Að keyra drukkinn er dauðans alvara

 

Keyrum ekki drukkin

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að  kaupa gjafirnar  sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.  Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði  "Þetta á eftir að  taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".  Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju  árinu. Ég  vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað  svo eftir að jólin eru yfirstaðin.  Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að  skoða verðin,  hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng.
 Eftir smá  tíma í leikfangadeildinni, tók ég eftir litlum strák um 5 ára,  sem hélt  á dúkku upp við brjóstið sitt.  Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.  Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina  á honum og spurði "amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?"  Gamla konan  svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna  elskan mín" Svo  bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún  skoðaði sig um.  Hún fór fljótlega.  Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði  til hans og  spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta  er dúkkan sem
 systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.  Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.  Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma  með dúkkuna til  hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði
 við mig  sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni  dúkkuna þar sem hún er
 núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið  henni hana þegar
 hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann  sagði þetta.  "Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi  segir að mamma sé líka  að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið  með dúkkuna  fyrir mig og gefið systur minni hana".
 Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp  til mín og  sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg  strax.  Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni"  Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi.
 "Ég vil líka að  mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei"
 "Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki  að fara, en pabbi  segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".  Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur.  Ég  teygði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og  sagði við  strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka
 hvort að þú eigir  nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég  vona að ég eigi nóg"
 Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir  því og við  byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni,  og meira að segja  smá afgangur.
 Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan  pening. Svo leit  hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá  bað ég Guð um að vera  viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna  handa systur  minni. Hann heyrði til mín, mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta  rós handa mömmu,  en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa  rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".  Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn.  Ég kláraði að
 versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um  litla strákinn.
 Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður  keyrði  drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa  voru í. Litla  stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan  varð að ákveða hvort  það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga  konan myndi  ekki vakna úr dáinu. Ég hugsaði, var þetta fjölskylda litla stráksins?
 Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu  að unga  konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð  og keypti búnt  af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar

sem fólk gat séð konuna  og kvatt  í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.  Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni  af  litla  stráknum og dúkkuna á brjóstinu.  Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar.  Ástin sem  þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn  þann dag í dag,  erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður  þetta allt frá  honum.


 Núna hefur þú 2 kosti:
 1) Sendu þessi skilaboð til allra sem þú þekkir.
 2) Eða hentu þessu og láttu sem þetta hafi ekki snert hjartað  þitt.


 Ef þú sendir þessi skilaboð, þá kannski hindrar þú einhvern  til þess að keyra drukkinn.

Vinur minn sendi mér þessa sögu í gær, hún á erindi til  allra.

Kær kveðja

Sigmar Þór


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Góða kvöldið Sigmar, þessi saga vekur upp í huga mans margar spurningar og snertir mann djúpt, mjög áhrifarík sem endar bæði illa og vél, takk fyrir góða sögu Sigmar. Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 16.12.2007 kl. 21:25

2 Smámynd: Valur Stefánsson

Takk fyrir góða sögu Simmi.  Þetta vekur mann til umhugsunar hvað knýr manneskjuna til að aka undir áhrifum áfengis og annara vímuefna.  Mér finnst alltaf dómarnir fyrir svona lagað allt of vægir, þetta er ekkert annað en tilraun til manndráps.

Valur

Valur Stefánsson, 18.12.2007 kl. 00:39

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Þakka þér innilega.   Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 18.12.2007 kl. 18:46

4 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Þessi saga ætti að fylgja með í hverjum poka sem verslað er í frá Á.T.V.R. Mjög góð saga og á erindi inná hvert heimili.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 19.12.2007 kl. 01:27

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gleðilega hátíð Sigmar og kærar þakkir fyrir árið sem er að líða.  Megi nýtt ár færa þér og fjölskyldu þinni gæfu og gott gengi.

Jóhann Elíasson, 22.12.2007 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband