Trjámaðkur og tréæta í tréskipum

Trjámaðkur og tréæta í tréskipum.

 Varðar öryggismál sjómanna.

Nokkuð hefur verið um það á síðustu árum að tréskip sökkvi við bryggju og reyndar einnig úti á rúmsjó. Þegar það gerist í höfnum er auðvelt að rannsaka og finna út ástæður þess að skipið sökk, en ef það sekkur úti á rúmsjó er erfiðara um vik. Dæmi eru um að tréskip hafa sokkið eða verið við það að sökkva vegna þess að þau hafa verið maðk- og/eða tréætuétin. Man ég eftir nokkrum tilfellum frá því ég byrjaði að vinna við skipaskoðun.

En þurfum við að hafa einhverjar áhyggjur af þessum trjámaðki og tréætum og er eitthvað eftir af tréskipum við Íslandsstrendur ?.  Á íslenskri skipaskrá eru í dag 218 skip smíðuð úr eik eða furu. Þessi skip eru af ýmsum stærðum og eru þannig skráð eftir notkunartegund í skipaskrá. Fiskiskip 140, skemmtibátar 54, farþegabátar 10, farþega og fiskiskip 3, lóðsbátar 2, og eitt víkingaskip. Þessi upptalning sýnir  að enn er töluverður fjöldi tréskipa í notkun við strendur landsins.

Trjámaðkur er í raun ekki  maðkur, heldur skeldýr, eða samloka (Mollusca) með litla skel á framendanum sem hefur ummyndast og nýtist sem bor og borar hann sig inní tré. Sama er að segja um tréætuna. Hún er heldur ekki krabbi, en af ættkvíslinni jafnfætlur (Isopoda). Munur á skemmdum eftir maðkinn og tréætuna, (staurakrabba) er sá, að maðkurinn leynist inn í viðnum og holar hann að innan, en jafnfætlan og skemmdirnar eftir hana eru alltaf sjáanlegar á yfirborði.

Á síðustu árum hafa trjámaðkur og tréæta fundist í trébátum jafnvel á stöðum þar sem þessi kvikindi hafa ekki sést í áratugi. Skýringin gæti verið sú að hér áður fyrr var öllu skolpi dælt í hafnirnar eins og t.d. sápu, klór, vítissóta og fl. Þessi efni hafa sennilega drepið kvikindin eða haldið þeim í skefjum, allavega var lítið um að þau næðu að komast í tréskipin. Þegar aftur á móti kröfur voru gerðar um að koma skolpi út úr höfnunum og skolphreinsi­stöðvar komu til sögunar, og hafnir urðu aftur hreinar fór að bera meira á trjámaðki og tréætu í það minsta í sumum höfnum.  Það er því nauðsynlegt  eins og reyndar alltaf hefur verið að hugsað sé um að taka upp og hreinsa tréskipin og mála árlega, annars  mega menn eiga von á að skip þeirra verði þessum kvikindum að bráð. Trjámaðkurinn og tréætan geta gjöreyðilagt botn á tréskipum á stuttum tíma ef ekkert er að gert. Ekki nægir að tjarga eða bera blakkfernis á botninn eingöngu, þó það hjálpi mikið, heldur verður að bera sérstakan botnfarva yfir tjöruna eða grunninn.

Maðkurinn er örlítill þegar hann kemur inn í viðinn og gatið út úr viðnum verður aldrei stærra en það er í byrjun þegar maðkurinn kemur í hann. Hins vegar heldur maðkurinn áfram að stækka inn í viðnum meðan hann lifir, sem er á bilinu 15 til 18 mánuðir. Hann fer aldrei út úr viðnum né inn í hólf eftir annan maðk. Trjámaðkurinn er þar af leiðandi mun alvarlegra vandamál en tréætan, þar sem erfitt getur verið að sjá götin eftir hann í viðnum, þó svo viðurinn sé kannski orðinn sem næst holur að innan.

Trjámaðkurinn lifir ekki í fersku vatni og hann verður að hafa opna leið út í sjóinn til að þrífast. Þetta litla auga sem hann gerir þegar hann kemur í viðinn opnar leið fyrir sjó inn í viðinn. Ef málað er yfir gatið eða því lokað á annan hátt, drepst trjámaðkurinn. Holrúmið sem hann hefur gert verður þó að sjálfsögðu áfram til staðar, en það getur þó verið betra að láta það vera óhreyft, en að sponsa viðinn eða höggva skemmdina úr, ef holrúmið er ekki því stærra. Stærð á holrúmi eftir trjámaðk má kanna með því að reka vír eða annað sambærilegt inn í gatið sem trjámaðkurinn skilur eftir sig.

Gamall skipaeftirlitsmaður sagði mér að þegar maðkétnir bátar voru teknir á land á sumrin og þeir stóðu í heitu veðri, þá kom hvítur vökvi út úr götunum eftir trjámaðkinn. Þetta gerist þegar trjámaðkurinn drepst inni í viðnum. þetta var kallað að báturinn gréti mjólk.

Tréætan (staurakrabbi) er vel þekkt í íslenskum trébryggjum. Hún lifir á mörkum flóðs og fjöru. Tréætan sem finnst oftast upp undir skörum í bátsskrokkum, er jafnfætla (Isopoda), sem borar sig inn í tréð. Hún verður um 6 mm löng, og 1-2 mm í þvermál og í flokkum svo þéttum að veggirnir á milli þeirra eru aðeins brot úr mm að þykkt og skolast því létt í burtu, en önnur kynslóð af þessari jafnfætlu kemur í staðinn, ef ekkert er að gert. Til að forðast skemmdir af völdum trjámaðks og tréætu er nauðsynlegt að láta útsúð tréskipa aldrei vera bera, heldur bera á hann viðurkenndan botnfarva.

Myndir koma síðar Crying

kær kveðja SÞS


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Flott og mjög svo fróðleg grein.  En hvað varð um myndirnar?

Jóhann Elíasson, 10.1.2009 kl. 00:10

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, já ég ræð bara ekkert við þær. Ég var búinn að raða þeim flott upp en þegar ég vistaði þetta fór allt í klessu hjá mér  kann ekki nogu vel að setja myndir með textanum.Kannt þú á þetta jóhann?

 Takk fyrir innlitið.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 10.1.2009 kl. 00:18

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er nú enginn snillingur í þessu Sigmar, í þau fáu skipti sem ég hef verið með myndir í færslunum hjá mér, hef ég lent í bölvuðu klandri en einhvern vegin hef ég nú reddað þessu, en ég veit að Hallgrímur er klár í þessu og svo hann Ólafur Ragnarsson.  Ég ætlaði nú ekkert að vera með leiðindi út af myndunum og aftur þakka ég þér fyrir góða og fróðlega grein.

Jóhann Elíasson, 10.1.2009 kl. 12:07

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, þetta er þokkalegur fjandi. það er ekki öll vandamál leist með því að farga skolpi, mér finnst málshátturinn" af misjöfnu þrífast börnin berst" eiga vel við hér.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 10.1.2009 kl. 23:18

5 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Sigmar.

Þakka þér sérstaklega fyrir þetta tek undir með Jóhanni Elíassyni fróðlegt væri ef þú myndir halda þessu áfram að sýna okkur myndir ef það væri hægt.

Tel þessar upplýsingar þínar vera fróðlegar og áhugaverðar fyrir eigendur tréskipa til að forðast slys ef bátur myndi sökkva og ástæðan væri ókunn.

Þess vegna þarf að miðla þessum upplýsingum til eigenda tréskipa og annarra. Sigmar þetta er frábært framtak hjá þér. þakka þér sérstaklega að upplýsa okkur um þetta.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 11.1.2009 kl. 20:48

6 identicon

Þetta eru merkilegar og fróðlegar upplýsingar hjá þér eins og allt annað sem þú setur á síðuna þína. Þú sýndir mér maðkétna viðinn sem þið eruð með upp á vegg hjá Siglingamálastofnun og er alveg ótrúlegt að sjá hvernig maðkurinn fer með hann. Gaman væri ef þú gætir komið myndunum inn með greininni. Er þetta vandamál verra í einum landshluta frekar en í öðrum ??? Svo væri gaman að fá upplýsingar hjá þér, hvað margir trébátar eru enn í notkunn hér á landi, veistu það Simmi.

Kv.

Pétur Steingríms.

Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 16:47

7 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann og gleðilegt ár og þakka þér fyrir liðnu árin. það er langt síðan ég hef heyrt frá þér, heimsæki síðuna þína reglulega en þú hefur litið bloggað undanfarið. Vonandi ert þú hress og kátur þrátt fyrir öll þessi vandræði í þjóðfélaginu.  Því miður er ég í vandræðum með myndir sem ég ætlaði að hafa með þessari grein, en vonandi klára ég það á næstu dögum. Já ég er nú að setja þetta hér inn til að minna menn á að þessi kvikindi eru ekki horfin þó lítið sé rætt um þau.

Hafðu það alltaf sem best

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 12.1.2009 kl. 17:59

8 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Pétur, já að var einmitt myndir af því sem ég var búinn að setja hér inn og nokkrar fleiri. Ég veit ekki hvort þetta er verra vandamál í einum landshluta frekar en öðrum. Eins og ég sagði i greininni  eru 218 tréskip á skipaskrá og þau eru með haffæri  eða geta fengið haffæri.

kær kveðja

Takk fyrir innlitið Pétur

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 12.1.2009 kl. 19:03

9 identicon

Sæll aftur Simmi

Ég ætlaði nú að orða spurninguna öðruvísi en ég gerði.

Ég sá það nú i greininni með fjöldann en hvernig skiptist þetta hlutfall á milli landshluta ?? Hér í Eyjum sér maður varla orðið trébát í dag. Það kemur mér á óvart hvað þetta eru mörg fiskiskip.

Pétur Steingríms. (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 09:22

10 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Pétur, Ég veit nú ekki hvernig þetta skiptist milli landshluta, og það er erfitt að finna út hvað mörg fiskiskip eru í raun að fiska. En þessar tölur tók ég beint út úr skipaskrá eins og hún er í dag.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 13.1.2009 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband