Færsluflokkur: Bloggar

Þjóðviljinn fimmtudagur 5. júlí 1973. Eldgosinu í Vestmannaeyjum er nú lokið.

Eldgosinu í Vestmannaeyjum lokið

Þorsteinn Lúter og Sigurður Óskarsson. Kirkjan og Þjóðin

Þorsteinn Lúter og Sigurður Óskarsson

Dagblaðið Vísir 16. apríl 1977

 


Nýr Gullfoss farþegaskip á Akranesi

sumarferð 020
 
 
Nýr Gullfoss farþegaskip, nokkuð mikið minna en gamli Gullfoss sem Eimskip gerði út fyrir margt löngu. Þessi verður gerður út frá Akranesi var mér sagt, og á að sigla með farþega um sundin blá og getur leigt út sjóstangir ef farþegar eru á þeim buxunum.
 
sumarferð 019
 
Þetta er nú frekar gamalt skip en ég skoðaði það ekki að innanverðu, þannig að ég veit ekki hvernig það aðstaða farþega er inni í skipinu.  
 
 
sumarferð 016sumarferð 014
 
Mikið væri gaman ef hægt væri að flitja inn í landið nýtt farþegaskip sem gengdi svipuðu hlutverki og þessi Gullfoss.
 

Ferð í Borgarnes og nágrenni

sumarferð 001sumarferð 007

 Í heimsókn í sumarbústaðinn hjá Guðlaugu og Friðrik Inga.

sumarferð 006sumarferð 004
 
 Leitað að stæði til að fá að leggja hjólhysinu einhverntíman í sumar :-)
 
sumarferð 011sumarferð 012

 Hátíð var í Borgarnesi og við áttum smá erindi í Gulahverfið :-)


Vonandi næst skipið út sem fyrst

Frétt af mbl.is

Kafarar á leið út í skipið
Innlent | mbl.is | 2.7.2014 | 20:45
Frá strandi hvalaskoðunarskipsins Hauks árið 2012
Kafarar eru nú á leið út að hvalaskoðunarskipinu Hauki til þess að skoða botn skipsins. Ætlunin er að draga það á flot skömmu fyrir miðnætti en þá fer að flæða að skipinu. Búið er að koma fyrir dælum um borð. 

 

 . Gott að engin slys urðu á fólki í þessu óhappi við Lundey. Vonandi næst skipið út sem fyrst og án þess að laskast mikið. Mikil verðmæti er í þessum gömlu téskipum sem Norðursigling hefur gert upp og haldið við af miklum myndarskap.


mbl.is Kafarar á leið út í skipið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gosloka er nú minnst í Eyjum

EYJAR-4

 Það er rétt að halda minningu þessa atburðar á lofti þegar eldgós hófst á Heimaey þann 23 janúar 1973. Þetta er upplifun og minningar sem maður man mjög vel og gleymir sjáfsagt aldrei.

EYJAR-17

 Þessar myndir af eldgosinu í Vestmannaeyjum tók Jóhann Pálsson skipstjóri og útgerðarmaður, en hann gerði lengi út bát sem hét Hannes lóðs.

EYJAR-5 

 Ótrúlegar myndir sem Jóhann Pálsson tók  í Eyjum 1973

EYJAR-20 

 Þetta er sérstök mynd tekin yfir höfnina, þar sem virðist vera rólegt en er auðvitað ekki, því mikill hávaði og drunur komu frá eldstöðvunum.

EYJAR-26 


Drangjökull með tunnufarm

Drangjökull með tunnufarm

 

 Drangjökull hlaðin síldartunnum myndina tók Sigurður Sigurðsson frá Stakkagerði.

 

 Herjólfur í felulitum

Gamli Herjólfur í felulitunum þá í eigu Sænska hersins að mig minnir. 


Myndir teknar yfir sama svæði

Untitled-1 copy

 

 Myndir sem Ingibergur Óskarsson setti saman, Hásteinn er fyrir miðri mynd. 

 


Handboltastelpur í Þór, mynd tekin um 1939.

Handboltastelpur í Þór Vestmannaeyjum, t.f.v: Maggý Sigurjóns, Jóhanna á Reykjum, Magga í Hlíðardal, Gógó á Bergi, Lauga Jóns og Svanhvit Friðriksdóttir Skipholti.  . Myndin er tekin um 1939  
 
 
handbolti 1939

Vesturbær Heimaeyjar í byggingu. Myndir Sigurgeir Jóhannsson.

 Nú er nóg komið af gömlum eyjamyndum frá mér í bili, þetta eru síðustu myndirnar sem ég hef skannað frá góðum vini mínum og gömlum skipsfélaga Sigurgeir Jóhannsyni,   Sigga kokk eins og hann er oftast kallaður. Ég þakka honum kærlega fyrir að hafa leyft mér að skanna allar þessar myndir og setja þær hér á netið, vonandi mörgum til ánæju. Allavega hef ég haft gaman af því að skoða þessar gömlu myndir frá minni heimabyggð.

 

 Sigurgeir jóhannsson 21

 

 Vesturbær Heimaeyjar í byggingu, þessi mynd er nokkuð gömul. Hásteinn er í forgrunni.

 Sigurgeir Jóhannsson kokkur 

 

 Bátar á bóli myndir Sigurgeir Jóhannsson (Siggi kokkur)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband