15.12.2011 | 20:28
Nauðsynlegt að mótmæla
Stjórn VM - Félags vélstjóra og málmtæknimanna mótmælir harðlega öllum hugmyndum ríkisstjórnarinnar og Alþingis um aðför í formi skattlagningar á almenna lífeyrissjóðakerfið.
Það er nauðsynlegt að mótmæla þessum hugmyndum ríkistjórnarinnar og vonandi fylgja Guðmundur Ragnarsson og félagar þessum mótmælum kröftuglega eftir, og auðvitað ættu öll stéttarfélög í landinu að mótmæla þannig að tekið væri eftir því. Það er með ólíkindum að láta sér detta í hug að skattleggja lifeyrir sem fólkið hefur verið að leggja fyrir til elliárana.
Aðför að réttindum félagsmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Lífeyrissjóðir greiða nú þegar tryggingargjald af tryggingargjaldsstofni launa sinna. Fjársýsluskattur upp á 5,45% reiknast af sömu fjárhæð. Ég hef ekki áhyggjur af þeim skatti á launakostnað lífeyrissjóðanna, hins vegar ofbýður mér launakostnaðurinn ásamt launatengdum gjöldum og þar með sköttum á launakostnaðinn (tryggingargjaldið) sem lífeyrisssjóðirnir eru að greiða í algjörri óþökk okkar sem eru að ávinna okkur lífeyrisréttindi.
Á árinu 2011 nam skatturinn ofan á launin 8,65% en árið 2012 að öllu óbreyttu erum við að tala um 13,24% (7,79+5,45). Ég sé ekki annað en sjóðirnir þoli þetta auðveldlega, en að þeir ættu að sjá sóma sinn í að lækka launakostnað sjóðanna það mikið að heildarlaunakostnaður að meðtöldum nýja fjársýsluskattinum verði ekki hærri en að hámarki það sem hann var árið 2011 og í raun ættu þeir að gera mikið betur í því að lækka þau ofur - sjálftöku - laun sem viðgangast hjá sjóðunum.
Aftur á móti er í breytingatillögu efnahags - og viðskiptanefndar galli sem án efa verður lagfærðu í meðförum þingsins þar sem gleymist að undanskilja lífeyrissjóði frá 6% sérstökum fjársýsluskatti á hagnað yfir milljarð. Þarna er í raun um að ræða aukaþrep í tekjuskatti og lífeyrissjóðir eru undanþegnir tekjuskatti, en ef gallinn verður ekki lagfærður þá lendir þessi skattur á sjóðunum líka og það er aftur á móti allt annað dæmi og myndi skerða lífeyrisréttindi verulega.
Að setja sig upp á móti fjársýsluskattinum almenna (5,45) er ekkert annað en væl og lífeyrissjóðirnir ættu að líta í eigin barm og bregðast við.
Jón Óskarsson, 15.12.2011 kl. 22:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.