Gamlar vertíðarmyndir

Á netaveiðum Hildingur VE 3 sk

Á þorskanetum, þarna er vel í netunum boltaþorskur og enginn kvoti. Mynd 2. Mb Hildingur VE 3 báturinn var smiðaður í Svíþjóð 1956 hann var 56 brl. eikarbátur með 240 ha. June Munktell vél.

Hildingur VE 3 var smíðaður fyrir Helga Benidiktsson og var báturinn gerður út frá Vestmannaeyjum til ársins 1964 en þá var hann seldur frá Eyjum til Kópavogs. Hann var talinn ónýtur og tekinn af skipaskrá 1967. Helgi Benidiktson útgerðarmaður og fiskverkandi átti tvo aðra svipaða báta sem hétu Frosti VE 363 og Fjalar VE 333.

kær kveðja SÞS


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband