Minning um mann: Sigurður Ingimundarson skipstjóri.

 

Sigurður Ingimundarson skipstjóri.  F. 22. maí 1878. D. 5. apríl 1962.

Myndina tók Sigurgeir Jónasson  hún er úr Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1995

Hann var alin upp í sveit

um ættfólk hans ég lítið veit,Sigurður Ingimundarson á bryggjunni

ungur flutti í Eyjarnar

aflaði sér fægðar þar.

 

Fór hann strax að sækja sjó

sótti fram því kapp var nóg,

ekki var þá unt að sjá

hvort aflakló hann væri þá.

 

Kostir hans þá komu í ljós

kunni það sem þarf til sjós,

áræði og einbeitt geð

aflasæld og heppni með.

                                                            

Ef hann hafði öflugt far

aflkóngur löngum var,

fyllti lest og lét á dekk

löngum ef hann Blikann fékk.

 

Flaggskip Blikinn veglegt var

af Vestmannaeyja skipum bar.

Siggi Munda sótti fast

þó sýndist öðrum veður hvasst.

 

Einskipa hann oft var þá

aldrei kom hann Skansinn á,

fór um borð, varð fljótt um vik,

fulla ferð og ekkert hik.

 

Oft var hann þá einn á sjó

í ofsaveðri netin dró,

át svo skorið eins og mat

einna mest þá fiskað gat.

 

Veikur aldrei varð hann samt

vænan hafði fengið skammt

af orku og hreysti á æsku tíð

þó ekki væru kjörin blíð.

 

Ævistarf hans veglegt var

í Vestmannaeyjum hátt hann bar

sinni þjóð hann syni gaf,

sóma menn sem báru af.

 

Nú er hetjan fallin frá

fögnuður varð himnum á

er hann sigldi óskabyr

inn um himins fögru dyr.

 

Ljóðið er eftir Benedikt Sæmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir að minnast afa,ég á bæði mynd og ljóð.Ég er sammála með nafnið á sjómannadeginum,þessi dagur verður alltaf

SJÓMANNADAGUR og ekkert annað.

margrét júlíusdóttir (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband