til þess að unnið sé að því leynt og ljóst að gera lítið úr sjómannastéttinni, og sjómenn virðast því miður ekki gera sér grein fyrir þessari þróun.

Þessi auglýsing er smá vísbending um að sjómenn séu að vakna til lífsins og ég vona svo sannarlega að þeir átti sig sem fyrst á því að það kostar vinnu að halda sínum kjörum og sínu öryggi.

Með baráttukveðjum SÞS


Nýjar loftmyndir frá Adda Palla af Bakkafjöruhöfn

Addi Palli ný mynd bakki

 

 Þessar flottu loftmyndir af Bakkafjöruhöfn tók Arnór Páll Valdimarsson (Addi Palli) hjá Flugfélagi Vestmannaeyja.

Ámyndunum sést að það er komin góð mynd á höfnina, hvernig hún verður í framtíðinni. Í hafnarmynninu er dýpkunarskipið Perlan frá Björgun ehf að störfum. Þessar myndir eru skemmtilegt framhald af myndum Óskars.

Ég þakka Adda Palla og Óskari kærlega fyrir að leyfa mér birta þessar myndir á blogginu mínu.

 

 

 Addi Palli ný mynd bakki 1


Nýjar myndir frá Bakkafjöruhöfn

Landey-framkvLandey-framkv Óskar 3

Þessar myndir tók Óskar Óskarsson  í Áhaldaleigunni á skírdag en þær eru af framkvæmdum í Bakkafjöru. Þarna eru að rísa mikil mannvirki á sandinum eins og bryggjur, rampurinn fyrir skipið og hús, ég þakka Óskari fyrir að fá að setja þessar myndir á bloggið mitt.

Landey-Perla ÓskarLandey-Perla Óskar 17

Þá er dýpkunarskipið Perlan komin á staðinn til að dýpka rennuna frá hafnarmynni og að bryggju en mig minnir að rennan eigi að vera mest öll 7 m djúp. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig gengur hjá þeim á Perjuni að sigla inn með tómt skip og út með það fullt af sandi mörgum sinnum á sólarhring. Með þessari vinnu við dýpkun fæst reynsla sem verður fróðlegt að fylgjast með því hún gefur vísbendingar um það hvernig þetta verður í framtíðinni. Alla vega finnst mér þetta vera spennandi verkefni og vonandi gengur þetta allt vel hjá þeim í Björgun ehf enda þaulvanir menn á ferð með mikla reynslu af dýpkunarframkvæmdum. Skipið hér á myndunum er Perlan frá fyrirtækinu Björgun ehf.  

 

Landey-Perla Óskar 19Landey-perla Óskar 21

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Landey-rampur 'oskar 4Landey-staurar 'oskar 11

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér fyrir ofnan kemur rampurinn þar sem bílarnir keyra niður í skipið og staurarnir sem reknir voru niður í hafnarmynninu.

 

Landey-framkv Óskar 7Landey-framkv Óskar 9

 

Landey-framkv Óskar 33

 


Gísli Sigmarsson Byggðarenda við Brekastíg

Gísli Sigmarsson frá Byggðarenda við Brekastíg 15 a

Gísli Sigmarsson Byggðarenda Gísli Sigmarsson Byggðarenda 1

Gísli Sigmarsson frá Byggðarenda við Brekastig 15 a nú till heimilis að Faxastíg 47 Vm. skipstjóri og útgerðarmaður á Ellíðaey VE og Katrínu VE. Þetta er skemmtileg mynd af Gísla frænda mínum og fóstra, ekki er ég viss um aldur hans á þessaum myndum en svipurinn leynir sér ekki og hann er flott klæddur, mig minnir að þessar húfur hafi verið kallaðar flugmannshúfur.

Kær páskakveðja SÞS



« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband