Laumufarþegar frá Bremenhafen

Laumufarþegar

Þessir tveir drengir eru þýskir. Þeir laumuðust um borð í Bjarnarey VE 11 er togarinn landaði í Bremenhafen skömmu eftir stríð. Ekki komst upp um þessa ungu laumufarþega fyrr enn skipið var komið langleiðina til Vestmannaeyja. Þeir fengu ekki  að fara í land í Vestmannaeyjum og urðu að dúsa um borð í skipinu meðan fiskað var í aftur. Skipið sigldi síðan til Bremenhafen þar sem þeim var skilað aftur.

Ekki kemur fram nöfn þeirra í texta með myndinni.

 Úr Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1997

Bjarnarey VE  í höfn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Ætli að þessir strákar hafi sagt áhöfninni sögu sína? Hvers vegna þeir voru að flýja að heiman og hvað þeir upplifðu í stríðinu?

Besta kveðja úr Víkinni.

Þórir Kjartansson, 23.5.2010 kl. 11:55

2 Smámynd: Jón Arnar

Hefur verið samband við þá síðan?

Jón Arnar, 23.5.2010 kl. 12:08

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Þórir, eflaust hafa þeir sagt áhöfninni sögu sína, en því miður er ekki meira skrifað um þessa stráka í Sjómannadagsblaðinu, en það eru örugglega einhverjir Eyjamenn sem þekkja þessa sögu. Og eflaust hefur þýska sendiráðinu verið tilkynnt um þessa laumufarþega á þessum tíma.

Kær kveðja 

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.5.2010 kl. 16:40

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jón Arnar og takkfyrir innlitið, ég held að lítið sé til um þetta  mál nema þá í gömlum opinberum skýrslum.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.5.2010 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband