Vitlaust gengið frá gúmmíbjörgunarbátum

 

gamlárskvöld 2013 001

  Nú fyrir nokkrum dögum fór ég bryggjurúnt um Hafnarfjarðahöfn  og Reykjavíkurhöfn, þar sem nokkuð mörg skip voru í höfn gerði ég smá athugun á frágangi gúmmíbjörgunarbáta um borð í þessum skipum. 

Í þremur stórum skipum voru gúmmíbjörgunarbátar sem ekki voru rétt frá gengnir í Losunar og sjósetningarbúnaði. Þetta er ekki nógu gott og merkilegt að sjómenn og skipaskoðunarmenn skuli ekki en vera búnir að læra að ganga frá þessu mikilvæga björgunartæki í gálgana :-(

 Þarna snýr fangalínan út að síðu skipsins  þannig að ef bátnum er skotið út svona fyrir komið í búnaðinum, þá lendir hann á hvölfi í sjónum. Fangalínan snýr honum við í loftinu á meðan hann er að blásast upp, þetta hefur verið margprófað, og reyndar liggur ljóst fyrir ef menn hugsa málið.

FANGALÍNA 'A AÐ SNÚA INN Í SKIPIÐ.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband