3.2.2015 | 15:02
Öryggismál hafna
Öryggismál og slysavarnir hafna.
Með slysavörnum hafna er átt við öryggisbúnað sem miðar að því að koma í veg fyrir slys, og nota má til bjargar þeim sem fyrir óhöppum verða við hafnir. Til öryggisbúnaðar hafna teljast stigar, bjarghringir, Björgvinsbelti, Markúsarnet, krókstjakar, lýsing á hafnarsvæðum, hlið og girðingar og ýmislegt fleira. Þá á að skoða löndunarkrana einu sinni á ári og er það Vinnueftirlitið sem það gerir. Í flestum höfnum held ég að öryggisbúnaður sé í nokkuð góðu lagi þó alltaf megi gera betur. Góðir stigar á bryggjum eru mikið öryggisatriði, þeir eiga samkvæmt reglum að vera með ljós til að lýsa upp stigann, og svo hann sjáist enn betur á hann að vera málaður innan með áberandi gulum lit. Á allflestum bryggjum landsinns eru stigar í lagi og á síðustu árum hefur markvist verið unnið að því að koma ljósum í stiga á eldri bryggjum, allar nýjar bryggjur eiga að vera byggðar með góða velupplýsta stiga og vel merkta. Það er þó ennþá nokkuð um að á gamlar bryggjur vanti eitthvað af stigum og ljós í þá. Minna má á að þessir stigar með ljósum hafa bjargað mönnum sem hafa fallið í hafnir í myrkri og slæmu skyggni. Lýsing í höfnum er mikið öryggisatriði, vel upplýstar bryggjur minka líkur á því að slys verði við þær og góð lýsing á hafnarsvæði á að lýsa upp geymslustaði öryggisbúnaðar, þetta er eitt af þeim atriðum sem skoðað er við ástandsúttekt öryggisbúnaðar hafna, ásamt aðgengi að þeim öryggistækum sem til taks eru við höfnina. Því miður er stundum ekki hægt að komast að þeim björgunar og öryggisbúnaði sem er til staðar á bryggjunni eða við hana, vegna þess að hlaðið hefur verið fyrir björgunarbúnaðinn gámum, körum eða öðru óviðkomandi dóti. Það er því ekki nóg að merkja öryggisbúnað vel, hann verður að vera vel aðgengilegur og sjást vel frá sem flestum stöðum við hafnarsvæðið. Stundum er farið viljandi aftur á bak í öryggismálum eins og þegar svokallaðir bjölluskápar eða neyðarsímar voru felldir út úr reglum hafna með lélegum rökum. Þó eru hafnir sem hafa þrátt fyrir breyttar reglur haldið neyðarsímum í lagi og eru með alla sína bjölluskápa í lagi þegar skoðun fer fram. Má þar nefna Reykjavíkurhöfn sem er til fyrirmyndar hvað varðar öryggismál hafna. Þó reglur gildi um öryggisbúnað hafna þá er það lágmarksbúnaður sem þar er átt við, ekkert mælir á móti því að hafnarstjórnir bæti við öryggisbúnaði ef þeir telji að það bæti öryggið við höfnina. Mig langar að minnast á eitt atriði sem nokkrar hafnir hafa tekið upp og er til fyrirmyndar. Þessar hafnir eru með björgunarvesti á bryggjunni í sérstökum kössum sem börn og unglingar geta gengið í þegar þeir eru á bryggjunni við veiðar eða aðra iðju sem börn og unglingar sækja í og við hafnir landsins. Að sögn bryggjuvarða sem ég hef rætt við er þetta þó nokkuð mikið notað og þessum öryggisbúnaði skilað á sama stað eftir notgunn. Þetta fyrirkomulag er til fyrirmyndar og ættu allar hafnir landsins að hafa aðgengileg björgunarvesti á ákveðnum stað fyrir þau börn og unglinga sem eiga erindi á bryggjurnar, það kennir börnum að meta og nota þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað. Margt fleira væri hægt að ræða um öryggi í höfnum t.d. staðsetningu og notagildi ýmissa björgunartækja. En mestu skiptir að gengið sé vel um þennan öryggisbúnað og að þeir sem erindi eiga um hafnir landsins kynni sér hvar og hvernig eigi að nota þann björgunarbúnað sem fyrir er við hafnirnar.
Eitt af verkefnum Samgöngustofu áður Siglingastofnunar Íslands er að hafa eftirlit með slysvörnum í höfnum og þar með sjá um að reglum um öryggi hafna sé framfylgt.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson.
Áhugamaður um öryggismál Sjómanna
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.