Heimsókn í Álsey í sumarblíðu

Álsey 01Álsey 03

 Myndir hér að ofan eru af  þessari fallegu eyju Álsey, og seinni myndin er af Sigurði skipstjóra á Þyt VE og undirrituðum fyrir utan veiðihúsið í Álsey ( ekki veiðikofan)

Árið 1992 eða 1993 var farið á Þyt VE bát Sigurðar Óskarssonar kafara m.m. í ferð kringum Heimaey, í þessari ferð var komið við í Álsey þar sem álseyingar buðu okkur upp á kaffi og kökur í glæsilegu nýlegu veiðihúsi, myndirnar tók undirritaður í þessari ferð.

Álsey 04

 Álsey 06

 Mynd 3 er af Sveini Rúnari Valgeirssyni, því miður veit ég ekki hvað strákurinn  í bláu blússuni heitir en þessi í horninu heitir Marteinn Eyjólfsson sonur Edda Malla.  Á mynd 4 eru tfv; Soffía Sigurðardóttir. Sigurbjörg Óskarsdóttir, Kolbrún Ósk Óskarsdóttir og Sigurður Óskarsson.

 

Álsey 07Álsey 08

Jón Bjarni Hjartarson, Sigurgeir Jónasson og Harpa Sigmarsdóttir. Næsta mynd: Tfv; Júlíus Steinarsson ættaður frá Skuld,  standandi Guðjón Sveinsson  Loftur Guðmundsson brúnn og sællegur og í lopapeysu Leó Snær Sveinsson, þekki því miður ekki þann sem situr lengst til vinstri. Ef einhver sem les þetta blogg mitt þekkir þá sém ég nafngreini ekki þætti mér vænt um að fá athugasem hér við þetta blogg.

kær kveðja SÞS


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á síðustu myndinni þekki ég Leó Snæ Sveinsson í lopapeysunni og Guðjón bróður hans standandi.Synir Svenna Valgeirs og Þóru Guðjóns. Aðra þekki ég ekki. Kveðja til ykkar Simmi.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 21:48

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Ragna þakka þér kærlega fyrir þetta, ég set þessi nöfn strax inn.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 26.5.2009 kl. 21:59

3 identicon

Sæll Simmi.

Þessi drengur í horninu á þriðju myndinni með rauða öfuga húfu á hausnum er Marteinn Eyjólfsson, sonur Edda í Ísfélaginu. Malli er bara svo óþroskaður á þesari mynd.

Kveðja frá Eyjum

Pétur Steingríms.

E.S. Alltaf gaman að skoða síðuna þína. Þessar gömlu myndir eru frábærar. Ég set stundum eina og eina grein frá þér og myndir á facebooksíðuna mína og fæ mjög jákvæð viðbrögð.

Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 01:30

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Pétur, langt síðan þú hefur sett hér athugasemd. Þakka þér fyrir þessar upplýsingar um Martein ég hefði nú átt að vita nafnið á honum. Það er gaman að heyra að þú sért að nota þetta efni og fáir góð viðbrögð. Þakka þér fyrir þetta innlit og við biðjum að heilsa hér úr Kópavogi.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 27.5.2009 kl. 21:55

5 identicon

Á myndini með Lofti, Leó og Guðjóni er Júlíus Steinarsson ættaður frá Skuld. Mamma hans er systir Sigurgeirs

Eyjakv. Halli Steini

Halli Steini (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 17:49

6 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Halli Steini og þakka þér fyrir þessar upplýsingar, þá eru öll nöfnin komin.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 2.6.2009 kl. 00:02

7 identicon

Hver er drengurinn í bláu peysunni á mynd nr.3 ???

Kveðja.

Pétur Steingríms.

Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband