6.12.2015 | 00:14
Ástarvísa sem er í ritinu Blik
Ástarvísa
Átræður öldungur hafði verið í hjónabandi í nálega 60 ár.
Þá gaf hann konunni sinni þetta vísukorn, sem hann orti til hennar.
-
Þótt ellin mæði , ekki dvín
ástar hreini blossinn;
enn mér hugnast atlot þín
eins og fyrsti kossinn.
-
Lesandi góður sem e.t.v. hefur verið giftur nokkur ár,
Mundirðu af hjarta geta tekið undir með gamla manninum ?
Ef svo er , þá ertu einstaklingur hamingjunnar.
Athugasemdir
Góð Vísa. Kv. Leifur
Leifur í Gerði (IP-tala skráð) 11.12.2015 kl. 15:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.