Listaverk. Í klemmu vegna greiðsluerfiðleika???

IMG_0406 Ég var svo óheppinn að greiðan mín fór óvart í þvottavélina, og varð auðvitað ónothæf á eftir. Mér fannst samt eitthvað listrænt við hana svo ég tímdi ekki  að henda henni heldur ákvað að búa til úr henni listaverk. Grin Ég hugsaði með mér að fyrst ruslahrúga á gólfi listasafns getur verið listaverk þá hlítur falleg greiða að geta verið það líka.

Eftir nokkra umhugsun  varð úr þetta ágæta listaverk sem ég kallaði Í klemmu vegna greiðsluerfiðleika, nú á síðustu mánuðum hefur verið mikil spenna á markaðnum svo ég bætti spennu við listaverkið. Tounge Ætli maður geti ekki fengið listamannalaun út á þetta listræna verk ??Blush mitt.

Já ég gleymdi að nefna að VERKIÐ er til sölu á 34869 kr staðgreitt, LoL Það væri ekki vitlaus fjárfesting fyrir KB banka að kaupa það og stækka í 1 á móti 60 og hafa það á lóð aðalbankans.LoLToungeWhistling

Kær kveðja SÞS

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Baldursson

Mér sýnist þú eiga framtíðina fyrir þér sem listamaður. Sækir um listamannalaun út á þetta.

Aðalsteinn Baldursson, 15.4.2008 kl. 22:21

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

...þú ert nú búinn að sýna af þér listræna hæfileika með uppsetningu á myndunum þínum. Verst að þú skulir ekki vera í Eyjum núna þegar þetta uppgötvaðist, þá gæti Elliði gert þig að bæjarlistamanni?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 15.4.2008 kl. 23:34

3 identicon

Heyrðu Simmi, þeir voru að auglýsa hér hjá Vestmannaeyjabær eftir bæjarlistamanni. Ég held bara að þú eigir hellings séns í það maður. Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k.

Kv.

Pétur Steingríms.

Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 23:55

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já þeir ættu að ráða þig í stöðu sem gæti heitið "brottfluttur bæjarlistamaður". Í svona hlutastarf, hann Elliði hefur stungið uppá mörgu vitlausara?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 16.4.2008 kl. 09:57

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Mér finnst spennan alveg toppa þetta, hún gerir verkið svo "lifandi". Ef og þegar spennunni á markaðnum léttir þá fer spennan af verkinu..

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 16.4.2008 kl. 10:01

6 identicon

hahah fyrst "ruslahrúga á gólfi listasafns getur verið listaverk" alger snilld svo ég tali nú ekki um verkið þitt. Held svei mér þá að þetta sé í fyrsta skipti sem ég skil listaverk. Þá er það stóra spurningin, hvernær ætlarðu að halda sýningu ?

p.s til hamingju með þetta verk þitt.

Halldór (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 14:56

7 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heilir og sælir kæru bloggvinir þakka ykkur fyrir uppörvun  það er nauðsinlegt að grinast svolítið hér á blogginu, það gerir þetta skemmtilegra.

 Því miður er talvan mín í klessu þannig að ég get ekki sett myndir inn fyrr en í næstu viku.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 17.4.2008 kl. 00:24

8 identicon

Snilldin ein :)

knús Harpan

Harpa Sigmars (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband