Færsluflokkur: Bloggar

Heimaey 1973

Afrit af EYJAR-14 Heimaey 1973 húsin á kafi í vikri. Ógleymanlegir tímar.


Til Vonarinnar

Til Vonarinnar.

Lífsins vaki, vonin milda
vekur gleði og efnd á borði,
annars væri einskis virði
að ætla sér að gefa og njóta.
Hún er guðsgjöfin besta ,
göfgar, fegrar, eykur þrekið,
ræður dauðans rún og sorgar,
reisir hallir sólskinsbjartar.

Þorssteinn L. Jónsson


Jákvæð og góð frétt

Þetta er góð og jákvæð frétt að nú skuli vera ákveðið að ná mb. Jóni Hákoni upp. Vonandi gengur vel að ná bátnum upp af hafsbotni þannig að hægt verði að gera nauðsynlegar rannsóknir á bát og búnaði hans.

Það er furðulegt að ekki skuli vera búið að halda sjópróf í svo alvarlegu sjóslysi.         Hvað ætli valdi því að sjópróf er ekki haldið ?

 


mbl.is Stefnt að björgun bátsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallegt útsýni frá Skipalóni í dag

skiplón útsyni 001skiplón útsyni 002

Það er oft fallegt útsýni frá Skipalóni í Hafnarfirði á góðviðrisdögum. Þessar myndir tók ég áðan af svölunum hjá okkur að Skipalóni 14.

skiplón útsyni 004skiplón útsyni 005

Hér sét yfir hafnarsvæðið.

skiplón útsyni 006


Manni bjargað við Reynisdranga

Þessi úrdráttur úr dagbók Danska Péturs VE 423 rifjaðist upp þegar maður heyrir um þetta skelfilega slys í Reynisfjöru, þetta er í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1986.

Úr dagbók Danska Péturs VE . Sunnudagur 15. sepember 1985.                                     Á veiðum fyrir vestan Portland um nóttina og út af Pétursey. Drógum austur á vík um morguninn. Fengum tvisvar 1200 kg af ýsu á grunn við Vík. Vorum að toga austast á Víkinni 5,6 sjómílur í Reynisdranga , þegar Vestmannaeyjaradíó kallaði á 16 og bað um aðstoð að leita af manni í froskbúningi sem hafði verið að kafa vestan við Reynisdranga og átti í einhverjum erfiðleikum.  Vindur norð-vestan 5-6. Brim við ströndina. Hífðum strax og tókum allt upp í rennu. Austur við Reynisdranga sáum við fuglager og á sömu stundu var kallað að flugvélin sæi manninn. Keyrðum við á staðinn og var maðurinn kominn um borð kl. 17:50.                                        Keyrðum til Eyja og vorum komnir í höfn 2140. Tilkynningaskyldan send til Eyja.

Maðurinn sem við björguðum heitir Björn Guðmundur Markússon . Hann var kaldur en hress að öðru leyti.Honum var gefið heitt að drekk og fór svo í koju og svaf þar til við komum til Eyja. Skipstjóri á Danska Pétri 

Skipstjóri Jóhann Guðjónsson.


Njótum dagsins, við eigum hann.

Einn góður vinur minn sendi mér þetta ljóð

Njótum dagsins, við eigum hann

Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.

Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.

Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.

Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.

Höfundur óþekktur


Fallegt veður við Reykjavíkurhöfn

hö 006

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Það var fallegt að horfa yfir Reykjavíkurhöfn í góða veðrinu í gær.

hö 007


Skipshöfnin á Engey RE á vetrarvertíð 1969

Skipshöfn á Engey


Heilræði Unu Jónsdóttur skáldkonu


Þetta er úr eldgömlu Bliki

Drykkjumaður bað Unu Jónsdóttir eitt sinn að senda sér vísu sem hún gerði.
Vísuna kallaði hún Heilræði.

Heilræði

Hættu að drekka að heimsins lyst,
hvað sem að þér gengur.
Í þann hópinn ertu víst,
alltof góður drengur.

Það er versta þjóðarböl,-
þar um vil ég ræða,
verndi þig frá vínsins kvöl
voldugur faðir hæða.

Una Jónsdóttir skáldkona.


Skipshöfnin á m.b. Halkion VE 205 sumarið 1931

Skipshöfnin á Halkion 1931 - Afrit

Það er gaman að skoða þessar gömlu myndir af sjómönnum sem settu svip sinn á Eyjarnar á sínum tíma. Þeir hafa gefið sér tíma til að klæða sig upp í spariföt og fara til alvöru ljósmyndara. Þeir eru flottir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband