19.9.2009 | 14:13
Eilífðin hans Gísla Johnsen
Gísli J Johnsen segir svo frá í samtalsbók ( Fólkið í landinu I.): ,, Árið 1924 byggði ég í Vestmannaeyjum fyrstu stóru fiskvinnslustöðina á landinu. Áður vann fólk þar að fiskaðgerð og þvotti undir berum himni, en í þessari nýju fór það allt fram innanhús. Sett var upp matstofa fyrir verkafólk, salerni og þvottaskálar með rennandi vatni, en það var nýmæli á vinnustöðum. Húsið var um 100 álnir og var það því kallað í spaugi "Eilífðin".
Um Eilífðina sagði Þorsteinn í Laufási í Aldarhvörfum : " Þar sem menn voru almennt óvanir stórum húsum til aðgerðar á þessum árum þótti Eilífðin svo stórt hús , að aldrei yrði þörf á öllu því húsrými. En strax á næstu árum varð sá landsburður af fiski að húsið reyndist og lítið. Loksins hverfur svo þetta hús inn í Hraðfrystistöðina miklu, sem Einar Sigurðsson byrjaði að reisa og reka um 1940.
Eilífðin er fyrir miðri mynd, ofangreindur texti er úr grein sem vinur minn Haraldur Guðnason skrifaði um Eilífðina í Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1994.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.