16.4.2017 | 18:18
Við þökkum þér Ási í Bæ
Jú við þökkum þér, Ási í Bæ
Hann réri á kænum, á kolgrænum sænum.
Keipaði færum að fiskinum vænum.
Stundum var lítið, en oftar mjög mikið.
Hver var hann þessi sem studdist við prikið ?
Jú, það var hann Ási,
það var hann Ási,
það var hann Ási í Bæ.
En hver annars var hann, og hvort mun hann lifa ?
Kann einhver að spyrja, ég segi og skrifa.
Á meðan að sæfarar sigla enn strikið
munu þeir þekkj‘ann sem studdist við prikið.
Því, það var hann Ási,
það var hann Ási,
það var hann Ási í Bæ.
Og þeir sem að skemmta sér, syngja og tralla,
sækja í söngva og ljóð svona ,,kalla“
En þeir munu varla skilja hve mikið,
erfitt oft reyndist að styðjast við prikið.
Við þökkum þér Ási,
þökkum þér Ási,
þökkum þér Ási í Bæ.
Kveðja frá Páli Sigurðarsyni
Athugasemdir
Þetta er tekið úr gömlu Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 16.4.2017 kl. 18:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.