Jólaauglýsingar, frændur mínir í jólaskapi

Nú eru fyrstu Jóla aulýsingarnar farnar að koma í fjölmiðlum þar sem auglýst eru jólahlaðborð og fl, það er engin maður með mönnum nema fara á minnst eitt til tvö jólahlaðborð fyrir jólin.

Gísli , Sigurður og FrostiSigmar Gíslason í Matrósarfötum

Þessar myndir eru af frændum mínum í jólafötunum, fyrri myndina tók ég fyrir margt löngu. Þeir heita t.f.v. Gísli, Sigurður og Frosti Gíslasynir og seinni myndin er af Sigmari Gílasyni bróðir þeirra, þessir peyjar eru allir þekktir Eyjamenn.

kveðja SÞS


En koma hér gamlar myndir frá Eyjum

Ólafur Á saltfiskur bak við húsið Vík  Bergur Hjálmholti

Mynd 1. Saltfiskur útbreiddur bak við húsið Vík sem stendur við Bárugötu sem nú er göngugata í Vestmannaeyjum. Á myndinni má sjá húsin t.f h. Hól, Vegg, Bjarma, Strönd ég þekki ekki fleiri hús.

Mynd 2. Mér er sagt að þetta sé Bergur í Hjálmholti í tunnu útskipun, hinir mennirnir eru óþekktir .

Pallarnir no 5 Útskipun á tunnum

Mynd 3. Hér er svo mynd af Pöllunum, bátum og innsiglingu í Vestmannaeyjahöfn með Ystaklett fyrir miðri mynd. Mynd 4. Skipað út tunnum, vinnubrögð sem ekki þættu góð í dag.

Myndirnar lánaði mér Ólafur Á Sigurðsson sem er gamall Eyjamaður og man þessa tíma, hann átti heima í Húsinu Vik á sínum tíma.

kær kveðja SÞS

 


Hljómsveitarstjóri og Lögga í búningum

Hljómsveitarstjóri með sprotann Freyr Friðriksson Lögga

Mynd 1. Stefán Sigurjónsson Skósmiður og Hljómsveitarstjóri í  Lúðrasveit Véstmannaeyja með metalíur, myndin liklega tekin á sjómannadaginn í Vestmannaeyjum.

Mynd 2. Freyr Friðriksson, en hann var um tíma í lögreglunni hér á Reykjavíkursvæðinu að mig minnir.

Kær kveðja SÞS

 


Áraskip við Vík í Mýrdal og sjómaður í skinnbuxum

Afrit af Ólafur Á Áraskip við vík Áraskip Við Vík í Myrdal líkleg áttæringur, því miður veit ég ekki nafnið á þessu skipi, þarna eru margir menn um borð og ef grant er skoðað sýnist mér einnig vera þarna konur, en á þessum skipum vor stundum áhöfn 19 til 20 menn þegar handfæri var eina veiðarfærið. Kannski er þarna verið að ferja fólk í land frá stærra skipi.

Ef einhver þekkir skipið þætti mér vænt um að fá um það athugasemd.

Afrit (3) af Ólafur Á  Myndirnar lánaði mér Ólafur Á Sigurðsson

Mynd 2: Einar Hjaltason formaður með áraskip og sægarpur mikill í Vík í Myrdal ( fæddur 1852) er þarna í skinnbuxum og sjóskóm með kollubandið við uppskipun í Vík.

Einar Hjaltason var formaður með áraskipið Björgu sem hann átti sjálfur, hann var mikill aflamaður.

Kær kveðja SÞS


Binni í Gröf og Kata

slide32  Hjónin Benóný og Katrín

Þessi mynd er af Aflakónginum Benóný Friðrikssyni (Binna í Gröf ) og konu hans Katrínu Sigurðardóttir, en Binni var frægur aflamaður sem gerði garðinn frægan á Gullborgu VE 38 og Katrín var sómakona, er mér minnistæðar allar þær flottu svokölluðu kaðalpeysur sem hún prjónaði og gaf mörgum manninum, þar á meðal fék ég hjá henni peysu.

Ég var með Binna á Gullborgu VE og Elliðaey VE hann var fínn kall og góður skipstjóri og eftirminnilegur persónuleiki. Hann hafði ýmis orðatiltæki sem ég man vel eftir. Þegar stundum var tvísynt með veður og við spurðum hann hvort það yrði farið á sjó miðað við þessa veðurspá svarði Binni oft: "það er alveg á nippinu að það sé sjóveður,, þegar hann svaraði með þessu orðatiltæki vissum við strákarnir að það yrði örugglega farið á sjó.

kær kveðja SÞS


Ótrúleg della að reka Sigmund

 

Ég hef nú sagt upp áskrift af  Morgunblaðinu. Ég er hundfúll að Sigmund sé hættur að teikna myndir  í blaðið og skil ekki ritstjórn Mbl að láta þetta ótrúlega góða efni  fara frá blaðinu. Það er staðreynd að manni hlakkaði alltaf til á  morgnana  að sjá mynd Sigmunds sem fékk mann ávalt til að byrja daginn með góðu brosi og stundum skellihlátri. Ef ég man rétt þá var gerð könnun hér fyrir nokkrum árum hvað lesendur blaðsins læsu mest eða skoðuðu af þeim málaflokkum sem í blaðinu var. Þar voru myndir Sigmunds í efsta sæti með yfir 90% lestur, Þetta hefur örugglega ekki breyst.

Sigmund er ekki bara skopteiknari á heimsmælikvarða eins og dæmin sanna, (en margar myndir hans hafa ratað í erlend stórblöð) heldur eru myndir hans með ólíkindum góðar fréttaskýringar sem allir menn skilja sem það vilja.

Þessi nýja ritstjórn mbl heldur kannski að það séu Staksteinar sem selja Mbl eða forustugreinar blaðsins , nei ég verð að viðurkenna að ég er löngu hættur að lesa þessháttar greinar í þessu blaði. Það sem ég á eftir að sakna frá Mbl er sú almenna umræða sem ennþá  fær að fara fram í blaðinu, en mig grunar að þess verði ekki langt að bíða að þar verði einnig klippt á frjálsa umræðu. Ég er sannfærður um að þessi ritstjóri blaðsins hefur rekið Sigmund eingöngu vegna þess að hann er hræddur við myndirnar hans, þær koma jú við kaunin á mörgum, sem eiga kannski hlut í sameinuðum blöðum og auglýsa  þar. Fyrverandi ritstjórar Mbl höfðu kjark sem kannski vantar nú hjá þeim mönnum sem ritstýra blaðinu á nýjum tímum.

Ég  hef verið áskrifandi að blaðinu allar götur síðan 1971 en án mynda Sigmunds hef ég ekki áhuga á  Morgunblaðinu.
Kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson


Stundum kemur skemmtilegur Tölvupóstur

 Er þetta ekki staðreynd ?

Hugarvíl og harmur dvín,
er horfi ég á frúna.

Hún er eina eignin mín

sem ekki rýrnar núna.

höfundur ókunnur

kær kveðja SÞS


Sjómannadagur í Vestmannaeyjum 1973

 Skemmtileg mynd frá eldgosinu í Vestmannaeyjum 1973 

Sjómannadagur 1973 t

Þessi mynd er tekin við minnisvarðan við Landakirkju á Sjómannadaginn gosárið 1973. Þetta er skemmtileg mynd sem sýnir Einar J. Gíslason minnast þeirra sem hafa druknað, eða hrapað í fjöllum við Vestmannaeyjar. Einar var fengin til að koma út í Eyjar þennan dag til að þessi þáttur Sjómannadagsins félli ekki niður þó önnur hátíðarhöld hafi verið haldin í Reykjavík, þessu man ég vel eftir. Á myndinni má líka sjá vörubíla og ámoksturstæki við vinnu við að hreinsa vikur sem dreifðist yfir Heimaey.

kær kveðja


Englendingar eru ekki okkkar vinaþjóð

 

Síðan hvenær hafa Englendingar verið vinaþjóð okkar?

Það eru jú nokkrir enskir togarasjómenn sem við höfum bjargað úr sjávarháska hér við íslandsstrendur, og víst hafa enskir togarasjómenn einnig bjargað íslenskum sjómönnum úr sjávarháska hér áður fyr þegar þeir voru við veiðar hér við land, sérstaklega þegar við vorum á smærri bátum. Þessir menn og fjölskyldur þeirra hafa svo sannarlega sýnt okkur vináttu sem við skulum muna, meta og gjalda í sömu mynt.

En að Englendingar almennt hafi gegnum tíðina sýnt okkur einhverja sérstaka vináttu er af og frá, þvert á móti hafa þeir sýnt okkur yfirgang og frekju t.d. í þorskastríðinu. Þeir eru en þá grútfúlir yfir því að skíttapa í því stríði, sem sannar það að þeir eru ekki vinaþjóð en þeir eru langræknir.  Nú í okkar miklu erfiðleikum sýndu þeir enn og aftur að þeir hugsa eins og alltaf fyrst og fremst um sjálfum sig, alla vega hafa ráðamenn þeirra skaðað okkur meira en nokkur önnur þjóð. Við ættum því ekki að kalla Englendinga vinaþjóð, því það er hún alls ekki.

Á næstu mánuðum kemur í ljós hverjir eru traustir vinir okkar.

 

 


Njótum dagsins við eigum hann

Einn góður vinur minn frá Ísafirði sendi mér þetta í dag.

Njótum dagsins, við eigum hann

Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.

Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.

Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.

Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.

Höfundur óþekktur

kær kveðja SÞS


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband