27.5.2008 | 22:56
Hljómsveitin Kúmen 7 og sjóliðarnir ungu
Þetta eru meðlimir í góðri danshljómsveit sem hét Kúmen 7, en hljómsveitameðlimirnir heita: Birgir, Sigurgeir og Ólafur (Lalli). Var búinn að segja að hlómsveitinn héti Eymenn en var leiðréttur af tveimur heiðursmönnum hér í athugasemdum. Takk fyrir það Tóti og Pétur.
Mynd 2: Þessir ungu sjóliðar heita Gísli, Sigurður og Frosti Gíslasynir. Myndin tekin á Faxastig 47 heima hjá foreldrum þeirra Gísla Sigmars og Sjöfn Benónýsdóttir.
kær kveðja SÞS
Athugasemdir
Sæll Simmi
Er þetta ekki hljómsveitin Kúmen 7 sem mikið spilaði í Alþýðuhúsinu upp úr 1980, var með hjónaböllinn hér í den.
Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 16:32
Sæll vertu Simmi minn!!,Ég er sammála Pétri,þessi hljómsveit hét Kúmen 7,en Biggi Gaua var einnig í Eymönnum en það var seinna kv þs
ÞS (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 17:57
Heilir og sælir Pétur og Þórarinn takk fyrir þessa ábendingu það er gott að eiga góða að sem nenna að leiðrétta hjá mér mistökin. Leiðrétti þetta strax.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 28.5.2008 kl. 22:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.