15.10.2007 | 22:25
Er ekki gott fyrir okkur að lesa þetta vinabréf
Vinabréf
Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið.
Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna.
Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir. Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. Þú hefur staðið þig með prýði ,en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur sárinu,en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar,örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör. Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar.Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér.? Nú er alþjóðleg vinavika. Sýndu vinum þínum hve mikils þú metur þá og sendu þeim þetta bréf. Það getur vel verið að þú fáir bréfið til baka og þá finnur þú að þeir meta vináttu þína. Þú hefur þú safnað um þig vinahring. Gleðilega vinaviku!! Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður. Sendu nú bréfið til vina eða fjölskyldu. Og fyrirgefðu mér ef ég hef skilið eftir göt í grindverkinu þínu
Athugasemdir
Góða kvöldið gamli vinur, það er mikið gaman að lesa þetta vinabréf, það er ekki skrýtið að það skuli koma frá þér Sigmar. Kveðja frá Eyjunni fögru.
Helgi Þór Gunnarsson, 15.10.2007 kl. 22:58
Heill og sæll Helgi Þór alltaf gaman að fá viðbrögð frá þér, og kveðju frá Eyjunni fögru. Mér datt í hug að setja þetta vinarbréf sem ég fékk um daginn í póstinn minn, hér á bloggið mitt. Það gæti orðið dálítið af slæmum naglaförum eftir þessa umræðu um Orkuveituna og gömlu og nýju borgarstjórnina, eða hvað heldur þú um það ?. Stundum er betra að bíða eftir leikslokum, enda botnar maður hvorki upp né niður í þessu öllu saman.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 15.10.2007 kl. 23:22
Komdu blessaður og sæll, já það er svona þegar stjórnmálamenn fara offari og gera ekki það sem peningamennirnir voru búnir að skipuleggja, þá verða þeir fúlir og kippa í spotta. Það var svakaleg fréttin af tengdadóttir þinni í mogganum í gær, maður áttar sig ekki á svona löguðu, ég vona að þetta fólk sem hringdi ekki þurfi aldrei á svona aðstoð að halda. Kær kveðja úr Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 17.10.2007 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.