21.10.2013 | 20:56
Þeir sjá um skoðun Gúmmíbjörgunarbáta í Stykkishólmi
--------
Í dag vorum við Einar J. í Stykkishólmi hjá Skipavík Gúmmíbátadeild að gera ytri úttekt á fyrirtækinu.
Á myndinn eru t,f.v Steindór Hjaltalín og Guðjón Hjaltalín sem sjá um skoðanir gúmmíbjörgunarbáta og björgunarbúninga hjá Skipavík en Steindór er aðstoðarmaður Guðjóns.
Á neðri myndinni er 4. manna gúmmíbjörgunarbátur í Olsen losunarbúnaði sem einungis losar gúmmíbátinn en sjósetur hann ekki, samskonar búnaður er einnig til af Sigmundsgerð.
Myndirnar tók ég í dag í Stykkishólmi
--------------
Athugasemdir
Sæll Sigmar, ertu farinn að vinna aftur í gömlu vinnunni þinni?
Eða hvað er annars að frétta?
Allt gott að frétta hjá mér, ég er en í Ísnet.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 22.10.2013 kl. 21:42
Heill og sæll Helgi Þór, nei ég er ekki byrjaður aftur, en þegar ég hætti lofaði ég að koma nýjum manni inn í þau störf sem ég hafði á hendi þegar ég var hjá Siglingastofnun. Nú var komið að skoðun Gúmmíbátastöðva og fór ég með nýjum skoðunarmanni til að gera ytri úttekt á gúmmíbáta skoðunarstofunni á Stykkishólmi.
Það er allt gott að frétta af mér, ég hef alltaf næg verkefni að gera þó ég sé hættur að vinna
Hvaða fyrirtæki er Ísnet ?
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.10.2013 kl. 13:26
Sæll Sigmar, já það er gott að lesa svona jáhvæða fréttir frá þér, þar að segja að þú stendur við gefin loforð, það mætti margur taka það til sín.
"Ísnet" er netaverkstæði þar sem netagerðin Ingólfur var til húsa, þetta er alþjóðafyrirtæki með sex starfsöðvar, fimm hér á landi og eina út í Kanada, svo eru þeir með innflutings fyrirtæki sem heitir "Ísfell" Pétur Björnsson ættaður frá Kirkjubæ og var lengi út í Hull er einn aðaleigandi þessara fyrirtækja. ég vona að þú áttir þig á því hvaða fyrirtæki þetta er sem ég er að læra netagerð.
Kær kveðja frá Eyjum.
Helgi Þór Gunnarsson, 23.10.2013 kl. 17:55
Já ég átta mig núna á þessu Helgi Þór þegar þú nefnit Ísfell.
Mikið líst mér vel á það Helgi Þór að þú skulir vera að læra netagerð, ég veit að það gengur örugglega vel hjá þér og mér skilst að það séu ekki margir sem eru að læra það á landinu. Þannig að það ætti að vera góðir möguleikar á vinnu.
Kær kveðja úr Kópavogi
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.10.2013 kl. 18:09
:-)
Helgi Þór Gunnarsson, 24.10.2013 kl. 08:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.