Árskort í líkamsrækt hækka með World Class

Frétt af mbl.is

Vill hafna tilboði Lauga
Innlent | mbl | 1.5.2014 | 22:46
Mynd 736680
Deildarstjóri framkvæmdadeildar Kópavogsbæjar leggur til að tilboði Lauga ehf., sem eiga og reka líkamsræktarkeðjuna World Class, í rekstur líkamsræktarstöðva í sundlaugum bæjarins verði hafnað. Hann vill að reksturinn verði boðinn út að nýju. 

 

 

Árskort í líkamsrækt í Kópavogi hækka svo um munar.

Laugar ehf sem á og rekur líkamsræktarstöðvar World Class bauð hærra en Gym  Heilsa í rekstur líkamsrætaraðstöður í sundlaugum Kópavogs þ.e.a s. Salarlaug og Sundlaug Kópavogs.

Reksturinn var boðin út eftir að Laugar ehf  kvartaði til Samkeppniseftirlits um að Kópavogsbær væri að skekkja samkeppnisaðstöðu á markaði með því að niðurgreiða þessa starfsemi.

Þetta er merkilegt mál ef grannt er skoðað , nú á með hjálp Samkeppniseftirlits að ýta út Gym Heilsu og færa World Class aðstöðuna þannig að nú verður engin samkeppni  í Kópavogi.  Hver græðir á þessu  ? lítum á yfirlýsingar sem Björn Leifsson hjá World Class hefur gefið.

World Class ætlar að hækka gjaldskránna  upp úr öllu valdi og selja  árskortið fyrir 59,950, það á svo eftir að koma í ljós hvort það fyrirtæki stendur við þessa yfirlýsingu þar sem það selur árskort í aðrar líkamsræktarstöðvar  sínar á 79,900,  ætlar  World Class að lækka það verð eða mismuna kúnnunum sínum eftir því  í hvaða sveitarfelagi  þeir stunda sína líkamsrækt ?

GYM Heilsa það ágæta fyrirtæki selur árskort fyrir 41990  kr. og fyrir þá sem endurnýja árskortin árlega fást þau  á 35990 kr. þarna munar 17960 kr. eða 23960 kr.  fyrir þá sem endurnýja árskortin árlega .

Þeir einstaklingar sem hafa  verið hjá Actic og síðan hjá GYM heilsu líkar vel við bæði fyrirtækið og það frábæra  starfsfólk sem þar vinnur, þess vegna  viljum við fá að vera áfram með þessu fólki og borga sanngjarnt verð fyrir. 

Þarna er að mínu viti  spurning um það hvort bæjarstjórn Kópavogs er að hugsa um  Björn Leifsson og World Class eða heilsu og velferð bæjarbúa Kópavogs.

Hvers vegna má Kópavogsbær ekki niðurgreiða líkamsræktina og sundstaðina sína eins og aðrar íþróttagreinar ?

 Í Kópavogspóstinum frá  27. mars s.l. kemur fram að Kópavogsbær og Garðabær eru búin að skrifa undir viljayfirlýsingu um að taka þátt í að byggja nýja  íþróttarmiðstöð GKG upp á 630 miljónir, þessi bæjarfélög borga  drjúgan hluta  af kosnaði þessa íþróttamiðstöðvar.  Þetta er gert fyrir allan þann fjölda manna og kvenna sem stunda golf í þessum bæjarfélögum. Eflaust þurfa bæði þessi bæjarfélög í framtíðinni að styrkja þessa klubba ( og gera kannski í dag)  til að geta rekið þessa íþróttamiðstöð eins og önnur mannvirki sem stuðla að góðum og hollum íþróttum. Er þarna verið að skekkja samkeppnisaðstöðu samkeppnisaðila um sölu inn á golfvelli ?

Ferðamannavagn í Kópavog í sumar er fyrirsögn í Kópavogspóstinum þar segir m.a : „Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Smáralindar, Kópavogsbæjar og Hópbíla Teits Jónssonar um að halda úti reglubundnum ferðum ferðamannavagns í allt sumar, ferðamönnum að kosnaðarlausu. Ferðavagninn  mun fara fjórar ferðir fram og til baka frá upplýsingamiðstöð ferðamanna í aðalstræti í Reykjavík inn í Kópavog , og fimm ferðir á fimmtudögum“. Ferðirnar hefjast 15. maí og verða til 31. ágúst

Samkvæmt rökum Samkeppnisstofnunar og  Björns Leifssonar þá er með ofansögðu verið að skekkja samkeppnisstöðu í þessum greinum og geta Kópavogsbær þá átt von á kæru frá samkeppnisstofnun eða fyrirtækjum sem tengjast þessum fólksflutningum milli staða?. Geta Strætó og að ég tali nú ekki um leigubilastöðvar kært Kópavogsbæ fyrir að skekkja samkeppnistöðu þessara fyrirtækja , þeir hljóta að missa spón úr aski sínum. Varla taka ferðamenn leigubíl  eða strætó ef þeir geta fengið frítt far í Kópavogin í niðurgreiddum rútuferðum.

Það skal tekið fram að ég er ekki á móti þessum ákvörðunum bæjarstjórnar Kópavogs, ég er bara að benda á að það er alveg jafn nauðsynlegt að standa með og styrkja þau fyrirtæki og einstaklinga  sem stunda líkamsrækt og sund í Kópavogi, eins og aðrar íþróttagreinar og menningu.

Ég skora því á bæjarstjórn Kópavogs að standa með GYM Heilsu sem býður sínum kúnnum líkamsræktarkort á sanngjörnu verði og hefur á að skipa úrvalsstarfsfólki.

 

Sigmar Þór Sveinbjörnsson

 


mbl.is Vill hafna tilboði Lauga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband