Minnig um mann. Magnús K. Magnússon

Magnús N

 sjóvinnunámskeið Sjóvinnunámskeið.

  Magnús Kristleifur Magnússon var f. 4. nóvember 1890 d. 25.maí 1972.

Magnús Kristleifur Magnússon var fæddur að Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd á Suðurnesjum  og byrjaði ungur að róa á áraskipum sumar og vetur frá heimabyggð sinni.

Magnús með tertu

Til Vestmannaeyja kom Magnús fyrst til vertíðarstarfa árið 1918 og var þá með Guðjóni á Sandfelli. Magnús og Þórður Gíslason  stofnsettu fyrsta netaverkstæðið í Vestmannaeyjum  árið 1939 þeir nefndu það  Netagerð Magnúsar og Þórðar en síðar fékk þetta fyrirtæki nafnið Veiðafæragerð Vestmannaeyja. Magnús var mikill sómamaður sem vann að sjávarútveginum  alla ævi bæði á sjó og í landi. Hann kenndi lengi ungum eyjamönnum  verklega sjóvinnu, fyrst við verknámsdeild Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum þar sem kennd var netabæting og felling neta. Við stofnun Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum 1964 kenndi hann ásamt sonum sínum og Hallgrími Þórðarsyni  fjölbreytta verklega sjóvinnu fram á síðustu æviár. Kona Magnúsar var Þuríður Guðjónsdóttir.

 

Á myndinni er Magnús Kristleiifur Magnúson brosmildur  með tertu sem á stendur Sjóvinnunámskeið 1961.

 

Kær kveðja SÞS


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dásamlegt að sjá þessa gömlu mynd. Þarna sé ég nokkra skólabræður..Hvað tíminn líður hratt?

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 12.7.2009 kl. 18:23

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl frænka og takk fyrir innlitið, já þeir eru flottir þessir peyjar

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 14.7.2009 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband