Grunaður um ólöglegar veiðar

Siggi í Bæ

Þyrla Landhelgisgæslunnar stöðvaði í dag bát að handfæraveiðum innan reglugerðarhólfs þar sem bannaðar eru veiðar vegna hrygningarstopps. Var báturinn færður til hafnar og tók lögregla á móti honum.

Í tilefni af banndögum krókaleyfisbáta. ( Vísurnar eru í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja frá árinu 1992)

Landhelgis brot hafa ekki verið tiltakanlega tíð nú í seinni tíð. Því kom það nokkuð á óvart um páskana þegar landhelgisgæslan stóð einn af aldursforsetum flotans, Sigga í Bæ að „ meintum ólöglegum veiðum" og það á skaki. Þessi atburður var Stokkseyringnum Stefáni Jónssyni að yrkisefni en hann er hagyrðingur góður. Vísurnar fara hér á eftir:

-

Á skírdag barst gæslunni skuggaleg frétt

skakbátur kominn á sjóinn,

nú yrði að kanna hvort allt væri rétt

og áttræður karlfuskur róinn.

-

Send var nú þyrla að sveima um haf

frá Surtey og vestur að Dröngum,

árangur snarlega góðan það gaf

af gæslunaræfingum ströngum.

-

Snöggir þeir þefa upp númer og nöfn

nú skyldi útgerðin borga-

skipuðu þrjótnum að halda í höfn

og hætta sem snarast að dorga.

-

En gamlingin hlýddi ei réttarins rödd

hélt rólegur áfram að skaka,

þyrlan í vandraæðum virtist nú stödd

bað varðskip nú þrótinn að taka.

-

Með gínandi fallbyssum geystist um sjá

gæslan í sókn vildi ráðast,

forhertum lögbrjótum nú skyldi ná

og neyða til hafnar sem bráðast.

-

Lögum að hlýða oss landmönnum ber

og lagast að reglum og siðum,

aflinn af bátnum skal upptækur ger

til eflingar gæslu á miðum.

-

Aðeins í róðrinum ýsukóð tvö

að endingu féllu í valinn,

þarna við bættust svo þyrslingar sjö,

þarmeð var fengurinn talinn.

-

Verðið á þorskinum þykir vist hátt

þeim sem á markaðinn sækja

í veskjum þeirra samt vegur það smátt

sem verndarstörf landgrunnsins rækja.

-

Í sífellu gæslan á eftir þeim er

sem annast af príði sinn nökkva,

en þeir eru friðhelgir, því er nú ver

sem þjóðfélagsskútunni sökkva.

-

Stokkseyri 17.04.1992

Stefán Á. Jónsson


mbl.is Grunaður um ólöglegar veiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband