25.4.2017 | 15:09
Limrur eftir Jóhann S Hannesson
Hverjum stjórnmálaflokki er svo farið
að hann forðast að taka af skarið:
spurð hvað miljón sé stór
svarar miðstjórn í kór
,, það er misjafnt. hver biður um svarið?,,
---------------------------------------
,, Það er aumingi austur í Vík
sem á ekki heillega flík.,,
,, Hvernig má þetta vera?
Það er mikið að gera
og meðaltalsfjölskyldan rík!,,
Limrur eftir Jóhann S Hannesson
Athugasemdir
Sæll Sigmar, og gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.
Hver er Jóhann S Hannesson?
Svolítið kunnulegt nafn, en ég kem því ekki fyrir mig.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 26.4.2017 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.