Gömul mynd frá Eyjum

Siggi jó kokkur (2)


Reykjavíkurflugvöllur í kvöld, gaman að skoða þessar DC 3 flugvélar

IMG_5122IMG_5120IMG_5126IMG_5131


Elliðaey VE sökkt í Halldôrsskoru

Elliðaey  sökkt 4Elliðaey sökkt í Halldórsskoru


Læra að taka lag og mið

Þetta er vel ort og segir hvað sjómenn þurftu að kunna hér áður fyr :-)

Lærði að taka lag og mið,
lenda, stjaka, halda við,
skorða, baka, hitta hlið,
hamla , skaka og andóið –

Hausa, fletja, slíta slóg,
sleddu hvetja, ausa sjó,
fast að setja, fíra kló,
fella net og splæsa tó –

Grunnmál taka, leggja lóð,
lúðu flaka, slæja kóð,
seglum aka, beita bjóð,
blóðga, kraka, róa í njóð.

( Oddarímur sterka ) Örn Arnarson


Er hins fagra ég eitt sinn naut

Er hins fagra ég eitt sinn naut
í orðum þínum hlýjum,
fannst mér sólin finna braut
fram úr þrumuskýjum.
EMJ

Olíubryggjan inni í Botni

Olíubryggjan inn í botniÞessi mynd hefur áður komið hér á bloggið mitt, en hún vekur upp margar góðar minningar frá gömlum tíma  þegar Botninn og fjörurnar voru leiksvæði peyjanna í Eyjum.


Við skulum ætíð verkin vinna

Við skulum ætíð verkin vinna
vera í hverju starfi trú,
og sigurgleði síðar finna.
Í sameiningu ég og þú.

(Sólveig frá Niku)


Hefði gamalt ráð sjómanna getað bjargað bátnum ?

Þann 14. apríl 1992 skrifaði ég grein í Morgunblaðið um gamalt ráð sjómanna til að bjarga skipum sem fá bráðan leka. Síðan ég skrifaði greinina hafa margir bátar sokkið eftir að hafa keyrt á rekald eða steitt á skeri og fengið gat á bol undir sjólínu. Nú síðast sökk bátur skammt undan landi við Hvammstanga í fyrrinótt. Það er spurnig hvort þetta gamla einfalda ráð eldri sjómanna hefði getað bjargað þessum bát að landi ? 
eiginh922 (2)eiginh921 (2)


Nýsmíði á Óseyrarbryggju Gunna Beta

IMG_5032IMG_5036 Nýr glæsilegur plastbátur á Óseyarbryggju. Nafn Gunna Beta st 60 sk.nr. 2951 og í baksýn má sjá nýtt tréspýtuhús í smíðum fyrir Hafró.


Það er komið líf við Óseyrarbryggju í Hafnarfirði

IMG_5035Það lifnar allt við á Óseyarbryggju þegar strandveiðarnar byrja.Þá fara trillukarlar til veiða og koma að landi seinnipart dags með fiskinn til löndunar. IMG_5042Það er skemmtilegt að fylgjast með þeim að störfum :-)


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband