14.12.2009 | 18:19
Lítil hjartnæm jólasaga
Lítil hjartnæm jólasaga
Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum. Maður nokkur refsaði lítilli dóttur sinni fyrir að eyða heilli rúllu af gylltum pappír. Ekki var mikið til af peningum og því reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð. Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á aðfangadagskvöld og sagði: ,,Þetta er handa þér pabbi. Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður. En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnar og sagði: veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni ? Litla stúlkan leit til pabba síns með tárin í augunum og sagði: ,, Ó pabbi boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi minn.
Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrir gefa sér. Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans, hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans, þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.
Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum.Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.
Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum. Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------
Er ekki sterkur leikur að hætta að tala og hugsa um allt þetta neikvæða í kringum okkur og reyna að sjá björtu hliðarnar á lífinu. Þó skulum við ekki að gleyma því að það er mikið af fólki sem er í miklum erfiðleikum og þarf á hjálp að halda.
Kær kveðja SÞS
Athugasemdir
Amen.
Ásta Björk Solis, 14.12.2009 kl. 18:30
Falleg saga og segir okkur að ekki er allt sem sýnist.
Jóhann Elíasson, 15.12.2009 kl. 08:11
Helgi Þór Gunnarsson, 16.12.2009 kl. 11:00
Var svo hrifinn af sögunni að ég fékk hana að láni hjá þér til að setja inn á Facebook hjá mér ;)
Bestu kveðjur Gilli
Gilli (IP-tala skráð) 16.12.2009 kl. 14:41
Þakka fyrir söguna. Það er ekki vanþörf á að minna mann á birtuna heima fyrir, mitt í öllu svartnættisrausinu úti í samfélaginu.
Svo vil ég nefna að ég hef verið svo heppinn að ferðast með ferjunni hér neðar, alls fjórum sinnum, frá Odden til Ebeltoft og til baka. Þetta er ekki nema 33000 hestafla trilla og sígur þetta 45 hnúta áfram. Við fórum fram hjá þokkalega ganggóðum bát sem virtist hreinlega stopp! Reyndar áttar maður sig ekki alveg á hamaganginum fyrr en maður fer aftur úr farþegarýminu út á smádekk sem er aftast á skipinu. Þá loks finnst hraðinn almennilega!
Gunnar Th. (IP-tala skráð) 16.12.2009 kl. 16:29
Sæl Öll hér fyrir ofan og takk fyrir innlitið og athugasemdir. Ég hef ekki mátt vera að því að blogga siðustu daga var að vinna út í Vestmannaeyjum á þríðjudag og flaug heim á miðvikudag, alltaf jafn gaman að koma heim til Eyja ekki hvað síst í góðu veðri.
Gilli það er gaman að þú skulir láta söguna ganga hún ætti að fara sem víðast. Vonandi láta fleiri söguna ganga .
Gunnar Th. Þakka þér kærlega fyrir fróðleik um ferjuna, allaf gaman að fá svona athugasemdir.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 17.12.2009 kl. 23:11
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Sæll og blessaður
Ég er alltaf heilluð af þessari sögu. Tveir síðustu pistlar hjá mér gætu höfðað til þín.
Guð blessi þig og varðveiti.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.12.2009 kl. 00:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.