Ingi Björn Albertson barðist fyrir björgunarþyrlum

Nú þegar umræða er í okkar ágæta þjóðfélagi um endurnýjun á björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar er ekki úr vegi að minnast á þann mann sem var einn af duglegustu mönnum á landinu við að berjast við að fá alvöru björgunarþyrlur til landsins. Þetta var Ingi Björn Albertsson fyrverandi alþingismaður m.m. Hann barðist fyrir þessu á Alþingi og með skrifum í blöðin. Það er mín skoðun að Ingi Björn hafi átt stóran þátt í að þyrlurnar voru keyptar eða leigðar eins og hluti þeirra er í dag.

Þessa grein skrifaði Ingi Björn Albertsson þá alþingismaður 24. október 1990. Eiga sjómenn í dag svona sterkan baráttumann á þingi, sem vill endurnýja þyrluflota Landhelgisgæslunar sem er því miður að verða gamall  ?????.    

 

Ingi björn  Albertsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Var hann ekki með umboð fyrir þyrlur?

Erlingur Alfreð Jónsson, 18.6.2015 kl. 13:31

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Mér finnst það ekki skipta neinu máli Erlingur. Nú hef ég ekki hugmynd um hvort hann hafði umboð fyrir þyrlur eða hvort þær þyrlur sem hann hafði umboð fyrir voru keyptar eða leigðar. Í mínum huga á hann stóran þátt í að þessar þyrlur voru fengnar í þjónustu Landhelgisgæslunar, og þær hafa bjargað hundruðum manna.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 18.6.2015 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband