Með vinarkveðju

Var að taka til í tölvunni minni og fann þetta vinarbréf sem reyndar fylgdu margar teiknaðar myndir af fallegum dýrum. Held að Harpa mín hafi sett þetta í tölvuna mina fyrir margt löngu, en þetta á alveg erindi á bloggið mitt , ég set það óbreytt hér inn á síðuna.

Með vinarkveðju….

Þú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleið þinni,
en það eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í þínu hjarta.
Til að geta stjórnað sjálfum þér, notaðu hug...vitið;
Til að stjórna öðrum, notaðu hjartað.

Gáfaðar persónur tala um hugmyndir:
Minna gáfaðar persónur tala um hvað skeði:
Illa innrættar persónur tala illa um aðra.

Sá sem tapar peningum missir mikið:
Sá sem missir vin tapar miklu meira:
En sá sem missir trúna á lífið sjálf, missir allt.

Við erum vinir þú og ég, ef þú tekur vin þinn með erum við þrjú. við getum stofnað lítinn vinahóp.Það er jú ekkert upphaf og enginn endi njótum lífsins og verum góð hvort við annað því lífið er svo stutt þrátt fyrir allt og þess vegna ætti ekki að vera tími til að tala illa um aðra. Öll dýrin í skóginum vilja vera vinir og við mannverurnar í okkar frumskógi freistinga lífsins viljum líka vera vinir og góð hvort við annað.

Dagurinn í gær er liðinn,
Morgundagurinn er óvænt ánægja.
Dagurinn í dag er gjöf.

Þetta er alþjóða vinakeðja. Sýndu vinum þinum að þér þyki vænt um þá,. Sendu bréfið til vina þinna og þegar það kemur loksins aftur til þín þá veistu að þú hefur skapað vinakeðju.


Þegar þú færð þetta bréf þá sendu það til vina þinna en um leið eitt bréf til þess sem sendi þér þetta bréf.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband