21.5.2008 | 23:17
Tryggingar kosta of mikiđ á Íslandi
Dýrar tryggingar
Ađ undanförnu hef ég veriđ ađ kynna mér verđ og skilmála tryggingafélaga međ ţađ í huga ađ reyna ađ lćkka kosnađ viđ tryggingarnar mínar. Hef veriđ ađ láta gera tilbođ í tryggingarnar og árangurinn er nokkuđ misjafn eftir félögum. Ég borga tryggingarfélaginu mínu nálćgt 170,000 kr. á ári en ţar hef ég tryggt í 37 ár. Nokkur tilbođ hef ég fengiđ sem eru eitthvađ lćgri, en í gćr fékk ég tilbođ upp á 123.000 kr, sparnađur 47.000 kr. ţađ munar um minna.
En svo ţarf mađur ađ hugsa um hvađ er á bak viđ ţessar tryggingar, ţađ er ţrautin ţyngri ađ pćla í gegnum ţann frumskóg. Til dćmis er félagiđ mitt međ flestar upphćđir trygginga mun hćrri en flestir ađrir enda kosta ţćr meira, en ţeir eru líka oftar međ sjálfsáhćttu hćrri en hin félögin, ţannig ađ mađur fengi kannski minna út úr hverju tjóni.
En ţađ er fróđlegt ađ lesa ţessa texta frá tryggingarfélögum.
Eftirfarandi er dćmi frá mínu tryggingafélagi.
Lögbođinn ökutćkjatrygging Vátryggt Toyjata Raf 4 2007
Eigin áhćtta bílrúđutrygging 15% í hverju tjóni.
Innifalinn í vátryggingunni er lögbođinn ábyrgđartrygging og slysatrygging ökumans og eiganda og bílrúđutrygging. (Og nú kemur skemmtileg setning) Greiđi félagiđ bćtur fyrir tjón úr lögbođinni ábyrgđartryggingu eđa slysatryggingu ökumanns og eiganda sem rekja má til notkunar ökutćkisinns skal vátryggingartaki greiđa iđgjaldsauka ađ fjárhćđ 23.000 kr. Iđgjaldsaukinn fellur í gjalddaga ţegar félagiđ hefur greitt bćtur fyrir tjón samtals ađ fjárhćđ 50.000 kr eđa meira.
(Og síđan kemur rúsinan í pylsuendanum) Ársiđgjald ............... 94.355 kr
Stofnafsláttur ......... - 11.323 kr
Kynningarafsláttur ... - 8.304 kr
Tjónleysisafsláttur ... - 11.209 kr
Samtals iđgjald ...... 63519 kr
Stofn endurgreiđsla ... - 6.352 kr
Samtals á ári ............ 57.167 kr
*Kynningarafslattur fellur niđur viđ nćstu endurnýjun.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Nú skulum viđ gefa okkur ađ ég lendi í tjóni sem rekja má til notkunar ökutćkisins og tjóniđ sé metiđ á 50,000 kr ţá borgar tryggingarfélagiđ ađ sjálfsögđu ţessa upphćđ. En ég verđ ađ borga aftur til baka 23.000 kr. Ţannig ađ eftir stendur 27.000 sem tryggingafélagiđ ţurfti ađ borga. Ţá er ekki öll sagan sögđ, ég tapa einnig tjónleysisafslćtti upp á 11.209 kr. Nú eru eftir 15.791 kr sem tryggingarfélagiđ ţarfa ađborga. Siđan tapa ég endurgreiđslu á stofni sem er 13.509 kr og ţá er tap tryggingarfélagsins á ţessu 50.000 kr tjóni mínu heilar 2.282 kr. sagt og skrifađ tvö ţúsund tvöhundruđ áttatíu og tvćr krónur.
Er furđa ţó menn ruglist í ţessum skilmálum öllum saman, ţetta er bara lítiđ dćmi um hvernig tryggingarfélögin vinna. Ég spurđi starfsmann tryggingarfélagsins hvernig stćđi á ţví ađ ţarna stćđi kynningarafsláttur upp á rúmar 8000 kr. Hvor ţurfi ađ gefa mér kynningarafslátt ţar sem ég hefđi í 37 ár tryggt allt mitt hjá félaginu. Ég fékk ekki svar heldur bara lítiđ bros eđa glott út í annađ.
kćr kveđja SŢS
Bloggar | Breytt 22.5.2008 kl. 23:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)