11.3.2009 | 22:01
Sjöstjörnu VE 92 sökkt við Eyjar
Myndirnar tók ég þegar Sjöstjörnu VE 92 var sökkt norðan við Heimaey. Félagar í Félagi áhugamanna um öryggismál sjómanna sökktu bátnum til að gera tilraunir með losunar- og sjósetningarbúnað. Mikill áhugi var í Vestmannaeyjum á þessum árunum 1970 til 2000 til að bæta öryggi sjómanna, enda höfðu á þessum árum margir sjómenn frá Vestmannaeyjum látið lífið í sjóslysum. Þá var stofnað þetta félag sem fékk nafnið Félag áhugamanna um öryggismál sjómanna. Í félaginu voru 18 menn sem allir höfðu brennandi áhuga á þessu verkefni og stóðu fyrir mörgum tilraunum með ýmsan öryggisbúnað sem nú hefur verið lögleiddur.
kær kveðja SÞS
Athugasemdir
hvar var henni sökkt ?
kv.
Árni Sigurður
Árni Sigurður Pétursson, 16.3.2009 kl. 21:31
Heill og sæll Árni Sigurður, við sökktum bátnum norðan við Stóra Örn á 18 metra dýpi.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 16.3.2009 kl. 22:53
Já ok :)
mig minnti einmitt að hún væri það, en var bara ekki öruggur
Árni Sigurður Pétursson, 16.3.2009 kl. 23:06
SjÖstjarnan var VE-92
Bestu Kveðjur GG.
Guðni Gríms. (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 21:13
Heill og sæll Guðni takk fyrir þessa leiðréttingu
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 22.3.2009 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.