Gömul þjóðsaga um barn og engil

 

Gömul þjóðsaga

Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast í þennan heim.       Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég nú er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig þegar þú kemur í heiminn.
En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,mömmu"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Falleg og góð saga sem segir okkur svo margt.  Þakka þér kærlega fyrir.

Jóhann Elíasson, 25.6.2009 kl. 00:36

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, ég er sammála Jóhanni vini okkar hér að ofan, eru ekki mömmur allaf bestar þegar upp er staðið? Mér finnst það.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 25.6.2009 kl. 06:39

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heilir og sælir bloggvinir og takk fyrir innlitið, Jú auðvitað eru mömmurnar alltaf bestar.

Hef ekki verið við tölvuna í nokkra daga þar sem við hjónin vorum upp í Borgarfirði með fellihýsið. þar var frábært veður um helgina og gott að slappa aðeins af frá vinnuni.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 28.6.2009 kl. 21:02

4 identicon

Dásemd.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband