Færsluflokkur: Bloggar
20.5.2010 | 21:25
Stundum fær maður uppbyggjandi tölvupóst
- Guð mun ekki spyrja hvernig bíl þú keyrðir, heldur hversu margir fengu far með þér sem ekki áttu bíl.
- Guð mun ekki spyrja hversu margra fermetra hús þitt var, heldur hversu marga þú bauðst velkomna inn.
- Guð mun ekki spyrja þig um fötin sem héngu í fataskápnum, heldur hversu marga þú fataðir.
- Guð mun ekki spyrja hversu há laun þú hafðir, heldur hvort þú hafðir gert einhverjar málamiðlanir til að öðlast launin.
- Guð mun ekki spyrja um hvaða starfsheiti þú hafðir, heldur hvort þú hafir unnið vinnuna eftir bestu getu.
- Guð mun ekki spyrja hversu marga vini þú áttir, heldur vinur hve margra þú varst.
- Guð mun ekki spyrja í hvað hverfi þú bjóst, heldur hvernig þú komst fram við nágrannana.
- Guð mun ekki spyrja um litarhátt þinn, heldur hvernig persóna þú varst.
- Guð mun ekki spyrja af hverju þú varst svona lengi að leita að frelsinu, heldur mun hann taka þig með gleði inn í þær vistaverur á himnum sem hann hefur búið þér en ekki að hliði heljar.
- Guð þarf ekki að spyrja þig hversu mörgum þú sendir þetta, hann veit nú þegar þína ákvörðun.
Með bestu kveðju /venlig hilsen
Harpa Sigmarsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2010 | 22:36
Eldgosið 1973
Vestmannaeyjahöfn 1973.
Myndina tók Jóhann Pálsson, þarna sést gosið í Eldfelli frá Friðarhöfn.
Vinnslustöðin og vigtin hjá Torfa Haralds er til vinstri á myndinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2010 | 23:02
Gamli Lóðsinn við hafnargarðin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2010 | 10:31
Þrjár fallegar myndir frá Heymaey
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2010 | 22:59
Herjólfsdalur í vetrarbúningi
Herjólfsdalur að vertarlagi snjór yfir öllu, dalurinn er ekki síður fallegur á veturna.
Dalfjall og Blátindur og neðst í hægra horninu er Fjósaklettur, þar sem brennan er staðsett á þjóðhátíð og flegeldasýning .
Bloggar | Breytt 14.5.2010 kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.5.2010 | 22:09
Þjóðhátíðarmyndir
Hér koma tvær Þjóhátíðarmyndir sem Jóhann Pálsson tók.
Nú hef ég fengið athugasemd hér fyrir neðan frá frænku minni Höllu Pétursdóttir, sem fræðir okkur á því að þessi mynd sé frá árinu 1966, Takk kjærlega fyrir þetta Halla.
Glæsileg Víkingaskip sennilega á þjóðhátíð hjá Týr
Ljóð eftir Sigurbjörn Sveinsson
Ó hvar um alla veröld víða
svo vegleg sönghöll finnst,
sem hér í skjóli hárra hlíða
í Herjólfsdalnum innst ?
Þar kátir fuglar kvaka
frá klöpp og sjó,
og breiðum vængjum blaka
í bjargató.
Hér syngur hver með sínum rómi
og sólin roðar tjöld
og dalur fyllist fögrum hljómi
um fagurt sumarkvöld
og börn með ljúfu lyndi
Þar leika sér.
Hvar er að finna yndi,
ef ekki hér ?
Bloggar | Breytt 14.5.2010 kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.5.2010 | 21:50
Íþróttaálfurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.5.2010 | 22:32
Byggðasafnið í Garðinum er til fyrirmyndar
Á sunnudaginn fórum við hjónin í Garðinn þar sem þessi glæsilegi viti er staðsettur, hann heitir Garðskagaviti og er byggður 1944, ljóshæð vitans er 24 m. Lengra í burtu má sjá gamla Garðskagavitan sem enn er haldið við.
Þarna við vitan er Byggðarsafn Garðahrepps. Þetta safn er virkilega gaman að skoða, þarna eru gamlir bátar, líkön og fjöldin allur af gömlum vélum og því sem vélum er tengt, eins og skrúfur, öxlar og gírar af fjölmörgum tegundum.
Hér er Kolla og Gils Guðmundsson við einn bátinn en hann er búinn seglum og árum.
Þó nokkur líkön eru á safninu bæði af vélskipum og segl og árabátum og svo eru þeir einnig nokkrir í fullri stærð. Mikið og gott myndasafn er þarna sem gaman er að skoða.
Hér má sjá mikin fjölda smávéla sem allar eru eins og nýjar og margar þeirra eru gangfærar, ótrúlega vel gerðar upp og ekki rykkorn á einni einustu vél frekar en öðru á þessu safni.
Hér má sjá netasteina og snellur eða færarúllur af gömlu gerðinni ásamt fleiri hlutum. Og ég mátti til að taka mynd af gömlu talstöðvunum og þarna á miðri mynd má sjá tæki sem kallað var TRILLIR og margir sjómenn kannast við.
Á borðinu eru önglabúnt og áhnýtingarstokkar sem notaðir voru til að hnýta á spaðaöngla og hamptauma, þetta notuðum við peyjarnir ( frændur mínir) í gamla daga því öðru vísi höfðum við ekki afl til að herða hnútinn á önglinum, Stjáni, Sigurjón og Matti kannast örugglega við þetta apparat. Lagningskallinn er vist með þeim fyrstu sem notaðir voru við lagningu línu, seinna urðu þeir tvöfaldir, og á honum hangir stokktré sem lína var sett upp á. Mennirnir á myndinni heita Gils og Gústi.
Þarna sá ég útvarp eins og ég átti á unglingsárum, en myndin sýnir aðeins hluta af útvarpssafninu sem þarna er og sama er að segja um símana.
Þessar myndir sýna aðeins brot af því sem á þessu safni er, það er virkilega þess virði að fara í Garðinn og skoða þetta safn, það er bæði fjölbreytt og sérstaklega snyrtilegt í alla staði. Garðbúar og starfsfólk safnsins meiga vera stolltir af þessu glæsilega Byggðasafni .
Ekki skemmir það að uppi í safninu er kaffistofa sem gaman er að komi í og njóta þess að fá sér gott kaffi og meðlæti, með útsýni út á sjóinn og nálagð við þessar fallegu vitabyggingar.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.5.2010 | 23:11
Sóknarnefndarfundur hjá Sigga Gluggasmið
Í síðustu viku var ég staddur vegna vinnu minnar í Vestmannaeyjum, þar fór ég á skemmtilegan fund með þessum heiðursmönnum. Þar var boðið upp á kaffi og með því, ásamt fróðlegu spjalli um líðandi stund og um nánustu framtíð.
Þarna voru mættir t.f.v: Skæringur Georgsson, Helgi Georgsson, Óskar Sigurðsson, Sigurður Óskarsson formaður, Haukur Jóhannsson, Jóhann Jónsson (Listó) og Guðmundur Valdimarsson.
Það hefði verið gaman að birta hér fundargerð þessa fundar, en því miður er hún ekki gerð opinber þar sem þetta er að hluta til einkafundir.
Takk fyrir mig, hlakka til að mæta á fund við fyrsta tækifæri.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)