Gleðilegt nýtt ár kæru bloggvinir

Heiðar gamlárskvöld 1Gleðilegt nýtt ár.

Með þessari fallegu mynd af minni gömlu góðu Illugagötu. sendi ég öllum vinum og vandamönnum ásat öllum þeim bloggvinum sem heimsótt hafa bloggið mitt góðar óskir um gleðilegt nýtt ár og þökk fyrir það gamla. Það er á þessum stundum sem maður minnist þess hvað gaman var að vera í Eyjum að fylgjast með og stundum að taka þátt í flugeldafjörinu á Illugagötu með Bedda nágranna. Og hvergi er skemmtilegra að vera á þrettándanum en í Vestmannaeyjum

Myndina tók Heiðar Egilsson  fyrir nokkrum árum.

Áramótakveðjur kæru vinir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Gleðilegt nýtt ár Sigmar og þakka þér innilega fyrir góðu gömlu árin.

Þú kannski skilar kveðju til fjölskyldu þinnar frá mér. :-)

Kær nýárskveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 3.1.2018 kl. 07:15

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér kærlega fyrir Sigmar og sömuleiðis og bestu þakkir fyrir árið sem var að líða.  Þá langar mig til að biðja þig að skila kærri kveðju til Guðjóns Ármanns fyrir mig.

Bestu kveðjur af Suðurnesjunum

Jóhann Elíasson, 3.1.2018 kl. 14:37

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Helgi Þór. Sömu leiðis gleðilegt nýtt ár og þakka þér gömlu góðu árin. 

Ég skilaði kveðjuni og átti að skila kveðju á móti. 

Verðum hér í sambandi á nýja árinu.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 3.1.2018 kl. 21:31

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann og sömu leiðis gleðilegt ár og takk fyrir samskiptin á liðnu ári. 

Já ég skal skila kveðju til Guðjóns Ármann, ég hitti hann má segja í hverri viku. 

Kær kveðja úr Hafnarfirði

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 3.1.2018 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband