15.1.2011 | 15:07
Enn sanna þyrlurnar og áhafnir þeirra gildi sitt
Þetta var með því erfiðara, sem ég hef lent í, kannski það erfiðasta, sagði Viggó Sigurðsson, sigmaður á þyrlu Landhelgisgæslunnar, í samtali við Morgunblaðið í gær. Viggó seig eftir skipverja á litháíska flutningaskipinu Skalva sem statt var um 115 sjómílur SV af Reykjanestá í fyrradag.
En koma þessar stóru og öflugu þyrlur ásamt þrautþjálfuðum áhöfnum þeirra til bjargar sjómönnum í neyð. Það væri fróðlegt að vita hve mörgum mannslífum þessar björgunarsveitir hafa bjargað á undanförnum 20 árum. Í þessu tilfelli hefur þetta verið með erfiðari tilfellum eftir því sem björgunarmenn segja, kolvitlaust veður og mikill veltingur á skipinu. Annars segja myndirnar meira en mörg orð um það hve mikið björgunarafrek þetta er.
Við meigum vera stollt af því að eiga þessar frábæru björgunasveitir og öflugar þyrlur.
![]() |
Skipið elti mig upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)