Dagsönn saga af skógarhöggsmanni og skógarbirni

 

Einn uppáhalds kennarinn minn í barnaskóla sagði okkur krökkunum stundum  alveg stórkostlega skemmtilegar sögur sem allar voru dagsannar, hér kemur ein sem ég man vel eftir og kemur upp í hugann eftir lestur á frétt um ísbjörninn:  (Þeir sem eru að fást við ísbjörninn gætu kannski lært af henni).

Það var einu sinni skógarhöggsmaður á gangi í skógi í Kanada, hann gekk um skóginn í leit  að tré til að fella, hann finnur tré í miðjum skóginum og byrjar að höggva það með sinni stóru og beittu öxi. Þegar hann er  langt komin með að höggva sundur tréð heyrir hann mikið öskur fyrir aftan sig og finnur að jörðin nötrar undir fótum sér, hann lítur um öxl og sér risastórann skógarbjörn sem hafði líklega vaknað af vetrardvala við hávaðan.  Skógarhöggsmaðurinn sá strax að hann gat ekki flúið undan glorhungruðum birninum inni í miðjum skógi. Hann bjóst því til varnar og var tilbúinn að nota flugbeitta öxina á björninn. Þeir nálguðust nú hvern annan og drápseðlið skein úr augum bangsa. Allt í einu stökk hann að skógarhöggsmanninum lyfti upp hramminum og bjóst til að slá, en skógarhöggsmaðurinn reiddi upp öxina og ætlaði að höggva í miðja bringu björnsins, en ekki tókst betur til en svo að björninn sló með loppunni öxina úr hendi hans svo hún sást ekki meir.  Nú var Skógarhöggsmaðurinn í slæmum málum, hann var vopnlaus á móti dýrinu sem ætlaði að drepa hann og éta.    Björninn nálgaðist nú manninn aftur hægt og hægt, hann vissi að hann gæti ekki flúið, en skógarhöggsmaðurinn var ekki tilbúinn að gefast upp enda var hann búin að ákveða hvernig hann gæti snúið á björninn  því um líf eða dauða var að tefla.
Nú var bara 2 metrar á milli þeirra og björninn orðinn óþolinmóður, hann ræðst að manninum og ætlar að slá hann með hramminum, en skógarhöggsmaðurinn var eldsnöggur og hleypur aftur fyrir björninn stingur hendinni inn í afturendann á honum og upp í háls grípur í tunguna á honum og togar í um leið og hann spyrnir í rassgatið á honum, þannig togar hann í tunguna með heljarafli þangað til hann er búinn að snúa bangsa á rönguna.

Kennarinn þagnar grafalvarlegur, krakkarnir horfa á hann og bíða eftir endinum, eftir drykklanga þögn fer  kennarinn að skellihlæja og segir: Sagan er búinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

 Gæti ég snúið á björninn ef um líf eða dauða var að tefla
Við erum öll að sigra birni.Það er líf okkar á deigi hverjum.

Kveðja eyja stelpa.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 16.6.2008 kl. 22:18

2 identicon

Góð saga, uss ekki vildi ég sjá björn á röngunni hehe.

Kveðja úr sólinni

Halldór Gunn (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 22:43

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hafa skógarhöggsmenn lengri handleggi en aðrir menn? Bara ef maður skyldi mæta einum á röltinu hér í Kópavogi.

Kolbrún Stefánsdóttir, 17.6.2008 kl. 22:36

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Ég hef það á tilfinninguni að þið trúið ekki þessari sögu,en hún er dagsönn það var kennari sem kenndi dýrafræði sem sagði mér hana  takk fyrir innlitið

  kveðja SÞS

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 18.6.2008 kl. 15:47

5 identicon

Blessaður frændi

Kannast við söguna getur verið að fyrsti stafurinn í nafni kennarans sé Páll Steingrímsson

eða var það Eiríkur

Kv.Dollý

Sólveig Adólfsdóttir (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 22:58

6 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Dollý frænka já þetta er rétt til getið, þær voru margar skemmtilegar  og eftirminnilegar sögurnar sem Palli sagði okkur, þá oft með eitt logandi kerti á undirskál á kennaraborðinu. Það er gaman að rifja þetta upp og setja á blað.

takk fyrir innlitið

kær kveðja SÞS

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 18.6.2008 kl. 23:04

7 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.6.2008 kl. 12:32

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já svona á að fara að!   

Jóhann Elíasson, 22.6.2008 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband