Lítil hjartnæm Jólasaga

 

Lítil hjartnæm jólasaga      

Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum. Maður nokkur refsaði lítilli dóttur sinni fyrir að eyða heilli rúllu af gylltum pappír.  Ekki var mikið til af peningum og því reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð.  Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á aðfangadagskvöld og sagði:  ,,Þetta er handa þér pabbi‘‘.  Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður.  En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig að boxið var tómt.  Hann kallaði til dóttur sinnar og sagði:  veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni?‘‘  Litla stúlkan leit til pabba síns með tárin í augunum og sagði: ,, Ó pabbi boxið er ekki tómt.  Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi.‘‘

Faðirinn varð miður sín.  Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrir gefa sér. Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans, hafi hún fundið gyllta boxið frá  því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans, þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp  ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum.  Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.

Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum.  Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum.

Látum þessa sögu berast um víðan völl

Kær kveðja SÞS


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Fallegt . Jólakveðja .

Georg Eiður Arnarson, 21.12.2008 kl. 14:08

2 Smámynd: Kolbrún Harpa Vatnsdal  Kolbeinsdóttir

Æ..mikið er þessi saga falleg..maður fékk tár í augun við lesturinn. Innilegar jólakveðjur til þín og þinna

Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 21.12.2008 kl. 16:36

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Mikið er þetta falleg saga. Ertu búinn að lesa söguna sem ég setti á bloggið hjá mér um Nonna?

Guð gefi þér og þínum Gleðileg Jól og farsæld um ókomin ár.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.12.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, Falleg saga hjá þér kæri bloggvinur.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 21.12.2008 kl. 23:46

5 Smámynd: Valur Stefánsson

Falleg saga vinur.

kv. Valur

Valur Stefánsson, 22.12.2008 kl. 00:32

6 identicon

Falleg saga Simmi...takk fyrir mig og gleðileg jólin. Kveðja til þín og þinna!!

Eygló Björnsdóttir (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 10:26

7 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl öll sömul og þakka ykkur góðar kveðjur til mín og minna, já þetta er stutt og falleg saga  sem segir allt sem segja þarf um hugrenningar barna um jólin. Hún hefur líka ótrúlega mikil áhrif. Ég óska ykkur gleðilegra jóla og þakka ykkur innilega fyrir innlitið og þessar góðu athugasemdir.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 22.12.2008 kl. 21:58

9 identicon

 Guð gefi ykkur Gleðileg Jól. Kær kveðja Guðrún Hlín Adolfsdóttir og Fjölskylda KÓP.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 11:01

10 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Rósa takk fyrir þessa jólakveðju, ég bið kærlega að heilsa Aðalsteini Pabba þínum og vonandi eigið þið góð jól.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.12.2008 kl. 11:13

11 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Guðrún frænka og fjölskylda, sömu leiðis eigið þið gleðileg jól .

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.12.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband