Vökvaðu kærlekans viðkvæmu rós

Vökvaðu kærleikans viðkvæmu rós
Þá veitist þér andlegur styrkur.
Kveiktu svo örlítið aðventuljós,
Þá eyðist þitt skammdegis myrkur.

Það ljós hefur tindrað um aldir og ár
yljað um dali og voga.
Þó kertið sé lítið og kveikurinn smár
mun kærleikur fylgja þeim loga.

Höf. Hákon Aðalsteinsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er með fallegri ljóðum sem ég hef lesið...........

Jóhann Elíasson, 3.12.2017 kl. 23:42

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

já Hákon var einstakur hagyrðingur.

Helga Kristjánsdóttir, 4.12.2017 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband