6.7.2020 | 23:06
Gaman að sjá Björgvinsbelti við Djúpalónssand
Björgvinsbelti við Djúpalónsand.
Djúpalónssandur er bogamynduð. grunn vík, með sandi í botni og klettakví þar upp af. Vík þessi er með ströndinni milli Einarslóns og Dritvíkur, fyrir neðan Beruvíkurhraun og fyrir vestan Purkhóla á vesturströnd Snæfellsness. Hraunið gengur í sjó fram og djúpar gjár ganga inn í það þar sem brimið étur sig inn í hraunið. Við sandinn er sérkennilegur klettur sem kallast Gatklettur og við hann er tjörnin Svörtulón. Djúpalónssandur var verstoð og þar þótti reimt og heitir hellir einn þar Draugahellir. Djúpalónssandur er um 10 km frá Hellnum. Þarna er einnig Tröllakirkja, sérkennileg hellisglufa inn í hamravegginn. Vinsæl og auðveld gönguleið liggur á milli Djúpalónssands og Dritvíkur. Hún er tæplega 1 km. Á Djúpalónssandi eru steintök sem vermenn reyndu afl sitt á, en til þess að fá pláss á báti þurfti viðkomandi að geta lyft þeim öllum. Fjórir aflraunasteinar liggja undir Gatkletti þegar komið er niður á sandströndina. Þeir eru Fullsterkur 155 kg, Hálfsterkur 100 kg, Hálfdrættingur 49 kg og Amlóði 23 kg. Frá aflraunasteinum þessum er stutt yfir í sjálfa víkina og þar fyrir ofan malarkambinn eru ferskvatnslón þau tvö og djúp sem víkin dregur nafn sitt af. Breski togarinn Epine GY 7 frá Grimsby fórst fyrir utan Djúpalónssand í mars 1948 og liggur járn úr skipinu á við og dreif um sandinn. Fimm skipsverjar lifðu slysið af en 14 fórust.
Athugasemdir
Sæll Sigmar, það gaman að sjá þessar myndir og góð lýsing sem fylgir með, það virðist vera skynsamt fólk sem stjórnar þarna á þessu svæði úr því það velur Björgvinsbeltið.
Kær kveðja frá Stóradal.
Helgi Þór Gunnarsson, 7.7.2020 kl. 06:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.