Úr Ljóðabókinni HÉLUÐ BLÓM

UM HAFRÚN.

Fagurt galar fuglinn minn,

fjaðraprúður, hvítur,

yfir hænuhópinn sinn

hreykinn stundum lítur.

 

Margur bæri létta lund,

lifsins nýti‘ að vonum,

ef hann mætti alla stund

una‘ í hóp af konum.

 

 

   ******

 

 

LJÓS  Í MIRKRI.

Myrkrið yrði svart í sál

sumra bestu manna,

ef þar lifði ekki bál

endurminninganna.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eftir hvern er bókin Héluð blóm

Ólafur Guðmundsson (IP-tala skráð) 26.10.2013 kl. 15:43

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Ólagur Héluð blóm

eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttir og gefin út 1937

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 26.10.2013 kl. 18:28

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Ólafur átti þetta að vera

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 26.10.2013 kl. 18:29

4 identicon

Sæll Simmi.   Gaman að sjá vísurnar hennar Guðfinnu (Erlu).  Guðfinna var ein fárra kvenna sem fékk útgefið efni eftir fyrir miðja síðustu öld.  Hún var húsmóðir í sveit og ól upp níu börn, sá ég í umfjöllun um hana í tengslum við útgáfuna á verkum hennar nú í haust.  Visurnar hennar eru margar sem heilræðavísur, t.d. þessi:

Tækifærið tefur ei

taktu það í skyndi,

annars berst það frá sem fley

fyrir hvössum vindi.

Þakka þér Simmi fyrir að halda merki Guðfinnu Þorsteinsdóttur á lofti.  Kær kveðja. 

Guðný Ingars (IP-tala skráð) 28.10.2013 kl. 09:02

5 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Guðný og þakka þér kærlega fyrir þessar upplýsingar um Guðfinnu. Ég var lengi búinn að leita að höfundi að ljóði sem heitir Lifsreglur og ég heyrði fyrst við jarðarför sem ég fór í Fljótshlíðinni, þar fór presturinn með hluta úr þessu ljóði en gat ekki um höfund. Síðan var ég að lesa ljóð í gamalli ljóðabó eftir Guðfinnu( Erlu) og þar var ljóðið í fullri lengd. Frábært ljóð og með þeim bestu sem ég hef lesið.

Það er gaman að halda nafni þessarar konu á lofti.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 31.10.2013 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband