Eyjamaður finnur upp björgunarstakk 1960

Björgunarstakkur

Gaman að skoða þessi gömlu Eyjablöð.

 Í Þjóðhátíðarblaði Vestmannaeyja frá 1960 segir frá því að Gísli Fribjarnarson vestmannaeyingur hafi fundið upp merkilega uppfinningu sem er sjóstakkur úr gallonefni.

Innann í stakknum er rafsoðið stykki úr sama efni, svo þar myndast holrum. Undir handakrikanum er komið fyrir litlu hylki  með samanþjappaðri kolsýru. Þegar þessi tappi er dreginn úr hylkinu , ( sem er ekki stærra en stór vindill), streymir loftið inn í holrúm og fyllir það. Er þá kominn loftfylltur björgunarhringur í stakkinn.         Sjá hér til hliðar greinina Eyjamaður finnur upp björgunarstakk.

Þarna eins og svo oft áður hefur vestmannaeyingur verið í fararbroddi með uppfinningar í sambandi við öryggismál sjómanna, en því miður hefur þessi uppfinning eins og fjölmargar aðrar sem komið hafa fram í Vestmannaeyjum gegnum árin ekki náð neinni útbreiðslu. Aftur á móti hafa þróast björgunarvesti sem eru uppblásanleg og gera það sjálfvirkt. Þau eru nú í dag mikið notuð á togurum og öðrum skipum stórum og smáum.

Þá hafa einnig verið þróaðir bæði vinnuflotbúningar og björgunarbúningar sem nú eru skildaðir í öll skip sem notuð eru í atvinnuskini.

Vonandi halda Vestmannaeyingar áfram að hugsa um þessi mál og vera í fararbroddi hvað öryggismál sjómanna varðar, því enn eru alltof mörg slys á sjó og því mikið verk að vinna. Margt bendir til þess að við séum nú farnir að fara afturbak enda lítil sem engin umræða um öryggi sjómmanna í þjóðfélaginu í dag.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband