Ný Siglingafræði er komin út

Út er komin ný glæsileg bók Siglingafræði eftir Guðjón Ármann Eyjólfsson, og af því tilefni var haldið útgáfuteiti í Siglingastofnun Íslands heitinni. Eyjamaðurinn Jói Listó teiknaði að mér skylst um 300 myndir í bókinna. Helgi Jóhannesson sem sem er ritstjóri bókarinnar hélt þar gott erindi í tilefni útgáfu á hinni nýju Siglingafræði. Bað ég Helga um leyfi til að byrta erindi sem hann flutti við þetta tækifæri og gaf hann mér leyfi til þess og fer það hér á eftir, en í erindi Helga kemur fram allt sem segja þarf um tilurð bókarinnar.  

 

Útgáfuteiti bókarinnar Siglingafræði

1. nóvember 2013

 

Góðir gestir,

 

Nú er runnin upp sá dagur að bókin Siglingafræði er komin út. Til að þessi bók yrði að veruleika hefur Guðjón Ármann unnið í 4 ár að gerð hennar, Jói listó hefur varið miklum tíma á síðasta ári í að teikna myndir í bókina og einnig hef ég lagt til drjúgan hluta af minni vinnu síðasta árið. Það er því fullt tilefni til að gera sér glaðan dag og fagna útgáfu bókarinnar Siglingafræði.

 

SiglingafræðiSiglingafræði 1

Siglingastofnun Íslands gefur nú út þriðju bókina í ritröð um stjórn og siglingu skipa, sem Guðjón Ármann Eyjólfsson, fv. skólameistari Stýrimannaskólans í Reykjavík hefur samið. Áður hafa komið út þrjár kennslubækur í Siglingafræði, þ.e. árið 1966, 1947 og 1920. Það eru því liðin tæp 50 ár síðan kennslubók í Siglingafræði kom út.

 

  • Árið 2006 kom út 3. útgáfa bókarinnar Stjórn og sigling skipa – siglingareglur, sem áður var gefin út árið 1989 (2. útgáfa) og árið 1982 (1. útgáfa). Vegna mikillar sölu á 3. útgáfu bókarinnar var hún endurprentuð árið 2007 og 4. útgáfa hennar gefin út árið 2011, aukin og endurskoðuð. Bókin fjallar fyrst og fremst um alþjóðasiglingareglur, sem eru umferðarreglur á hafinu og hafa það að markmiði að koma í veg fyrir árekstra skipa og stuðla að betri og öruggari siglingum og þar með bættu öryggi allra sjófarenda.

 

  • Árið 2009 kom út ritið Leiðastjórnun skipa, sem fjallar um leiðastjórnun, aðskildar siglingaleiðir og hafsvæði sem ber að forðast, tilkynningarskyldu skipa og varúðarsvæði. Ennfremur er rækilegur kafli um hafnsögu, olíuborpalla, siglingar í skipaskurðum og siglingar með ratsjá (ARPA).

 

  • Bók sú sem nú kemur út ber heitið Siglingafræði og fjallar um grundvallaratriði siglingafræðinnar, sjókort, seguláttavita, gýróáttavita og rafræna áttavita. Auk þess er fjallað um jarðsegulmagn og misvísun, skipssegulmagn og segulskekkju, sjávarföll og straumrastir og orsakir þeirra. Þá er sérstaklega og með nýrri uppsetningu fjallað um dýpi undir kili (UKC-Under Keel Clearance) og um stjórntök skipa við olíuleit, þ.e. svokölluð sívirk læst staðsetning skipa (DP-Dynamic Positioning). Í þessari nýju bók er lögð mikil áhersla á haffræði, hafstrauma og sjávarfallastrauma og þar einkum stuðst við rit Dr. Unnsteins Stefánssonar um hafið umhverfis Ísland og í Norðurhöfum. Teiknaðar myndir Jóhanns Jónsson falla mjög vel að texta bókarinnar og varpa skýru ljósi á hann og vill Siglingastofnun nota tækifærið þakka Jóhanni (Jóa listó) fyrir framlag hans til þessarar bókar og fleiri bóka sem hann hefur myndskreytt fyrir Siglingastofnun Íslands. 

 

Guðjón Ármann hefur frá árinu 2005 haft aðstöðu í Siglingastofnun Íslands við að semja þessar bækur. Auk þessara bóka var hann mikill hvatamaður að útgáfu bókarinnar Lækningabók sjófarenda sem Siglingastofnun Íslands gaf út árið 2003 og bókarinnar Siglingareglur sem kom út árið 2005.

 

n og Helgi 001 Á myndinni eru Hélgi Jóhannesson, Guðjón Ármann Eyjólfsson og Sigmar Þór Sveinbjörnsson með eintak af nýju Siglingafræðinni.

 

Guðjón Ármann hefur víða komið við í ritstörfum sínum, hann samdi bókina Vestmannaeyjar – byggð og eldgos, sem fjallar um eldgosið í Heimaey árið 1973 og sögu þeirra byggðar sem fór þá undir hraun og kom hún út árið 1973, ritaði kafla um Vestmannaeyjar í safnritið Ísland sem ritstýrt var af Steindóri Steindórssyni frá Hlöðum, þá skrifaði hann Árbók Ferðafélags Íslands 2009 um Vestmannaeyjar og auk þess í gegnum árin fjölmargar greinar í dagblöð, tímarit og sjómannadagsblöð og var ritstjóri sjómannadagsblaðs Vestmannaeyja í 11 ár.

 

Guðjón Ármann lærði til sjóliðsforingja í danska sjóhernum 1956-1960. Á árunum 1961-1963 starfaði hann við sjómælingar og sjókortagerð hjá Landhelgisgæslu Íslands. Hann var skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum 1964-1975, kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík 1975-1981 og skólameistari við skólann á árunum 1981-2003 utan eitt skólaár sem hann var í námsleyfi í Þýskalandi, Noregi og Danmörku og kynnti sér sjómannafræði og skipstjórnarkennslu í þessum löndum. Eins og áður er komið fram hefur Guðjón Ármann sinnt ritstörfum hér í Siglingastofnun Íslands frá árinu 2005.

 

Í hálfa öld hefur Guðjón Ármann sinnt skipstjórnarfræðum og kennslu og eru þeir ófáir skipstjórarnir og stýrimennirnir sem sótt hafa þekkingu og fróðleik í sjómannafræðum til Guðjóns Ármanns Eyjólfssonar í gegnum árin.

 

Ég vil að lokum þakka Guðjón Ármanni og Jóa Listó samstarfið við gerð bókarinnar. Það gekk snurðulaust fyrir sig og aldrei kastaðist í kekki okkar á milli. Ármann fór oft í kennsluhlutverkið og vildi í leiðinni kenna mér Siglingafræði. Ég bað hann vinsamlegast að eyða ekki tíma í það, þar sem engar líkur væru á að ég myndi meðtaka þann fróðleik. Hann gafst þó ekki upp, en í eitt skipti urðum við þó ekki sammála, en það var þegar ég rakst á texta um að Tunglið snerist um sjálft sig eins og Jörðin. Ég leitaði álits hjá byggingaverkfræðingi,  skipaverkfræðingi, rekstrarverkfræðingi og vélaverkfræðingi hjá Siglingastofnun Íslands og voru þeir allir mér sammála, en að sjálfsögðu hafði Guðjón Ármann rétt fyrir sér.

 

Ég vil fyrir hönd starfsmanna Siglingastofnunar Íslands heitinnar þakka Guðjóni Ármanni fyrir samstarfið síðustu átta ár. Framlag hans í þágu siglinga, sjávarútvegs á Íslands og öryggis sjófarenda er mikið. Ég vil færa honum þakkir fyrir gott samstarf á liðnum árum og það framlag sem felst ritun þeirra bóka sem stofnunin hefur gefið út. Þær bækur munu nýtast skipstjórnarnemum og starfandi skipstjórnarmönnum um ókomin ár.

 

Helgi Jóhannesson, ritstjóri bókarinnar Siglingafræði

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband