Minning um konu. Þórunni Sveinsdóttir frá Byggðarenda

Hver var Þórunn Sveinsdóttir sem hin happasælu skip voru skírð eftir og er í dag orðið landsfrægt skipsnafn? Eftirfarandi minningar tók ég saman  um ömmu mína Þórunni, og fékk við það mikla og ómetanlega hjálp frá Þóru Sigurjónsdóttir eiginkonu Óskars heitins Matthíassonar. 

Þórunn Júlía Sveinsdóttir   Hún hét fullu nafni Þórunn Júlía Sveinsdóttir, kölluð Þórunn eða Tóta á Byggðarenda. Hún var fædd á Eyrarbakka 8. júlí árið 1894 og ólst upp hjá foreldrum sínum. Faðir hennar var Sveinn Sveinsson, fæddur í Simbakoti 9. okt. 1863. Hann var sjómaður, lést 1941. Kona hans og móðir Þórunnar var Ingunn Sigurðardóttir frá Rauðafelli í A-Eyjafjöllum, f. 26. jan. 1858, d. 1941. Þau hjón bjuggu að Ósi á Eyrarbakka með fimm börnum sínum, fjórum stúlkum og einum dreng. Húsið Ós hafði tvær burstir og það var aðeins eitt herbergi í austurburstinni. Í því svaf öll fjölskyldan þannig að þröngt hefur verið í herberginu. Sváfu systurnar tvær og tvær saman í rúmi en bróðir þeirra einn. Húsið Ós stendur enn á Eyrarbakka.               Börn Sveins og Ingunnar voru: Sigurður Ari, Þórunn Júlía, sem hér segir frá, Anna, Sveinbjörg, og Jónína síðar kennd við Sjónarhól.                Systurnar Þórunn, Sveinbjörg og Jónína fluttust allar til Vestmannaeyja og bjuggu þar mestan hluta ævi sinnar enda var mikill uppgangur í Vestmannaeyjum á þessum tíma, bátar voru vélvæddir, afli jókst og mikið að gera fyrir vinnufúsar hendur. 

 Þórunn flyst til Vestmannaeyja. Þórunn var 22 ára gömul þegar hún fluttist til Vestmannaeyja árið 1916 ásamt tilvonandi eiginmanni sínum, Matthíasi Gíslasyni sjómanni frá Eyrarbakka. Foreldrar Matthíasar voru Gísli Karelsson, f. 25. nóv. 1868, frá Sjávargötu á Eyrarbakka. Hann drukknaði í sjóslysi á Stokkseyrarsundi ásamt sjö öðrum sjómönnum 2. apríl 1908. Kona hans, Jónína Margrét  cÞórðardóttir, f. 25. maí 1870, d. 1951, var frá Vatnsholti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu.                      Þau Þórunn og Matthías byrjuðu strax að búa eftir að þau komu til Eyja, og þann 10. maí 1917 giftu þau sig. Þau fengu inni á Vestri-Gjábakka sem var frekar lítið hús allt á einni hæð. Það var austarlega á Heimaey og stóð við Bakkastíg. Fyrsta barn þeirra Þórunnar og Matthíasar fæddist  þar 17. des. 1916 og fékk nafnið Ingólfur Símon. Frá Gjábakka fluttust þau Þórunn og Matthías að Vestmannabraut 27, í hús sem hét Garðsauki, Það hús átti Árni Jónsson útgerðarmaður. Þar fæddist Sveinn 14. ágúst 1918 og Óskar 22. mars 1921. Frá Garðsauka flytjast þau hjón að Vallarnesi og síðan á Hof við Urðaveg. Á þessum árum eignuðust þau Gísla, fæddur 17. apríl 1925, en hann lést í bílslysi í Reykjavík aðeins 8 ára gamall. Matthildur Þórunn fæddist 13. júní 1926. Árið1928 kaupa þau Byggðarenda minnsta húsið við Brekastíg 15a. Þröngt var um þau í því húsi. Það var gengið inn í það að norðan, inn í litla forstofu eða gang og beint inn af útidyrunum var herbergi þar sem öll fimm börnin sváfu og lítið herbergi inn af því þar sem þau hjón sváfu. Einnig var eldhús, meira var plássið ekki. Vaskahús var í skúr bak við húsið. Eins og sést á þessum búferlaflutningum hefur verið erfitt með húsnæði í Eyjum á þessum árum.       Eins og áður hefur komið fram var Matthías alltaf sjómaður. Fyrst á skútum frá Reykjavík en síðan stundaði hann sjó frá Vestmannaeyjum og var þá skipstjóri eða formaður eins og það var kallað á þessum árum. 

Ari VEVélbáturinn Ari ferst. Þau Þórunn, Matthías og fjölskylda fengu ekki að vera lengi saman í þessu litla húsi, aðeins tvö ár. Þann 24. janúar 1930 drukknaði Matthías þegar vélbáturinn Ari fórst með allri áhöfn. Í Morgunblaðinu 26. jan. 1930 segir m.a. svo frá þessum atburði: „Bátur með 5 mönnum talin af.   Vestmannaeyjum í gær. Í gærmorgun réru flestir bátar hjeðan. Veður var þá dágott, austan kaldi. Veðurspáin kvöldið áður sagði verða mundu hæga SV átt um nóttina, en vaxandi SA átt þegar fram á daginn kæmi. Bátarnir réru allir skammt austur fyrir Eyjar. Voru sumir nýbyrjaðir að leggja línu er hann brast á með austan ofviðri. Var þetta um kl. 8 um morguninn. Snéru þá allir bátar heimleiðis. En svo var illt í sjó og veður mikið, að þeir fyrstu náðu ekki höfn fyrr en um hádegi. Voru þeir svo smám saman að tínast inn þangað til kl. að ganga 8 í gærkvöldi, en þá vantaði þó einn bátinn, ,,Ara” í eigu Árna Sigfússonar og Ólafs Auðunssonar. Voru á honum 5 menn. Hinir bátarnir vissu ekkert um Ara, nema að hann hafi orðið þeim samflota út á miðin. Því miður eru litlar líkur til þess að leit beri árangur.               Veðurhæð var mikil í gærmorgun, en þó bar hitt af hvað vont var í sjó. Gamall reyndur formaður, sem er á traustum og góðum bát, segist aldrei á ævi sinni hafa beitt í annan eins sjó og í gær, og segist hafa sjeð marga sjói svo, að enginn bátur hefði þolað þá.  Nú er hjer dágott veður, hægur sunnan, snjójel öðru hvoru en mikill sjór. Bátar, sem lögðu línur í gær fóru í morgun að leita þeirra.“Finnur Sigmundsson í Uppsölum hélt í tugi ára nákvæmar veðurdagbækur. Í dagbók hans frá árinu 1930 má lesa eftirfarandi :24. janúar. Norðaustan bræla í morgun en um kl. 8 f.h. var komið öskuhífandi rok og fram yfir miðjan dag var afspyrnurok, en dró heldur niður eftir kl. 2 e.h. Um 30 bátar voru á sjó og snéru sumir strax við. En margir komu um og eftir miðjan dag og sumir eftir kl. 6 í kvöld og vantar einn bátinn enn og er kl. orðin 12 í nótt. Lyra kom frá Reykjavík í morgun og liggur hér óafgreidd. Ekki fært að hafa samband við hana en um 3 leytið í dag var náð af Eiðinu farþegum og pósti úr henni.25. janúar. Suðvestan og úr hafi en hægur, dálítil snjókoma. Ekki er báturinn kominn fram enn þá og er hann talinn tapaður. Það var Ari, eign Árna Sigfússonar o.fl. Formaður Matthías Gíslason, og Páll Gunnlaugsson háseti og 3 aðkomumenn.“              

Matthías Gíslason og fjölskyldaBjörn, sonur Sigurðar og Guðbjargar á Hallormstað, sagði Þóru Sigurjónsdóttur löngu síðar að kvöldið sem mótorbátsins Ara VE 235 var saknað hefði Þórunn komið heim til þeirra, en Hallormsstaður var næsta hús fyrir neðan Byggðarenda við Brekastíg. Faðir hans var háttaður og þau hjón komin í rúmið. Hann var á mb. Skallagrími en hann og aðrir bátar, sem höfðu róið þennan dag, voru allir komnir að landi, nema Ari. Bjössi sagði að hann hefði verið tólf ára þegar þessi atburður átti sér stað og hann gæti ekki gleymt því þegar Þórunn stóð við fótagaflinn á rúmi þeirra hjóna og spurði Sigurð hvort hann héldi að báturinn kæmi, hvort einhver von væri. Hún bað hann að segja sér alveg eins og hann héldi. Sigurður svaraði því til að hann héldi að það væri engin von til þess að báturinn kæmi að landi, þeir á Ara voru með veiðarfærin við Bjarnarey og stutt að keyra heim. Þennan dag var eitt versta veður sem komið hefur yfir Eyjarnar.      

Björn sagði Þóru aðra merkilega sögu: Eitt sinn, fyrir mörgum árum, fór Bjössi til Vestmannaeyja, en hann bjó í Reykjavík, og heimsótti Jónu, móður Helgu Ólafsdóttur sem er gift Sigmund Jóhannssyni teiknara. Þau eiga heima á Brekastíg 12, beint á móti Byggðarenda. Jóna sagði honum þá að í janúarbyrjun veturinn 1930, skömmu áður en mótorbáturinn Ari fórst, hafi Þórunn komið yfir götuna til Elínar Vigfúsdóttur, grannkonu sinnar, móður Jónu, með olíustakk sem Matthías átti og bað hana að bæta hann fyrir sig. Þórunn var vel kunnug Elínu enda voru þær báðar frá Eyrarbakka. Elín bætti stakkinn og fór Þórunn með hann heim harla ánægð. Um vorið, eftir að Matthías fórst, fór Þórunn að vaska fisk á Tanganum hjá Gunnari Ólafssyni. Hún fer þá eitt sinn nauðsynja sinna niður í Tangafjöru því að þá voru ekki salerni á vinnustöðum. Þegar hún stendur þarna í fjörunni sér hún sjóstakk í flæðarmálinu sem henni finnst hún kannast við. Hann var með bót á erminni. Hún tók stakkinn og fór með hann heim og sýndi Elínu og spurði hana hvort hún kannaðist við stakkinn. Elín hélt það nú, þetta væri stakkurinn hans Matthíasar sem hún setti á bótina fyrir Þórunni fyrr um veturinn. Þórunn geymdi stakkinn í nokkur ár en svo fór hún með hann og skilaði honum aftur í sjóinn. Henni hefur sjálfsagt fundist hann eiga heima þar.

Þórunn Sveinsdóttir og MatthildurÞegar slysið átti sér stað höfðu þau Þórunn og Matthías búið saman í 14 ár. Hann var 37 ára en hún 36 ára. Börn þeirra fimm voru á aldrinum 4 til 14 ára. Það voru því erfiðir tímar fram undan hjá Þórunni Sveinsdóttur, hún var nú ein með börn sín og ekki var auðvelt að fara frá þeim til útivinnu.               Þórunn fékk styrk eftir slysið og notaði hann, til að stækka Byggðarenda um helming til vesturs. Húsið er enn óbreytt frá þessum tíma og má á því sjá að það hefur ekki verið stórt fyrir stækkunina.               Þegar Þórunn hafði lokið við að byggja við Byggðarenda fór hún að taka menn í fæði, kostgangara eins og þeir voru kallaðir. Þetta gerði hún í nokkur ár til að bjarga sér og var jafnframt með menn í þjónustu, þvoði af þeim og straujaði fötin þeirra. Það var haft eftir þeim sem voru kostgangarar hjá Þórunni á Byggðarenda að þar hafi alltaf ríkt góður andi og verið vel tekið á móti þeim sem þangað komu. 

Margir réttu hjálparhönd Á þessum erfiðleikatímum hjá Þórunni reyndi hún margvíslega hjálpsemi hjá fólki. Árni í Garðsauka bauð t.d. Óskari Matt að borða hjá sér og gerði hann það í einhvern tíma. Ingólfur var sendur á Eyrarbakka um tíma þar sem hann var hjá ömmu sinni og afa en þau bjuggu þá enn á Ósi. Sveinn var tvö ár á Krossi í Austur-Landeyjum og var hann fermdur frá Krosskirkju. Óskar var  Brekastigur séð í austureinnig í sveit á sumrin á nokkrum stöðum á suðurlandi.

Að bjarga sér. Á veturna  þegar skólinn var búinn á daginn, fóru bræðurnir Ingólfur, Óskar og Sveinn stundum niður á bryggju til að tína lifur. Á þessum árum var ekki gert að fiskinum úti á sjó eins og síðar varð algengt heldur var öllum fiski landað óaðgerðum. Þegar bátarnir voru að landa þrýstist oft lifur út úr belgnum á fiskinum og lá eftir á bryggjunni eða rann í sjóinn. Þá var vinsælt hjá peyjum í Eyjum að hirða upp lifrina af bryggjunni eða krækja hana upp úr sjónum og setja hana í fötur og selja. Kennarar drenganna voru ekki hrifnir af þessu háttarlagi, sérstaklega ekki ef þeir komu í skólann angandi af lifrarstækju. Ýmsar skemmtilegar sögur hafa spunnist af lifrartínslunni. Magnús Bjarnason (Muggur) frá Garðshorni sagði Þóru eftirfarandi sögu sem hann hafði eftir Ástu í Garðshorni, móður sinni:               „Einn dag er Ásta að ganga upp Heimagötu en Óskar, sem þá var smápatti, að labba heim til sín að Vallarnesi, næsta húsi við Garðshorn. Tóku þau tal saman. Óskar var grútskítugur, búinn að óhreinka fötin sín og það var vond lykt af honum. Ásta spyr hann: Hvað varst þú eiginlega að gera, drengur? Ég var niður á bryggju að tína lifur, svaraði Óskar. Hann var með höndina í vasanum og lét glamra í peningunum. Ásta spyr hann þá hvað hann ætli að gera við þessa peninga sem hann sé með í vasanum. Ég ætla að kaupa inniskó og gefa henni mömmu minni.  

Óskar og bræður hans byrjuðu snemma að taka til hendinni og voru hörkuduglegir að bjarga sér og draga björg í bú. Eitt skipti sem oftar fór Óskar niður á bryggju og þar var honum gefin hnísa sem þótti mikil búbót á þessum árum því mikið kjöt er á þessum smáhvölum. En það var þrautin þýngri að koma hnísunni upp á Brekastíg fyrir lítinn snáða. Óskar byrjaði þó að draga hana heimleiðis og var búinn að drösla henni upp að Vöruhúsi við Vestmannabraut þegar hann stoppar og hvílir sig enda alveg að gefast upp og langur vegur enn eftir að draga hana upp Skólaveg og hálfan Brekastíginn. Þar sem hann situr þarna og hvílir sig,  koma til hans tveir menn sem höfðu séð hann með hnísuna og vissu hvernig honum leið. Þeir buðust til að bera fyrir hann hnísuna upp Skólaveg og inn Brekastíg, heim að Byggðarenda þar sem tekið var við henni fegins hendi. Þetta atvik festist í minni Óskars sem sagði oft þessa sögu og var alla tíð þakklátur þessum mönnum sem þarna komu til hjálpar. Annar þeirra var Þorsteinn Sigurðsson frá Melstað, seinna á Blátíndi, útgerðarmaður í Eyjum og var einn eiganda Fiskiðjunnar hf. Ekki er vitað hver hinn maðurinn var.      

En það voru fleiri góðir menn sem réttu fjölskyldunni á Byggðarenda hjálparhönd. Sigurður Bjarnason í Svanhól var formaður á bát í Eyjum. Hann bauðst til að fara með línustubb fyrir Þórunni og fékk hún fiskinn sem á hann kom og er haft eftir Óskari Matt að Sigurður hafi bæði skaffað línustubbinn og beituna, en Þórunn og elstu strákarnir beittu . Stubbar voru líklega 150 til 200 krókar. Eitt sinn tapaðist stubburinn en samt fékk Þórunn 8 fiska af stubbnum. Svona reyndist Sigurður henni vel.

Sonarmissir. Gísli, sonur Þórunnar, var aðeins 8 ára er hann lést í sviplegu bílslysi í Reykjavík 27. maí 1933. Hann var, þegar þetta gerðist, hjá föðurömmu sinni, Jónínu M. Þórðardóttur sem bjó að Bergstaðarstræti 30, Atvik voru þau að Sveinn, bróðir Gísla, hafði verið í sveit hjá bónda á Krossi í A-Landeyjum sem Björn hét og var hann að flytja búferlum þetta vor að Horni í Skorradal. Ætlaði Sveinn að fylgja honum þangað. Svein langaði að hitta bróður sinn í Reykjavík og varð úr að þeir komu við í Bergstaðastrætinu á leiðinni vestur svo að bræðurnir gætu hist. Má nærri geta að þar urðu fagnaðarfundir. Gísla var gefinn peningur á kveðjustund. Þegar bíllinn er að fara af stað missir hann peninginn og ætlar að ná honum upp en verður þá undir bílnum sem var með búslóðina. Hann dó samstundis. Sveinn, bróðir Gísla, hefur því verið áhorfandi að þessu hræðilega slysi. Þetta voru vitaskuld þungbærar fréttir fyrir Þórunni, aðeins þremur árum eftir að hún missti Matthías í Ara-slysinu.

Fjölskyldan ByggðarendaBirtir til.  Öll él birtir upp um síðir. Þórunn átti eftir að eiga bærilega ævi þegar tímar liðu fram. Hún giftist aftur Sigmari Guðmundssyni frá Miðbæ á Norðfirði, f. 28. ágúst 1908, d. 4. júlí 1989, dugmiklum sjómanni. Sigmar var kostgangari hjá henni þegar þau kynntust. Þau giftu sig á gamlársdag 1939. Sigmar var þá sjómaður en varð síðar einnig útgerðarmaður. Gerðu þeir Óskar Matt, stjúpsonur hans, út  m.a. Leó VE 400. Sigmar og Þórunn eignuðust tvo börn saman, Gísla Matthías Sigmarsson, og Guðlaugu Erlu Sigmarsdóttur, Auk þess ólu þau upp skrifara þessa þáttar, Sigmar Þór Sveinbjörnsson, til fjórtán ára aldurs, eða þar til Þórunn lést.               Þau Þórunn og Sigmar bjuggu á Byggðarenda til ársins 1954, en þá fluttu þau að Sunnuhvoli við Miðstræti 14 þar sem Þórunn bjó til dauðadags.

Góðar minningar  Þegar ég man fyrst eftir mér hjá Þórunni ömmu minni og Sigmari, bjuggum við á Byggðarenda við Brekastig 15a. Þá vann hún á stakkstæði fyrir ofan kirkju og var þá einnig með nokkra menn í þjónustu. Í minningunni finnst mér ég muna eftir Þórunni ömmu minni sífellt að vinna við þvotta og við að búa til mat. Hún gerði slátur sem hún setti í súr, hún saltaði kjöt í tunnu, hún átti saltaða kæsta skötu og sólþurkaðan saltfisk, ýsa og lúða hékk oft á nöglum utan á snúrustaur við húsið, meira segja saltaði hún fýl í tunnu. Það er eini skugginn sem fellur á góðu minningarnar sem ég á frá matargerð hennar. Mér bauð við þegar fýll var soðinn og reynt að fá mig til að borða hann. Að öðru leyti bjó hún amma mín til mjög góðan mat. Þegar þau Sigmar og Þórunn fluttust að Sunnuhvoli hætti hún þjónustustörfum enda heilsan þá farin að bila. En hún kvartaði ekki, var alltaf sístarfandi, með handavinnu eða við heimilisstörf enda bjó hún sérlega fallegt heimili á Sunnuhvoli þar sem mikið var af ísaumuðum myndum, koddum, dúkum og ýmsu fleira eftir hana.  Síðustu árin sem hún lifði átti hún við heilsuleysi að stríða enda búin að ganga gegnum marga erfiðleika og vinna mikið alla tíð. Ég hugsa ávallt til hennar með þakklæti og hlýhug fyrir allt það sem hún kenndi mér og gerði fyrir mig þau ár sem við áttum saman. Hún var indæl kona sem öllum, sem henni kynntust, þótti vænt um. Þórunn Júlía Sveinsdóttir lést 20. maí 1963 tæplega 69 ára. 

Myndir: 1. Þórunn Sveinsdóttir, Nr. 2. Ari VE, Nr.3. Matthías Gíslason og Þórunn Sveinsdóttir og drengir þeirra  Ingólfur, Óskar og Sveinn. Nr.4. Þórunn og Matthildur Matthíasdóttir. Nr. 5. Brekastigur um 1950 húsið Hallormstaður lengst til hægri á myndinni. Nr. 6. Fjölskyldumynd Þórunn, Sigmar og börn þeirra Erla og Gísli.

 Sigmar Þór Sveinbjörnsson.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Bestu þakkir fyrir þessi fróðlegu skrif, Sigmar.  Það er öllum hollt að lesa um þá hörðu lífsbaráttu sem forfeður okkar háðu fyrir ekki svo mörgum árum síðan.    -   Finnst svolítið slæmt að sjá að þú kunnir ekki að meta fýlinn.

Kær kveðja til þín og þinna úr Víkinni.

Þórir Kjartansson, 13.1.2011 kl. 21:59

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Þórir og takk fyrir innlitið og þessa athugasemd. Já það hefur ekki allataf verið auðvelt lífið hjá forfeðrum okkar, og það er rétt sem þú segir að það er ekki langt síðan lífskjör voru þannig á okkar annars ágæta landi.

Það er þetta með fýlin, það var erfitt að læra að borða hann og vandist aldrei, en öðrum fjölskyldumeðlimum þótti hann góður

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 13.1.2011 kl. 22:15

3 identicon

Góður pistill,það er greinulegt að þú leggur mikla vinnu í þín skrif við að afla heimilda,svoleiðis þarf það að vera svo vel fari.Það urðu mörg börnin í Eyjum föðurlaus á árum áður þegar kanski tveir til þrír bátar fórust á einni vertíð.kv

þorvaldur hermannsson (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 22:54

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigmar.

Blessuð sé minning ömmu þinnar.

Ég er mikils fróðleiks vísari eftir að hafa lesið þennan pistil, kærar þakkir, en ómælda virðingu mína eiga forfeður sem barist hafa til þess lifs sem við lifum í dag.

kveðja.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.1.2011 kl. 00:09

5 Smámynd: Sigurlaugur Þorsteinsson

Sæll Sigmar.

Á stundum setur mann hljóðann er maður fræðist um sögu áa okkar,Sigurlaug amma á Horninu missti 2 börn sömu nóttina úr spönsku veikinni,en lífið hélt áfram og baráttan hörð,fólkið okkar tók lífinu með æðruleysi og einurð,við aðstæður sem buðu uppa langann vinnudag og oftast í vosbúð og kulda,en samt virtust manni þessar konur og menn hafa ótakmarkaða hlýju og ást að gefa þrátt fyrir hrjúft yfirbragð,líkt og segir í vísu eignaðri Bólu-Hjálmari "Að guð á margann gimstein þann/sem glóir í mannsorpinu.

Hafðu þökk fyrir greinagóða samantek um líf Þórunnar Sveinsdóttur,hvurdagshetju sem vakir í minningu þeirra sem þekkja til.

Kv Laugi

Sigurlaugur Þorsteinsson, 14.1.2011 kl. 23:59

6 identicon

SÆLL Frændi ég kynntist Ömmu þinni þegar ég heimsóti hana með Mömmu eða Ömmu og seinna með BJÖRK að hitta Erlu það voru góðir tímar .Langafi okkar byggði 'Osinn að mestuleiti úrtimbri úr franskri skútu sem strandaði er ekki viss hvar hann var fyrstur að nota fiski slor sem áburo í kartöflugaroa 

Helga Pétursdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 19:04

7 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Þorvaldur og Guðrun María og Laugi, takk fyrir innlitið og athugasemdir. Já það er fróðlegt að kynna sér lífsbaráttu þess fólks sem lifði hér í Eyjum og reyndar til sveita ekki síður en við sjávarsíðuna, þetta fólk átti mjög erfitt líf sérstaklega á árunum 1900 til 1940. Ég hef lengi haft áhuga á að kynna mér sögu þessa fólks þó aðalega þeirra sem bjuggu í Eyjum og á Eyrarbakka og Stokkseyri. Saga sjóslysa er ótrúleg á þessum stöðum með tilheyandi erfiðleikum fyrir þær fjölskyldur sem urðu fyrir því að missa ástvini sína. Kannski er það þessi saga sem vakið hefur áhuga Vestmannaeyinga á öryggismálum sjómanna.

 Það kemur mér skemmtilega á óvart hve margir lesa þessa grein þó hún sé nokkuð lönng en  hátt í 500 flettingar hafa komið inn í dag 

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 15.1.2011 kl. 21:54

8 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Helga frænka, já ég man vel eftir þegar Mamma þín og Amma voru að koma í heimsókn til Þórunnar.

Sveinn á 'Osi var fyrstur manna til að nota þara eða sjávarþang í kartöflugarðinn sinn á sínum tíma og þótti þá snarklikkaður. Það breyttist þegar hann tók upp um haustið þá hafði hann langmesta uppskeru. Ekki leið á löngu þar til allir á Bakkanum og víðar notuðu þang fyrir áburð með tilætluðum árangri.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 15.1.2011 kl. 22:02

9 identicon

Blessaður frændi, þú segist hafa áhuga á sögum manna og kvenna ,sem bjuggu í Eyjum ,Eyrarbakka eða Stokkseyri á fyrri tíð.    Ég fór af tlviljun inná Heimaslóð. is, ég geri ráð fyrir því að þú hafir oft kíkt þar inn.   Það sem heillaði mig núna var , skólablaðið Blik, sem allir Eyjamenn þekkja, það er aðgengilegt þar frá upphafi.    Ég las ma. grein sem kallast "Tóta í Uppsölum" mig minnir að blaðið sé frá árinu 1956 eða 1957.  Það kennir margra áhugaverðra grasa í þessum blöðum.  Þetta er vel upp sett og mjög aðgengilegt   Kveðja.

Björk Pétursdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2011 kl. 23:10

10 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Björk frænka og takk fyrir innlitið og athugasemdir þínar. já ég er sammála þér að Blik er með margar áhugaverðar greinar og fróðleik. Ég á nokkuð mörg eintök af Blik og blaða oft í þeim. Ég vissi reyndar ekki að það væri komið allt inn á Heimaslóð. Ég ætla að skoða þetta við tækifæri.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 21.1.2011 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband