18.3.2015 | 22:42
Nú eru komnar 700,000 flettingar
Loksins eru komnar 700,000 (sjöhundruð þúsund) flettingar á nafar bloggið mitt, en færri fara hér inn á bloggið þar sem flestir eru komnir á Fb. Þakka öllum sem hafa heimsótt bloggið mitt og sérstakar þakkir til þeirra sem hafa sett inn athugasemdir við myndir og skrif mín hér á blogginu. Kær kveðja til bloggvina :-)
Athugasemdir
Þetta kemur allt með kalda vatninu. Ég er ekki hissa þótt síðan þín sé skoðuð nokkuð mikið, þar er mikið um góðar og skemmtilegar greinar, gamlar og góðar myndir og upprifjun frá tímum sem margir þekkja og sakna, ásamt mörgu öðru fróðlegu og skemmtilegu sem of langt mál yrði að telja upp hér. Í það minnsta vona ég að bloggið þitt verði sem allra lengst því ég nýt þess virkilega að lesa það og það eru margir fleiri en ég, sem koma þar við þó vissulega mætti maður vera duglegri að láta vita af sér. Kærar þakkir.
Jóhann Elíasson, 19.3.2015 kl. 01:54
Heill og sæll Jóhann og takk fyrir innlit og góð orð um bloggið mitt. Þú hefur nú verið einn af þeim sem er hvað duglegastur að setja inn athugasemdir við það sem ég er að setja hér inn á bloggið mitt og vil ég þakka þér kærlega fyrir það. Að mínu viti er ekki síður gaman að þeim athugasemdum og oft vitbótarupplýsingum sem koma fram í athugasemdunum. Alltaf gott að eiga góða bloggvini :-)
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 19.3.2015 kl. 12:24
Til hamingju með áfangan og skemtilegt blogg.
Sveinbjörn Orri Jóhannssonmu (IP-tala skráð) 22.3.2015 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.