Alltaf hættulegt að lenda í strandi

 Fjórir skipverjar björguðust í land af strönduðum fiskibát, en eftir myndinni að dæma var þarna töluvert brim við ströndina, þannig að þeir hafa verið heppnir að komast klakklaust í land. Því miður eru miklar líkur á að báturinn fari illa þarna í grótinu.

Merkilegt að Rúv sjónvarp skuli ekki hafa verið með frétt um þetta slys í sjónvarpinu í kvöldfréttum. Skrítið fréttamat á þeirri fréttastofu.


mbl.is Vélarvana við Hópsnes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér varðandi RÚV. 

Guðmundur (IP-tala skráð) 14.5.2015 kl. 00:29

2 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Sigmar Þór Sveinbjörnsson.

Hugsanlega telja þeir þetta ekki ver frétt hjá Ruv. Það sem vekur upp spurningar hjá mér? Varð þessi bilun þegar báturinn var á leið í land, eða var hann á veiðum stutt frá landi.

Sem betur fer komust þessir sjómenn í land og voru í björgunarbúningum sem hafa komið mörgum sjómönnum til hjálpar í neyð.Eins vil ég hafa í heiðri Slysavarnaskóla Sjómanna sem hefur átt sinn þá að menn björguðust. Þar hafa sjómenn lært mikið að takast á við hugsanleg sjóslys. Enn við sjómenn eigum það sameiginlegt að vita aldrei hvenær skip brenna, eða fara í djúpið.

Enn bestu kveðjur til þín Sigmar fyrir þinn þátt að bættu öryggi okkar sjómanna. Þú stendur vaktina með sóma.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 14.5.2015 kl. 06:38

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, ég er mög sammála Jóhanni bloggfélaga okkar hér að ofan. Áhuginn er bara orðin svo lítill fyrir sjómönnum í fjölmiðlum! Ekki veit ég hvað á til bragðs að grípa, en þessi þróun er ekki góð!

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 15.5.2015 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband