Ef dómgreindina vantar

Ef dómgreindina vantar í vitið

verður ekki fram hjá því litið,

að hæfnin til þess að hugsa með rökum

hefur ekki nýst af þeim sökum. 

Jenna Jensdóttir

f. 1918

Sigmund Ræsa kallinn

Laugi bloggvinur sendi mér þessa skemmtilegu athugasemd:

Þessi er góð,hárbeitt en hógvær og sannar það að ,,,,

 Ferskeytlan er frónbúans

fyrsta barnaglingur.

Verður seinna í höndum hans

hvöss sem byssustingur.

Kv Laugi

Takk fyrir þetta Laugi

Kær kveðja SÞS


Myndir frá gosinu í Eyjafjallajökli

Eyjar Egill 9

Þessar myndir af gósinu í Eyjafjallajökli tók Egill Egilsson og þakka ég honum kjærlega fyrir sendinguna.  Myndirnar eru tekknar frá Heimaey og á þessari fyrstu mynd sést Elliðaey í forgrunni sumir segja að þessi eyja sé sú fallegasta í Vestmannaeyjaklassanum Smile.

Eyjar Egill 7

Eins og sést á myndunum er miðmyndin líklega tekin þegar gosinu er að ljúka.

 Eyjar Egill 8

 


Gömul minningarbrot

Minningarbrot

Bjarni Jónasson stýrimaður og flugmaðurMér er minnistætt  þegar Bjarni Jónasson þá stýrimaður ( Seinna flugmaður og kennari m.m.) var að byggja húsið sitt við Brekkugötu, þar sem þau Bjarni og jórunn  kona hans  búa en. Þá var á sama tíma  Óskar Matt frændi minn og Þóra Sigurjónsdóttir að byggja sitt hús við Illugagötu 2 og við frændurnir, Stjáni, Sigurjón, og Matti vorum þar að nagldraga og skafa timbur. Þegar við höfðum klárað þá vinnu hjá Óskari var Bjarni að byrja að slá utan af sínu húsi sem var næsta hús við nýbyggingu Óskars. Hann sá að þarna voru peyjar á ferð sem gott væri að fá í vinnu enda þekkti Bjarni okkur alla vel. Á þessum tíma tíðkaðist ekki að borga peninga fyrir að slá mótatimbri utanaf húsum, nagldraga og skafa síðan timbrið, enda flestir staurblankir sem stóðu í nýbyggingum á þessum árum, eins og reyndar alltaf. En Bjarni dó ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn. Þannig var að hann átti KK mótorhjól og Valgeir bróðir hans átti samskonar hjól nema það var gult að lit, annars voru þessi KK hjól yfirleitt fölgræn. Bjarni vissi að við höfðum mikinn áhuga á þessum hjólum, því við vorum oft að skoða þau fyrir utan nýbygginguna hjá honum þar sem þeir bræður voru að vinna. Hann kom því einn daginn og gerði okkur tilboð sem enginn af okkur gat hafnað.

Tilboðið var á þá leið að við ynnum við húsið hans að nagldraga og skafa timbur í einn klukkutíma í senn, og í laun fengum við að fara á mótorhjólunum í 15 mín  Í staðinn, og þannig koll af kolli allan daginn. Reglur voru settar þessháttar að ekki mátti fara niður í bæ heldur varð að hjóla inn í dal og eða út á Hamar, enda vorum við allir próflausir. Það þarf  ekki að orðlengja það að við tókum tilboðinu með þökkum enda eru þeir bræður einnig skemmtilegir að vinna með. Við kláruðum að naglhreinsa og skafa timbrið á mettíma. Ég fullyrði það, að allir vorum við frændurnir ánægðir með okkar hlut, og ekki síður voru þeir Bjarni og Valgeir Jónassynir ánægðir með sitt hlutskipti, en þeir hefðu verið nokkrum dögum Bjarni ,Jórunn og valgerðurlengur að nagldraga og skafa ef þeir hefðu ekki fengið hjálp okkar peyjana.

það er alltaf gaman að rifja upp þessar gömlu minningar sem ég reyndar skrifaði niður fyrir nokkuð mörgum árum.

Sigmar Þór

 


Fallegar kvöldmyndir frá Vestmannaeyjum

Eyjar Egill 4

Þessar fallegu myndir frá Eyjum sendi mér Egill Egilsson og þakka ég honum kærlega fyrir.

Eyjar Egill 3

 

Eyjar Egill 2

Skannsinn er fallegur með himininn logandi

 Eyjar Egill 1


Skemmtilegir dagar í Danmörku

januar 3 057Januar 4 2011 020

Það er alltaf gaman þegar nýr einstaklingur kemur í heiminn. Þann 4. janúar fæddist þessi litla stelpa í Danmorku eins og ég hef reyndar áður sagt frá hér á blogginu mínu. Við hjónin skelltum okkur til Danmörku í 10 daga til að heilsa upp á Hörpu, Þór, Kolbrúnu Soffíu og litlu nýfæddu stelpuna þeirra. Við áttum góða daga þarna í Árósum og eru þessar myndir teknar í ferðinni.

Á fyrstu mynd er Kolla með nýjasta barnabarnið og sú litla sem ekki hefur enn fengið nafn.

Að sjálfsögðu var komið með hangikjöt frá Íslandi og það borðað með grænum baunum og rófum. Á myndinni eru t.f.v; Harpa, Halla, Kolbrún Soffía, Simmi, og Kolla. Kolla Soffía komst í varalitinn hjá ömmu sinni.

 Januar 4 2011 025

  Januar 4 2011 022

 

Kolbrún Soffía heldur hér á litlu systir

Januar 4 2011 K&S 097Januar 4 2011 K&S 001

Harpa og Kolla með þá nýfæddu.

Januar 4 2011 K&S 084

 Januar 4 2011 042

 

  Þarna eru Þau Þór og Harpa að fara með þá litlu í smá göngutúr í fyrsta skipti. Myndin hér að ofan er af Kollu litlu og Þór pabba hennar að horfa á sjónvarpið, sennilega á myndina Palli var einn í heiminum.

Januar 4 2011 033

                                                                   

         


Geðorðin 10

 Margt gott kemur frá Lýðheilsustöð, þar á meðal eftirfarandi:

GEÐORÐIN

1. Hugsaðu Jákvætt, það er léttara

2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um.

3. Halltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir

4. Lærðu af mistökum þínum.

5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina

6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.

7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.

8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.

9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína.

10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.

Geðrækt

Lýðheilsustöð / lifið heil


Hugleiðing eftir Ágúst Sæmundsson

Hugleiðing

Ég er gamall og lúinn og geng ekki hratt

og get ekki fylgt hinum yngri.

Víst er það dauflegt ég segi það satt,

að sjá hvernig ellin hún gerir allt bratt

og verkamannsviðbrögðin þyngri

 

Já oft virðist brekkan sú brött og svo há

og bjartsýnin næstum að þrjóta.

Gangan svo erfið og getan svo smá

að gangmóðan langar að sneiða þar hjá

hvíldar og næðis njóta.

 

En áfram skal þramma um ævinar stig

og ánægður lífinu taka.

Oft hefur lánið þar leikið við mig

og ljúfsælu stundirnar minna á sig

Á leiðinni ef lít ég til baka.

 

Eftir Ágúst Sæmundsson


Enn sanna þyrlurnar og áhafnir þeirra gildi sitt

„Þetta var með því erfiðara, sem ég hef lent í, kannski það erfiðasta,“ sagði Viggó Sigurðsson, sigmaður á þyrlu Landhelgisgæslunnar, í samtali við Morgunblaðið í gær. Viggó seig eftir skipverja á litháíska flutningaskipinu Skalva sem statt var um 115 sjómílur SV af Reykjanestá í fyrradag.

En koma þessar stóru og öflugu þyrlur ásamt þrautþjálfuðum áhöfnum þeirra til bjargar sjómönnum í neyð. Það væri fróðlegt að vita hve mörgum mannslífum þessar björgunarsveitir hafa bjargað á undanförnum 20 árum. Í þessu tilfelli hefur þetta verið með erfiðari tilfellum eftir því sem björgunarmenn segja, kolvitlaust veður og mikill veltingur á skipinu. Annars segja myndirnar meira en mörg orð um það hve mikið björgunarafrek þetta er.

Við meigum vera stollt af því að eiga þessar frábæru björgunasveitir og  öflugar þyrlur.

 


mbl.is „Skipið elti mig upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minning um konu. Þórunni Sveinsdóttir frá Byggðarenda

Hver var Þórunn Sveinsdóttir sem hin happasælu skip voru skírð eftir og er í dag orðið landsfrægt skipsnafn? Eftirfarandi minningar tók ég saman  um ömmu mína Þórunni, og fékk við það mikla og ómetanlega hjálp frá Þóru Sigurjónsdóttir eiginkonu Óskars heitins Matthíassonar. 

Þórunn Júlía Sveinsdóttir   Hún hét fullu nafni Þórunn Júlía Sveinsdóttir, kölluð Þórunn eða Tóta á Byggðarenda. Hún var fædd á Eyrarbakka 8. júlí árið 1894 og ólst upp hjá foreldrum sínum. Faðir hennar var Sveinn Sveinsson, fæddur í Simbakoti 9. okt. 1863. Hann var sjómaður, lést 1941. Kona hans og móðir Þórunnar var Ingunn Sigurðardóttir frá Rauðafelli í A-Eyjafjöllum, f. 26. jan. 1858, d. 1941. Þau hjón bjuggu að Ósi á Eyrarbakka með fimm börnum sínum, fjórum stúlkum og einum dreng. Húsið Ós hafði tvær burstir og það var aðeins eitt herbergi í austurburstinni. Í því svaf öll fjölskyldan þannig að þröngt hefur verið í herberginu. Sváfu systurnar tvær og tvær saman í rúmi en bróðir þeirra einn. Húsið Ós stendur enn á Eyrarbakka.               Börn Sveins og Ingunnar voru: Sigurður Ari, Þórunn Júlía, sem hér segir frá, Anna, Sveinbjörg, og Jónína síðar kennd við Sjónarhól.                Systurnar Þórunn, Sveinbjörg og Jónína fluttust allar til Vestmannaeyja og bjuggu þar mestan hluta ævi sinnar enda var mikill uppgangur í Vestmannaeyjum á þessum tíma, bátar voru vélvæddir, afli jókst og mikið að gera fyrir vinnufúsar hendur. 

 Þórunn flyst til Vestmannaeyja. Þórunn var 22 ára gömul þegar hún fluttist til Vestmannaeyja árið 1916 ásamt tilvonandi eiginmanni sínum, Matthíasi Gíslasyni sjómanni frá Eyrarbakka. Foreldrar Matthíasar voru Gísli Karelsson, f. 25. nóv. 1868, frá Sjávargötu á Eyrarbakka. Hann drukknaði í sjóslysi á Stokkseyrarsundi ásamt sjö öðrum sjómönnum 2. apríl 1908. Kona hans, Jónína Margrét  cÞórðardóttir, f. 25. maí 1870, d. 1951, var frá Vatnsholti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu.                      Þau Þórunn og Matthías byrjuðu strax að búa eftir að þau komu til Eyja, og þann 10. maí 1917 giftu þau sig. Þau fengu inni á Vestri-Gjábakka sem var frekar lítið hús allt á einni hæð. Það var austarlega á Heimaey og stóð við Bakkastíg. Fyrsta barn þeirra Þórunnar og Matthíasar fæddist  þar 17. des. 1916 og fékk nafnið Ingólfur Símon. Frá Gjábakka fluttust þau Þórunn og Matthías að Vestmannabraut 27, í hús sem hét Garðsauki, Það hús átti Árni Jónsson útgerðarmaður. Þar fæddist Sveinn 14. ágúst 1918 og Óskar 22. mars 1921. Frá Garðsauka flytjast þau hjón að Vallarnesi og síðan á Hof við Urðaveg. Á þessum árum eignuðust þau Gísla, fæddur 17. apríl 1925, en hann lést í bílslysi í Reykjavík aðeins 8 ára gamall. Matthildur Þórunn fæddist 13. júní 1926. Árið1928 kaupa þau Byggðarenda minnsta húsið við Brekastíg 15a. Þröngt var um þau í því húsi. Það var gengið inn í það að norðan, inn í litla forstofu eða gang og beint inn af útidyrunum var herbergi þar sem öll fimm börnin sváfu og lítið herbergi inn af því þar sem þau hjón sváfu. Einnig var eldhús, meira var plássið ekki. Vaskahús var í skúr bak við húsið. Eins og sést á þessum búferlaflutningum hefur verið erfitt með húsnæði í Eyjum á þessum árum.       Eins og áður hefur komið fram var Matthías alltaf sjómaður. Fyrst á skútum frá Reykjavík en síðan stundaði hann sjó frá Vestmannaeyjum og var þá skipstjóri eða formaður eins og það var kallað á þessum árum. 

Ari VEVélbáturinn Ari ferst. Þau Þórunn, Matthías og fjölskylda fengu ekki að vera lengi saman í þessu litla húsi, aðeins tvö ár. Þann 24. janúar 1930 drukknaði Matthías þegar vélbáturinn Ari fórst með allri áhöfn. Í Morgunblaðinu 26. jan. 1930 segir m.a. svo frá þessum atburði: „Bátur með 5 mönnum talin af.   Vestmannaeyjum í gær. Í gærmorgun réru flestir bátar hjeðan. Veður var þá dágott, austan kaldi. Veðurspáin kvöldið áður sagði verða mundu hæga SV átt um nóttina, en vaxandi SA átt þegar fram á daginn kæmi. Bátarnir réru allir skammt austur fyrir Eyjar. Voru sumir nýbyrjaðir að leggja línu er hann brast á með austan ofviðri. Var þetta um kl. 8 um morguninn. Snéru þá allir bátar heimleiðis. En svo var illt í sjó og veður mikið, að þeir fyrstu náðu ekki höfn fyrr en um hádegi. Voru þeir svo smám saman að tínast inn þangað til kl. að ganga 8 í gærkvöldi, en þá vantaði þó einn bátinn, ,,Ara” í eigu Árna Sigfússonar og Ólafs Auðunssonar. Voru á honum 5 menn. Hinir bátarnir vissu ekkert um Ara, nema að hann hafi orðið þeim samflota út á miðin. Því miður eru litlar líkur til þess að leit beri árangur.               Veðurhæð var mikil í gærmorgun, en þó bar hitt af hvað vont var í sjó. Gamall reyndur formaður, sem er á traustum og góðum bát, segist aldrei á ævi sinni hafa beitt í annan eins sjó og í gær, og segist hafa sjeð marga sjói svo, að enginn bátur hefði þolað þá.  Nú er hjer dágott veður, hægur sunnan, snjójel öðru hvoru en mikill sjór. Bátar, sem lögðu línur í gær fóru í morgun að leita þeirra.“Finnur Sigmundsson í Uppsölum hélt í tugi ára nákvæmar veðurdagbækur. Í dagbók hans frá árinu 1930 má lesa eftirfarandi :24. janúar. Norðaustan bræla í morgun en um kl. 8 f.h. var komið öskuhífandi rok og fram yfir miðjan dag var afspyrnurok, en dró heldur niður eftir kl. 2 e.h. Um 30 bátar voru á sjó og snéru sumir strax við. En margir komu um og eftir miðjan dag og sumir eftir kl. 6 í kvöld og vantar einn bátinn enn og er kl. orðin 12 í nótt. Lyra kom frá Reykjavík í morgun og liggur hér óafgreidd. Ekki fært að hafa samband við hana en um 3 leytið í dag var náð af Eiðinu farþegum og pósti úr henni.25. janúar. Suðvestan og úr hafi en hægur, dálítil snjókoma. Ekki er báturinn kominn fram enn þá og er hann talinn tapaður. Það var Ari, eign Árna Sigfússonar o.fl. Formaður Matthías Gíslason, og Páll Gunnlaugsson háseti og 3 aðkomumenn.“              

Matthías Gíslason og fjölskyldaBjörn, sonur Sigurðar og Guðbjargar á Hallormstað, sagði Þóru Sigurjónsdóttur löngu síðar að kvöldið sem mótorbátsins Ara VE 235 var saknað hefði Þórunn komið heim til þeirra, en Hallormsstaður var næsta hús fyrir neðan Byggðarenda við Brekastíg. Faðir hans var háttaður og þau hjón komin í rúmið. Hann var á mb. Skallagrími en hann og aðrir bátar, sem höfðu róið þennan dag, voru allir komnir að landi, nema Ari. Bjössi sagði að hann hefði verið tólf ára þegar þessi atburður átti sér stað og hann gæti ekki gleymt því þegar Þórunn stóð við fótagaflinn á rúmi þeirra hjóna og spurði Sigurð hvort hann héldi að báturinn kæmi, hvort einhver von væri. Hún bað hann að segja sér alveg eins og hann héldi. Sigurður svaraði því til að hann héldi að það væri engin von til þess að báturinn kæmi að landi, þeir á Ara voru með veiðarfærin við Bjarnarey og stutt að keyra heim. Þennan dag var eitt versta veður sem komið hefur yfir Eyjarnar.      

Björn sagði Þóru aðra merkilega sögu: Eitt sinn, fyrir mörgum árum, fór Bjössi til Vestmannaeyja, en hann bjó í Reykjavík, og heimsótti Jónu, móður Helgu Ólafsdóttur sem er gift Sigmund Jóhannssyni teiknara. Þau eiga heima á Brekastíg 12, beint á móti Byggðarenda. Jóna sagði honum þá að í janúarbyrjun veturinn 1930, skömmu áður en mótorbáturinn Ari fórst, hafi Þórunn komið yfir götuna til Elínar Vigfúsdóttur, grannkonu sinnar, móður Jónu, með olíustakk sem Matthías átti og bað hana að bæta hann fyrir sig. Þórunn var vel kunnug Elínu enda voru þær báðar frá Eyrarbakka. Elín bætti stakkinn og fór Þórunn með hann heim harla ánægð. Um vorið, eftir að Matthías fórst, fór Þórunn að vaska fisk á Tanganum hjá Gunnari Ólafssyni. Hún fer þá eitt sinn nauðsynja sinna niður í Tangafjöru því að þá voru ekki salerni á vinnustöðum. Þegar hún stendur þarna í fjörunni sér hún sjóstakk í flæðarmálinu sem henni finnst hún kannast við. Hann var með bót á erminni. Hún tók stakkinn og fór með hann heim og sýndi Elínu og spurði hana hvort hún kannaðist við stakkinn. Elín hélt það nú, þetta væri stakkurinn hans Matthíasar sem hún setti á bótina fyrir Þórunni fyrr um veturinn. Þórunn geymdi stakkinn í nokkur ár en svo fór hún með hann og skilaði honum aftur í sjóinn. Henni hefur sjálfsagt fundist hann eiga heima þar.

Þórunn Sveinsdóttir og MatthildurÞegar slysið átti sér stað höfðu þau Þórunn og Matthías búið saman í 14 ár. Hann var 37 ára en hún 36 ára. Börn þeirra fimm voru á aldrinum 4 til 14 ára. Það voru því erfiðir tímar fram undan hjá Þórunni Sveinsdóttur, hún var nú ein með börn sín og ekki var auðvelt að fara frá þeim til útivinnu.               Þórunn fékk styrk eftir slysið og notaði hann, til að stækka Byggðarenda um helming til vesturs. Húsið er enn óbreytt frá þessum tíma og má á því sjá að það hefur ekki verið stórt fyrir stækkunina.               Þegar Þórunn hafði lokið við að byggja við Byggðarenda fór hún að taka menn í fæði, kostgangara eins og þeir voru kallaðir. Þetta gerði hún í nokkur ár til að bjarga sér og var jafnframt með menn í þjónustu, þvoði af þeim og straujaði fötin þeirra. Það var haft eftir þeim sem voru kostgangarar hjá Þórunni á Byggðarenda að þar hafi alltaf ríkt góður andi og verið vel tekið á móti þeim sem þangað komu. 

Margir réttu hjálparhönd Á þessum erfiðleikatímum hjá Þórunni reyndi hún margvíslega hjálpsemi hjá fólki. Árni í Garðsauka bauð t.d. Óskari Matt að borða hjá sér og gerði hann það í einhvern tíma. Ingólfur var sendur á Eyrarbakka um tíma þar sem hann var hjá ömmu sinni og afa en þau bjuggu þá enn á Ósi. Sveinn var tvö ár á Krossi í Austur-Landeyjum og var hann fermdur frá Krosskirkju. Óskar var  Brekastigur séð í austureinnig í sveit á sumrin á nokkrum stöðum á suðurlandi.

Að bjarga sér. Á veturna  þegar skólinn var búinn á daginn, fóru bræðurnir Ingólfur, Óskar og Sveinn stundum niður á bryggju til að tína lifur. Á þessum árum var ekki gert að fiskinum úti á sjó eins og síðar varð algengt heldur var öllum fiski landað óaðgerðum. Þegar bátarnir voru að landa þrýstist oft lifur út úr belgnum á fiskinum og lá eftir á bryggjunni eða rann í sjóinn. Þá var vinsælt hjá peyjum í Eyjum að hirða upp lifrina af bryggjunni eða krækja hana upp úr sjónum og setja hana í fötur og selja. Kennarar drenganna voru ekki hrifnir af þessu háttarlagi, sérstaklega ekki ef þeir komu í skólann angandi af lifrarstækju. Ýmsar skemmtilegar sögur hafa spunnist af lifrartínslunni. Magnús Bjarnason (Muggur) frá Garðshorni sagði Þóru eftirfarandi sögu sem hann hafði eftir Ástu í Garðshorni, móður sinni:               „Einn dag er Ásta að ganga upp Heimagötu en Óskar, sem þá var smápatti, að labba heim til sín að Vallarnesi, næsta húsi við Garðshorn. Tóku þau tal saman. Óskar var grútskítugur, búinn að óhreinka fötin sín og það var vond lykt af honum. Ásta spyr hann: Hvað varst þú eiginlega að gera, drengur? Ég var niður á bryggju að tína lifur, svaraði Óskar. Hann var með höndina í vasanum og lét glamra í peningunum. Ásta spyr hann þá hvað hann ætli að gera við þessa peninga sem hann sé með í vasanum. Ég ætla að kaupa inniskó og gefa henni mömmu minni.  

Óskar og bræður hans byrjuðu snemma að taka til hendinni og voru hörkuduglegir að bjarga sér og draga björg í bú. Eitt skipti sem oftar fór Óskar niður á bryggju og þar var honum gefin hnísa sem þótti mikil búbót á þessum árum því mikið kjöt er á þessum smáhvölum. En það var þrautin þýngri að koma hnísunni upp á Brekastíg fyrir lítinn snáða. Óskar byrjaði þó að draga hana heimleiðis og var búinn að drösla henni upp að Vöruhúsi við Vestmannabraut þegar hann stoppar og hvílir sig enda alveg að gefast upp og langur vegur enn eftir að draga hana upp Skólaveg og hálfan Brekastíginn. Þar sem hann situr þarna og hvílir sig,  koma til hans tveir menn sem höfðu séð hann með hnísuna og vissu hvernig honum leið. Þeir buðust til að bera fyrir hann hnísuna upp Skólaveg og inn Brekastíg, heim að Byggðarenda þar sem tekið var við henni fegins hendi. Þetta atvik festist í minni Óskars sem sagði oft þessa sögu og var alla tíð þakklátur þessum mönnum sem þarna komu til hjálpar. Annar þeirra var Þorsteinn Sigurðsson frá Melstað, seinna á Blátíndi, útgerðarmaður í Eyjum og var einn eiganda Fiskiðjunnar hf. Ekki er vitað hver hinn maðurinn var.      

En það voru fleiri góðir menn sem réttu fjölskyldunni á Byggðarenda hjálparhönd. Sigurður Bjarnason í Svanhól var formaður á bát í Eyjum. Hann bauðst til að fara með línustubb fyrir Þórunni og fékk hún fiskinn sem á hann kom og er haft eftir Óskari Matt að Sigurður hafi bæði skaffað línustubbinn og beituna, en Þórunn og elstu strákarnir beittu . Stubbar voru líklega 150 til 200 krókar. Eitt sinn tapaðist stubburinn en samt fékk Þórunn 8 fiska af stubbnum. Svona reyndist Sigurður henni vel.

Sonarmissir. Gísli, sonur Þórunnar, var aðeins 8 ára er hann lést í sviplegu bílslysi í Reykjavík 27. maí 1933. Hann var, þegar þetta gerðist, hjá föðurömmu sinni, Jónínu M. Þórðardóttur sem bjó að Bergstaðarstræti 30, Atvik voru þau að Sveinn, bróðir Gísla, hafði verið í sveit hjá bónda á Krossi í A-Landeyjum sem Björn hét og var hann að flytja búferlum þetta vor að Horni í Skorradal. Ætlaði Sveinn að fylgja honum þangað. Svein langaði að hitta bróður sinn í Reykjavík og varð úr að þeir komu við í Bergstaðastrætinu á leiðinni vestur svo að bræðurnir gætu hist. Má nærri geta að þar urðu fagnaðarfundir. Gísla var gefinn peningur á kveðjustund. Þegar bíllinn er að fara af stað missir hann peninginn og ætlar að ná honum upp en verður þá undir bílnum sem var með búslóðina. Hann dó samstundis. Sveinn, bróðir Gísla, hefur því verið áhorfandi að þessu hræðilega slysi. Þetta voru vitaskuld þungbærar fréttir fyrir Þórunni, aðeins þremur árum eftir að hún missti Matthías í Ara-slysinu.

Fjölskyldan ByggðarendaBirtir til.  Öll él birtir upp um síðir. Þórunn átti eftir að eiga bærilega ævi þegar tímar liðu fram. Hún giftist aftur Sigmari Guðmundssyni frá Miðbæ á Norðfirði, f. 28. ágúst 1908, d. 4. júlí 1989, dugmiklum sjómanni. Sigmar var kostgangari hjá henni þegar þau kynntust. Þau giftu sig á gamlársdag 1939. Sigmar var þá sjómaður en varð síðar einnig útgerðarmaður. Gerðu þeir Óskar Matt, stjúpsonur hans, út  m.a. Leó VE 400. Sigmar og Þórunn eignuðust tvo börn saman, Gísla Matthías Sigmarsson, og Guðlaugu Erlu Sigmarsdóttur, Auk þess ólu þau upp skrifara þessa þáttar, Sigmar Þór Sveinbjörnsson, til fjórtán ára aldurs, eða þar til Þórunn lést.               Þau Þórunn og Sigmar bjuggu á Byggðarenda til ársins 1954, en þá fluttu þau að Sunnuhvoli við Miðstræti 14 þar sem Þórunn bjó til dauðadags.

Góðar minningar  Þegar ég man fyrst eftir mér hjá Þórunni ömmu minni og Sigmari, bjuggum við á Byggðarenda við Brekastig 15a. Þá vann hún á stakkstæði fyrir ofan kirkju og var þá einnig með nokkra menn í þjónustu. Í minningunni finnst mér ég muna eftir Þórunni ömmu minni sífellt að vinna við þvotta og við að búa til mat. Hún gerði slátur sem hún setti í súr, hún saltaði kjöt í tunnu, hún átti saltaða kæsta skötu og sólþurkaðan saltfisk, ýsa og lúða hékk oft á nöglum utan á snúrustaur við húsið, meira segja saltaði hún fýl í tunnu. Það er eini skugginn sem fellur á góðu minningarnar sem ég á frá matargerð hennar. Mér bauð við þegar fýll var soðinn og reynt að fá mig til að borða hann. Að öðru leyti bjó hún amma mín til mjög góðan mat. Þegar þau Sigmar og Þórunn fluttust að Sunnuhvoli hætti hún þjónustustörfum enda heilsan þá farin að bila. En hún kvartaði ekki, var alltaf sístarfandi, með handavinnu eða við heimilisstörf enda bjó hún sérlega fallegt heimili á Sunnuhvoli þar sem mikið var af ísaumuðum myndum, koddum, dúkum og ýmsu fleira eftir hana.  Síðustu árin sem hún lifði átti hún við heilsuleysi að stríða enda búin að ganga gegnum marga erfiðleika og vinna mikið alla tíð. Ég hugsa ávallt til hennar með þakklæti og hlýhug fyrir allt það sem hún kenndi mér og gerði fyrir mig þau ár sem við áttum saman. Hún var indæl kona sem öllum, sem henni kynntust, þótti vænt um. Þórunn Júlía Sveinsdóttir lést 20. maí 1963 tæplega 69 ára. 

Myndir: 1. Þórunn Sveinsdóttir, Nr. 2. Ari VE, Nr.3. Matthías Gíslason og Þórunn Sveinsdóttir og drengir þeirra  Ingólfur, Óskar og Sveinn. Nr.4. Þórunn og Matthildur Matthíasdóttir. Nr. 5. Brekastigur um 1950 húsið Hallormstaður lengst til hægri á myndinni. Nr. 6. Fjölskyldumynd Þórunn, Sigmar og börn þeirra Erla og Gísli.

 Sigmar Þór Sveinbjörnsson.

 


Kópavogur í vetrarbúningi, Siglingastofnun og nágrenni

Ómar k4

 

 Þessar fallegu myndir af Siglingastofnun og nágrenni sendi mér vinur minn Ómar Kristmannsson.

Þarna er Siglingastofnun og svæðið kringum hana í vetrarbúningi og er það ekki síður fallegt en að sumri til.

Nýja skútuhöfnin vestan við Siglingastofnun, er á þessum næstu tveimur myndum. 

 

 

 

  Ómar k5Ómar k6

 

Ómar k 2Ómar k 1

 

 Það er fleira í klakaböndum, fínar myndir af stíflunni.

 

Og að endingu  Turninn við smáratorg í Kópavgi. 

Ómar k7 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband