Úr ljóðabókinni Héluð blóm

 

 

   

HEILRÆÐI.

Þegar spurt um eitthvað er,

enn að mestu hulið,

segðu ekkert, ef að þér

er hið sanna dulið.

 

Sumra manna sögum á

svikult er að byggja.

Sannleikurinn margoft má

mönnum dulinn liggja.

 

     ****

 

DÆMDU EKKI

Reyndu‘ að finna‘ í fari náungans

fagra dygð og kosti‘, er megi‘ hann prýða.

Leitaðu‘ ekki‘ að yfirsjónum hans.

Ekki‘ er þitt að dæma bresti lýðs.

 

Héluð blóm

eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttir

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband