19.10.2009 | 22:31
Kvöldmyndir frá Eyjum
Hér er kvöldmynd af Vestmannaeyjabæ sem við getum kallað Ljósin í Bænum.
Ég vil taka það fram að allar þessar fallegu myndir frá Vestmannaeyjum hefur Vestmannaeyingurinn Heiðar Egilsson tekið og leyft mér að setja hér á bloggið mitt. Það hafa margir haft samband við mig og dáðst af þessum myndum.
Ég vil hér með þakka Heiðari Egilssyni kælega fyrir að fá að nota þessar myndir hans og þar með leyfa mörgum að njóta þeirra.
Kvöldmynd af Smáeyjum, Hamrinum vestast á Heimaey heitir Ofanleitishamar og fjallið lengst í burtu er Dalfjall eða Blátindur.
Til gamans má geta þess að við Smáeyjar er litill standur sem er nefndur Nafar og þar er komið nafnið á bloggið mitt sem ég nefni: Nafar
Athugasemdir
Snilld.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2009 kl. 23:17
Þessar myndir eru hrein listaverk.
Jóhann Elíasson, 20.10.2009 kl. 09:24
Þakka þér fyrir frábærar myndir og fróðleik.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 21.10.2009 kl. 22:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.