Minningar um fyrstu vélstjóravaktina mína

 

Fyrsta vakt mín sem vélstjóri.

Það var um árið  að ég réð mig sem vélstjóra á Gullborgu ER 38. Skipstjóri var Benóný Friðriksson oftast nefndur Binni Í Gröf. Fyrsti vélstjóri var Einar Sigurðsson, sem var með Binna í fjölda ára, hann var hörkuduglegur náungi og eldklár vélstjóri . Báturinn var búinn til síldveiða með nót.

Gullborg RE 38

Ég hafði þá  nýlega lokið vélstjóranámskeiði Fiskifélags Íslands, sem haldið var í Eyjum 1963  að Breiðabliki og verkleg kennsla á vélar og rafmótora var kennd í gömlu rafstöðinni við Kirkjuveg. Þetta námskeið gaf mér vélstjóraréttindi allt að 400 hestöflum sem dugði til að vera vélstjóri á flestum bátum í Eyjum á þessum tíma. Á þessum tíma fannst manni maður vera búinn að mennta sig  til lífstíðar. Það væri synd að segja að ég hafi ekki haft áhuga á starfinu og öllu því sem við kemur vélum, fannst ég reyndar búinn að læra svo mikið um vélar að ég væri fær í flestan sjó.

Um þetta leyti var Gullborgin orðin hrörleg og illa útlítandi (seinna var hún endurbyggð) . Vægast sagt voru mannaíbúðir vart mönnum bjóðandi, svo ógeðsleg var slagvatnslyktin þegar báturinn fór að velta eftir inniveru að maður komst ekki hjá því að vera sjóveikur fyrstu klukkutímana um borð. Sem dæmi má nefna að svo hriplegt var þilfarið að ef rigndi eða smá pus gekk yfir bátinn þegar keyrt var á móti í slæmu veðri, þá lak sjór eða vatn niður í mannaíbúðir. Svo ekki læki í efri kojur, var segl neglt fyrir ofan þær og þannig var lekanum veitt út í síðu svo sængurfötin blotnuðu ekki.

Einar Sigurðsson

 Binni með hnísu

Þá var ekki óalgengt að bekkirnir við matarborðið klipu mann óþyrmilega í afturendann, sérstaklega þegar voru brælur og mikill veltingur. Skýringin á þessu var að síldarnótin var í nótarkassa  aftur á bátadekki fyrir ofan kokkhúsið og messan. Í veltingi liðaðist þetta sitt á hvað með braki og brestum. Ég hef oft hugsað um þetta eftir að ég varð sjálfur skipaskoðunarmaður, í dag fengi bátur í þessu ástandi ekki að fara á sjó.

Minnistætt er mér að á kabyssurörinu hjá Magga Kokk ( Magnús Sigurðsson) var samsetning á rörinu sem gekk upp og niður í rörið um nokkra sentimetra á veltunni, það var magnað að fylgjast með þessu. Oft var hlegið dátt af þessu en menn gátu fylgst með þessu frá matarborðinu. Ég sagði eitt sinn við Binna að mér finndist  braka ískyggilega mikið í bátnum, en hann svaraði að bragði að þetta væru traustabrestir, sem ekki heyrðust nema í góðum bátum. Svei mér þá ég held í alvöru að hann hafi meint þetta.

Magnús Sigurðsson kokkur

Minnistæðast frá þessari vertíð er mín fyrsta vakt sem vélstjóri og við fengu fullfermi af síld.

Binni kastaði austarlega í Bugtinni og fengum við strax gott kast. Þegar búið var að þurrka að var strax byrjað að háfa síldina upp í bátinn, og er nokkuð var komið í lestina fór Einar vélstjóri niður í vél. Stuttu síðar er var skellettinu á vélarrúminu skrúfað upp og Einar heyrist öskra: ,,Binni slökktu á kastaranum ég þarf að lensa" . Um borð í Gullborg voru rafmagnslensur, en rafmagnsframleiðsla var ekki nægilega mikil til að nota bæði lensur og ljóskastara samtímis.

Það gekk vel að fá í ,,Gonnuna" ein og Einar kallaði bátinn oftast, og við fengum 1100 tunnur   í tveimur köstum. Þegar lagt var af stað til lands var byrjað að bræla, og báturinn sigin með þennan afla.

Einar hafði á útleiðinni kennt mér á vélina, lensurnar og fleira, hvernig ég ætti að fylgjast með mælum og fleiru sem góðum vélstjóra sæmir. Þá sýndi hann mér rafgeymakompuna sem er nú ekki staður sem daglega er litið eftir.

Þegar ég kem aftur í borðsal eftir að búið er að gera sjóklárt á dekkinu, er Einar vélstjóri að koma upp úr vélarhúsi. Hann segir að nú eigi ég að taka mína fyrstu vakt, en ég þurfi nú ekki að fara strax niður því hann sé nýbúinn að smyrja og lensa, það þurfi því ekki að fara niður fyr en eftir hálftíma. Á þessum árum var það regla á þessum bátum að vélstjóri fór í vélarrúmið til eftirlits  á hálf til eins tíma fresti.

Óskar og Binni

Ég settist því bara niður í borðsalnum og fékk mér kaffi með hinum skipverjunum en það var alltaf gott með kaffinu hjá Magga kokk, hann var góður kokkur og skemmtilegur karakter.

Einar fer nokkru síðar í koju, en minnir mig á að hika ekki við að vekja sig ef eitthvað athugavert komi uppá. Einar hafði koju frammí lúkar á Gullborg.

Nokkru síðar fer ég niður í vélarrúm að huga að vélinni og athuga hvort einhver sjór sé kominn í bátinn. Ég byrjaði á að fara afturí  rafgeymakompu, og athuga geymana eins og góðum vélstjóra sæmir. Rafgeymakompan var út við síðu frekar ofarlega. Þegar ég opna þar inn bregður mér heldur en ekki í brún, þegar ég sé að sjór lekur þar inn um síðuna - þó nokkur leki að mér fannst.

Ég hljóp upp úr vélarrúmi og í stýrishúsið til Binna skipstjóra og sagði honum all óðamála, að allmikill leki væri inn í bátinn í rafgeymakompunni. Ekki gat ég séð á Binna að honum brygði mikið við þessi tíðindi, en sagði við mig sallarólegur eitthvað á þá leið , að ég skyldi láta Einar vélstjóra kíkja á þetta.

Ég hljóp því næst fram í lúkar þar sem Einar lá steinsofandi í koju sinni. Vakti ég hann og sagði honum að mikill leki væri kominn að bátnum. Það læki sjór inn í bátinn afturí geymakompu og hann yrði að koma og kíkja á þetta. Einar hentist fram úr kojunni og í stigvélinn sín en spyr um leið hvort þetta sé mikill leki. ,, Já töluverður" segi ég. Alla vega verður þú að kíkja á þetta. Hljóp ég síðan aftur í vélarrúm og Einar fast á hæla mér. Þegar við komum niður að geymakompu, bendi ég honum á lekann, sem mér þótti heldur hafa aukist. ,,þarna er hann" segi ég töluvert æstur. Einar litur á lekann og síðan á mig og segir sallarólegur: ,, Er þetta nú allur lekinn? ". ,,Já",segi ég, ,,finnst þér þetta ekki töluvert mikið?  - það lak hér ekki dropa í morgun".

Einar leit á mig hálfgerðum vorkunnaraugum og segir, að mér fannst hálffúll: ,, Að vísu lak hér ekkert í morgun það veit ég, en það er nú einu sinni þannig, að þegar komið er í Gonnuna sígur hún í sjó og það fer að leka á ýmsum stöðum og það oft meira en þetta. Við köllum þetta vart meira en rottupiss". Að svo mæltu fór Einar upp en sagði um leið við mig að ég mætti ekki vekja sig nema eitthvað umtalsvert kæmi uppá. Ég sat eftir hálfskömmustulegur, en fór svo að smyrja vélina  og lensa út ,, rottupissinu".

Vaktin gekk vel og tíðindalaust eftir þetta og siglingin heim til Vestmannaeyja. Þar með lauk minni fyrstu vakt sem vélstjóra. En í  vélstórastarfinu var ég í 11 ár á þremur bátum í Eyjum.

Myndir: nr.1 Gullborg RE 38 takið eftir síldarnótinni aftur á bátapalli, nr.2. Binni með hnísu sem hann skaut, nr. 3. Einar Sigurðsson vélstjóri. Nr. 4. Magnús Sigurðsson kokkur. nr. 4. Óskar og Binni.

Kær kveðja


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtileg lesning þetta Simmi.

Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 07:55

2 identicon

Þetta voru svo flottir karlar. Þú hefur þá fljótlega kynnst mikilli vinnukergju frændi?

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 16:35

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Pétur og Halla og takk fyrir innlitið. Það er jú gaman að hafa kynnst þessum mönnum eins og Binna, Einari og magga, þarna voru um borð auk þeirra sem ég hef nefnt: Sævar í Gröf, Valur Rósu, Diddi (Sigurður Jónsson) Toni svo eithverjir séu nefndir, allt hörkuduglegir og mjög skemmtilegir strákar.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 21.1.2009 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband