22.11.2013 | 19:41
Ljóð: Lýður Ægisson skipstjóri
Lýður Ægisson skipstjóri með meiru hefur gert mörg falleg ljóð og hann er einnig góður lagasmiður. Nokkur ljóða Lýðs eru í Sjómannadagsblöðum Vestmannaeyja þar á meðal þetta sem ég skrifaði upp úr einu blaðinu.
Hann hefur gefið út diska með mörgum laga sinna.
Ljóð eftir Lýð Ægisson
Þeir sem ganga hinn gullna veg
gleði og blessun hljóta.
Æfi hinna er ömurleg
sem öllu bölva og blóta.
Þú ert blautur en býsna klár
berð þig vel í þynnku.
Þolir allvel frost og fár
og fyrir lítur linku.
En bakkus gamli brýtur allt
og brenglar öllum vonum.
Þeim löngum reynist lánið valt
sem leika sér að honum.
Hafðu frá mér heillaráð
-hættu stút að naga-
Þá líf þitt verður ljóma skráð
og ljúf þín ævisaga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.