Færsluflokkur: Bloggar
5.3.2014 | 14:09
Löng orð
Stundum koma upp ýmsar dellur eins og að reyna að búa til löng orð, eitt sinn voru þetta talin vera með lengstu orðum sem til eru í íslensku, set þetta hér inn til gamans og kannski koma einhverjir hér inn og setja fleiri enn lengri orð í athugasemdir.
Réttarveggjarvasapelafyllirísrómantík, og Vaðlaheiðavegavinnuverkfærageymsluskúrslyklakippuhringurinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2014 | 14:07
Saga Skaftfellings
Saga Skaftfellings ágrip, er fróðleg lesning um skip sem á sér merkilega sögu. Ritið er gefið út og skrifað af þeim bræðrum Arnþóri Helgasyni og Sigrtygg Helgasyni en faðir þeirra átti og gerði út skipið Skaftfelling VE.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.3.2014 | 17:23
Steindór Árnason stýrimaður á Vetti
Blíða er þarna á sjónum á síðutogaranum Vetti . Norðfirðingurinn Steindór Árnason við netaviðgerðir um borð í Vetti. Myndin líklega tekin sumarið 1957 en Steindór var lengi stýrimaður á því skipi.
Steindór var einnig á Hvalveiðibátunum og í mörg á skráningastjóri hjá Siglingastofnun, en þar kynntist ég hónum. Skemmtilegur kall sem nú er á eftirlaunum og býr í Kópavogi.
Mér er sagt að myndina hafi tekið Albert Kemp fv. skipaskoðunarmaður á Fáskrúðsfirði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.2.2014 | 21:12
Vélskólinn í Vestmannaeyjum 1992
Nemendur og kennarar á haustönn Vélskólans í Vestmannaeyjum 1991 - 1992.
Vantar nöfnin nema kenararnir Karl Marteinsson sem kenndi smíðar er lengst til vinstri á myndinni og vélfræðikennarinn Kristján Jóhannesson er lengst til hægri. Gaman væri að fá nöfnin á þessum hóp vélstjóra í Eyjum. Myndirnar eru úr Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1992.
Kristján vélfræðingur er hér niður við Vestmannaeyjahöfn.
Kristján Jóhannesson vélfræðingur sendi mér eftirfarani og þakka ég honum kjærlega fyrir:
Sæll Simmi og takk fyrir síðast. Vélfræðingurinn var nú að kenna þessum eðaldrengjum og ætti að vita nöfnin þeirra en þurfti að grafa töluvert enda svolítill tími liðinn síðan. Ég held að það sé rétt hjá mér talið frá vinstri sé Karl G. Marteinsson kennari, Sigurður Ó. Kristjánsson, Unnar Víðir Víðisson, Zóphónías Pálsson, Guðmundur Óli Sveinsson, Vilhjálmur Bergsteinsson, Jón Berg Sigurðsson, Jens Jóhann Bogason, Hjálmar Kristinn Helgason, Guðfinnur A. Kristmannsson, Magnús Ingi Eggertsson, Ívar Ísak Guðjónsson, Gylfi Anton Gylfason og Kristján Jóhannesson kennari.
Kveðja, Kristján Jóhannesson Bjarkarási 1, Hvalfjarðarsveit.
Bloggar | Breytt 5.3.2014 kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2014 | 20:47
Skipshöfnin á Gullberg VE í vertíðarlok 1979
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2014 | 21:56
Gamalt. Vestfirzkt Málfar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2014 | 12:17
Vinnuhagræðing um borð í togbátum
Úr sjómannablaðinu Víking frá 1971, gaman að rifja upp þessa hugmynd mína og grein sem ég skrifaði í Víkingin 4.-5 tölub. 1971 þegar ég var í Stýrimannaskólanum, eða fyrir 42 árum .
Eftir að hafa hlustað á fyrirlestur um vinnuhagræðingu í Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum, fór ég að hugsa um það hvort ekki væri hægt að breyta eithvað vinnubrögðum um borð í togbátum. Þetta var útkoman, ég var kannski ekki mikill teiknari en þetta þótti vera nogu gott til að skýra málið. Það skal tekið fram að á þessum tíma voru flest allir bátar með síðutog sem skapaði hættu fyrir þá sem unnu við aðgerð stb. megin í bátnum ef trollið festist í botni. Það urðu mörg alvarleg slys og dauðaslys á þessum árum þegar rúllur og toggálgar voru að slitna upp þegar skipin lentu í slæmum festum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2014 | 23:24
Víking Gúmmíbjörgunarbátar auglýsing
Svona voru Víking Gúmmíbjörgunarbátar auglýstir hér áður fyr, en þarna er sagt frá fyrstu björgun þar sem fjöldi manna þar á meðal mörg börn bjargaðist af farþega skipinu Skagerak. Fróðlegt að lesa þessa auglýsingu.
Fyrirtækið Víking hefur á undanförnum árum verið í forustu hvað varðar nýungar í framleiðslu öryggisbúnaðar fyrir skip af öllum stærðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2014 | 20:23
Gandí VE og Katrín VE
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2014 | 11:33
Þekkir einhver skipið ??
Þekkir einhver þetta skip sem er að sigla inn í Vestmannaeyjahöfn ?.
Er það ekki með merki Hafskips ??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)